Eining - 01.12.1945, Page 4

Eining - 01.12.1945, Page 4
4 E I N I N G Afmælisfundur sfúkunnar. Stúkan EININGIN 60 ára Laugardaginn 17. nóv. síðastl. hafði stúkan Einingin nr. 14 viðhafnarmikinn hátíðarfund í Góðtemplarahúsinu. Stúkan var þá 60 ára. Hún á mikla og merki- lega sögu, sem væri ærið efni í nokkrar ritgerðir. Fundarsalurinn var þéttskipaður félagsmönnum og gestum stúkunnar. — Æðstitemplar, Freymóður Jóhannsson, listmá’ari, stjórnaði fundi vel og skörug- lega. Framkvæmdarnefnd Stórstúkunnar kom f heiðursheimsókn, teknir voru inn nýir félagar, og saga stúkunnar var rifjuð upp með spurningum og svörum, sem embættismenn stúkunnar leystu úr. Stúk- unni bárust mörg heillaóskaskeyti og blómagjafir. Tveir unglingar úr barnastúk- unni Æskan gengu fyrir æðstatemplar með blómvendi, er þau færðu verndarstúku sinni. Þau fluttu stutt ávörp. Fulltrúar frá stúkunum í Reykjavík og Hafnarfirði, og víðar að á landinu, fluttu stúkunni árnað- aróskir. Sunnudagskvöldið var svo afmælishóf mikið í Listamannaskálanum. Hófið setti Jónas Guðmundsson fyrrv. alþm., en Helgi Helgason verzlunarstjóri var tilnefndur í heiðursskyni sem veizlustjóri. Sérstakir heiðursgestir stúkunnar voru við þetta tækifæri tveir stofnendur hennar, þeir séra Magnús Bjarnarson, fyrrum prófastur að Prestsbakka á Síðu, 84 ára, og séra Þórð- ur Ólafsson fyrrum prófastur að Söndum í Dýrafirði, 82 ára. Aðal afmælisræðuna flutti æðstitemplar, Freymóður Jóhannsson, og er í henni margvíslegur fróðleikur, sem ástæða væri til að birta nánar við tækifæri. Ræður fluttu og stórtemplar, Kristinn Stefánsson og fulltrúar frá öðrum æðri stigum Regl- unnar, og fleiri. Skemmt var með söng og hljóðfæraslætti, en að síðustu stíginn dans. Stúkan Einingin hefur haldið 3025 fundi þessi 60 árin, 3800 hafa unnið bindindisheitið í stúkunni. Alls mundi fundartími og önnur félagsstörf stúkunnar þessi 60 ár verða um 60 þúsund dagsverk. Fé það, sem stúkan hefur lagt til starfs- ins á þessu tímabili, auk allrar vinnu, reiknast vera um hálf önnur milljón króna. Félagar stúkunnar eru nú á fimmta hundr- að. Fundarsókn er jafnan góð og félags- starfið fjörugt. Stúkan hefur tvöfaldað félagatöilu sína síðastliðið ár. Hún var Borgþór Jósefsson. stofnuð af aðeins 14 mönnum, en það var valið lið, — einn Iögfræðingur, þrír guðfræðingar, tveir ritstjórar, einn bók- haldari, þrír prentarar og 3 aðrir iðnað- armenn. í þessum hópi voru þeir Jón Ól- Helgi Helgason. afsson, rithöfundur og Guðlaugur Guð- mundsson, sýslumaður. Guðlaugur sýslu- maður var fyrsti æðstitemplar stúkunnar, annálaður fundarstjóri. Jón Ólafsson var fyrsti umboðsmaður stúkunnar. Einn af nafnkunnustu félögum stúkunn-

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.