Eining - 01.12.1945, Blaðsíða 8

Eining - 01.12.1945, Blaðsíða 8
8 E I N I N G Undralœkning En erfðavenjur eru lífseigar og eftir- 'hermuhæfileikar mannlegs vanþroska mikjr. Kirkjan flytur öllum þjóðum gleði- boðskapinn og siðirnar blandast. Meðal norrænna þjóða var hinn dimmi og langi vetur orsök hræðslu og hjátrúar, meðal annars. Hræðsla manna við nornir og illa anda, sem mest bar á í skammdeg- inu, kom af stað hræðilegum fórnarvenj- um og ljótum siðum. Hræðslan var engin uppgerð og fögnuðurinn yfir endurfæð- ingu ársins og komu bjartari og lengri daga varð líka ákafur. Talsmenn kirkj- unnar gátu sett sig inn í kjör manna og umborið og skilið siði þeirra að nokkru leyti. A einhvern hátt verður tilfinninga- og trúarlíf manna alltaf að birtast. Árið 601 skrifaði hinn mikilhæfi páfi, Gregorius mikli, ábóta Mellitusi leiðbein- ingar, sem áttu að komast til Ágústins í Kantaraborg. Voru þær á þessa Eeið: „Vegna þess að þeir (Engelsaxarnir) eru vanir að slátra mörgum uxum til fórn- færingar vættunum, þá er nauðsynlegt að einhver hátíðahöld komi í þess stað. . . . Látið þá nú ekki slátra skepnum og fórna þeim illu öndunum, heldur Guði til dýrðar. Slátri þeir skepnu, handa sjálfum sér, eti og lofi gjafarann alira góðra gjafa. Með því þannig að verða hinnar ytri blessunar »aðnjótandi, ætti þeim að veitast fremur •hlutdeild í hinum innra fögnuði. Það er sennilega ógerlegt að kippa öllum arf- gengum venjum snögglega frá mönnum með óþroskaðan hugsunarhátt. Sá, sem keppir að hinum æðstu markmiðum, sæk- ir á í áföngum en ekki einu stökki“. Þannig opnast kirkjan ýmsum fornum siðum og margvíslegum skemmtunum. — Táknmyndir koma í stað fórna hinna hei- lögu dýra, jólatré, jólá'jós, jólaeldar og blysfarir, og jólagjafir. Vill þá auðvitað fljóta ýmisíegt með af Iakara taginu, grímudansar, drykkjuskapur, óhóf í mat og drykk og alls konar léttúð. Konungur gervigleðinnar fær oft ekki minni tír beiðslu, en jólabarnið í jötunni. Hátíð- leikinn og kyrrðin, sem frásögnin um hirðana og barnið í jötunni túlkar, verður að þoka allverulega fyrir eftiröpun þeirra hátíðavenja, sem helgaðar voru Satúrnus eða Sólarguðnum. Sagt er að jólin hafi oft verið haldin á miðöldum með slíkri viðhöfn og jafnvel villimennsku, er ekkert í seinni tíð jafnist við. Þar runnu saman siðir kristinna og heiðinna manna, bæði frá austri og vestri, dulspeki og siðvenjur Egipta og Persa og nautnablandin fagnaðarlæti hinna bar- barisku kynþátta, sem kirkjan hafði snúið til kristni og tekið sér í faðm. En alltaf eru tímamir að breytast og mennirnir með, og að síðustu lærist mönn- um vonandi að „rannsaka allt“ og halda því einu, sem ,,gott er“. Sælust minning. Máttug fyrstu móðurorð mælt frá hjartagrunni á bernskuheima Blómastorð blika í minningunni. Sigurður Draumland. Fyrir nokkru gerðist það undur á Elli- heimilinu í Reykjavík, að gamai’.l maður, Gísli Gíslason, sem um margra ára skeið hefur staulazt áfram hálf farlama, með staurfót og berklasár á mjöðminni, varð skyndilega alheill. Hann var að hlýða á útvarpsmessu. Presturinn, séra Árni Sig- urðsson, talaði um lama manninn, sem Jesús læknaði. Mér er sagt að læknar gefi enga skýr- ingu á þessu fyrirbæri, en gamli maður- inn er ekki í neinum vafa eða vandræðum með skýringu. Það var Kristur, sem kraftaverkið gerði á honum. Eg átti tal við Gísla Gíslason, hlýddi á frásögn hans og virti hann nákvæmlega fyrir mér. Hann hoppaði upp á gólfinu, hristi sig allan og skók, sýndi mér hve liðugur hann var í liðamótum þess fótar, sem áður hafði verið stífur og ósveigjanlegur. Hann fór í krók við mig með öðrum fingrinum, sem hafði verið krepptur inn í lófann í mörg ár. Bæði prikin, sem hann hafði notað undanfarið til þess að styðja sig við, hanga uppi á þili í herberginu. Rúmgaflarnir í herberginu báru þess Ijós- an vott, hvernig gamli maðurinn var vanur að vega sig upp með því að grípa í báða rúmgaflana, öll málning var slitin af, þar sem hann var vanur að grípa til. Hann Ijómaði allur, er hann sagði frá og sýndi sig, og vegsamaði Guð, sem hafði gert fyrir hann mikla hluti. Mörg ár hafði gamli maðurinn ekki getað lesið neitt nema með gleraugum. Nú hefur hann fengið aftur það góða sjón, að gleraugun eru gersamlega óþörf. Þannig hefur hann allur orðið nýr maður. Sjálfsagt gerast alls konar undur á með- al manna, þótt þeim sé oft lítill gaumur gefinn og menn skilji þau ýmist illa eða alls ekki. Dr. Alexis Carrel segir: „í læknisstarfi mínu hef eg horft á menn, meðan bænin hefur lyft þeim upp úr sjúkdómi og þunglyndi, þegar allar aðrar lækningatiiraunir reyndust árangurslaus- ar. Menn kalla þetta kraftaverk. Þótt minna beri á því, á þetta sér stað á hverri klukkustundu í hjörtum þeirra, sem uppgötvað hafa, að fyrir bænina streymir til þeirra styrkjandi kraftur í lífsbaráttu þeirra“. Mennirnir í efri f>repum sfigans Það hefur löngum verið svo, að mikill hluti þeirra manna, sem standa í efri þrep- um mannfélagsstigans, hafa verið alþýðu manna slæmar fyrirmyndir. „Leiðtogar þínir leiða þig afvega“, sagði spámaður í ísrael, og Meistarinn þrumaði yfir „blindum Ieiðtogum“, hræsnurum, sem fullir væru alls konar óhreinindum, en þættust vera réttlátir menn. Þeir „lokuðu himnaríki fyrir mönnum“, sjálfir gengu þeir ekki inn og Ieyfðu ekki heldur öðr- um inn að ganga. — Með öðrum orðum. Þeir stóðu í vegi þess, að fólkið gæti fundið veginn til farsældar og hamingju. Þeir breyttu sjálfir illa og væru öðrum háskaleg fyrirmynd. Hverjir kenna bezt svall, drykkjuskap og ósiðsemi í veizlum höfðingjanna, ef ekki einmitt þessir menn? í kauptúni einu út; á landi, var verkstjóri að státa af því við konu, er sagði mér sjálf, að hann hefði nú „fengið áfengi fyrir sex hundr- uð krónur. Það fengju nú ekki allir“. Og svo var hann einnig að miklast af öðrum sómastrikum, sem oftast fylgja drykkju- slarkinu. Þessi maður er aðeins einn af hinum mörgu.

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.