Kvennablaðið - 19.06.1939, Page 14
Ávarp til kvenréttindafélaganna
frá forseta alþjóðasambandsins,
Margaret Corbett Ashby.
Kæru félagar. — Við höfum barist svo langvinnri og
stöðugri baráttu fyrir jafnrétli kvenna og karla, bæði
á sviSi löggjafar og lífsmöguleika, og erum orSnar svo
vanar seinaganginum á sigrunum og smáskamtalækning-
unni á meinunum, að eg held aS erfitt sé að sjá hreyf-
ingu okkar sem heild. Jafnvel á erfiðasta sviðinu, í
atvinnumálunum, koma þó nýir vegir, betri skilyrði
til að komast áfram og dálítill skilningur á þörfum
konunnar.
En eg held að við verðum að vakna til skilnings á
])eirri aðkallandi hættu, sem nú er orðin á ])ví, að ö 11
mannréttindi og alt það, sem mannkynið metur mest,
muni hverfa. Nú er ekki lengur að ræða um baráttuna
um jafnrétti við karlmenn, heldur um að berjast með
þeim, hliS viS hlið, fyrir málfrelsi, ritfrelsi, frjálsu út-
varpi, kvikmyndum og lislum, samvizluifrelsi, trúfrelsi,
skoðanafrelsi i stjórnmálum. Ollu því, sem við nefn-
um lýðfrelsi, er hætta búin, og miskunnarlausar ofsóknir
og rikiseinkræði breiðist út yfir NorSurálfuna. En því
að eins að lýSræðið ríki, geta konur vænst þess, að ná
fullum réttindum hins frjálsa manns.
Ef við getum ekki haldið réttindum vorum og aukið
])au, mun jafnrétti það, sem við hljótum, verða réttleysi
beggja kynja, jafnrétti við karlmenn, sem glatað hafa
frelsi sínu. Kvenréttindahreyfing nútímans getur ekki
haldið áfram að lifa, nema hún verði mjög þýðingar-
mikill þáttur i baráttunni fyrir frelsi einstaklingsins
og frjálsræði mannkynsins.
Kvennaskóli Húnvetninera á 60 ára afmæli á
þessn ári Samkoma 0« hátiðahöld fara fram i
skólahúsimt á Blönduósi dafíana 17. oíf 18. þ. m.
Glæsilegt minningarrit er gefið út, sem hefir inni
að halda sögu skólans, l>æði á Ytri-Ey og Blöndu-
ósi, m. a. itarlega skrá yfir nemendur og kenn-
ara skólans frá upphafi. Auk ])ess eru i minn-
ingarritinu 2 hátiðakvæði og fjöldi mynda.
Námsmeyjar og kcnnarar skóláns, sem nú eiga
heima í Reykjavik, liafa beitt scr fvrir fjár-
söfnun í ])ví skvni að kaupa handa skólanum
höggmynd af Elínu Briem, sent um laugt skeið
var forstöðukona skólans. Myndin er gerð af ein-
um nemanda skólans, frú Gunnfríði Jónsdóttur
frá Kirkjubæ i Húnavatnssýslu.
Kvenréttindafélagið skrifaði i vor kvenfélögum viðs-
vegar á landinu og mæltist til þess að þau stofnuSu
Mæðrastyrksnefndir, með líku fyrirkomulagi og mark-
miði og Mæðrastyrksnefndin i Reykjavik. Hafa nii kven-
félögin á Siglufirði, Akureyri og Norðfirði stofnað
mæSrastyrksnefndir, og munu nefndirnar á Akureyri og
Siglufirði vinna saman í sumar að því að koma á hvild-
arvikit fyrir mæður.
Húsmæðrafélagið hefir undanfarin þrjú sumur haft
sumardvöl fyrir mæður og börn úr Reykjavík í veiði-
mannahúsinu við Elliðaá. SíSastliðið sumar dvöldu þa
25 mæður og 05 börn þriggja vikna tíma hver. Félagið
hefir þessa starfsemi einnig i sumar. Hefir það mikinn
hug á að byggja þarna hús til viðbótar, svo það geti
tekið á móti fleirum og haft hvern hóp lengi tima i senn.
Yorboðinn, barnaheimilisnefnd alþýðukvenfélaganna,
sem undanfarin sumur hefir haft sumarheimili fyrir fá-
tæk Reykjavíkurbörn i Brautarholti á SkeiSum, eru nú
að hefja sumarstarf sitt. Hefir nefndin tekið á leigu
heimavistarskólann á FlúSum í Hrunamannahreppi og
ætlar í sumar að hafa báða skólana. Býst hún við að
gefa þannig liaft um 60 börn í cinu og veitt þeim minst
7 vikna sumardvöl.
5. landsfundur kvenna var haldinn i Reykjavík síð-
ustu vikurnar i júnimánuSi s.l. sumar. Auk þeirra full-
trúa, seni mættu frá hinum ýmsu kvenfélögum í Reykja-
vik, sátu fundinn æðimargir fulltrúar utan af landi.
Á meðal þeirra mála, sem fyrir voru tekin á fundin-
um, voru atvinnumál kvenna, mæðravernd og barna,
réttindamál kvenna almént og samvinnumál kvenna.
Var kosin milliþinganefnd til þess að athuga möguleika
á því að koma upp Kvenréttindasambandi. er næði til
alls Iandsins. f nefndinni eiga sæti 9 konur: ASalbjörg
SigurSardóttir, GuSrún Pétursdóttir, Hólmfriður Péturs-
dóttir. Laufey Valdimasdóttir. Jóhanna Egilsdóttir, TTýr-
leif Árnadóttir, María Maack, Jónína Guðmundsdóttir
og Svava Þorleifsdóttir. Nefnd þessi hefir haldið tvo
fundi og cr nú verið að semja fillögur, sem siðar verða
lagðar fyrir kvenfélögin.
Forsíðumynd: Frú Bríet Bjarnhéðinsdóltir áttræð.
Mætið á skemfun Kvenréttindafélagsins í Oddfellow-
húsinu í kviild 19. júní. Nokkrum kunnum kvenrétiinda-
vinum og andstæðineum kvenréttinda boðið á fundinn.
Aðgangur 2 krónnr (kaffi innifalið).
Skrifstofa Kvenréttindvfélags íslands
er í Þingholtsstræti 18, sími 4349.
Við undirritaðar óskum að gerast félagar
Kvenréttindafélagi íslands:
Nafn:
Atvinna:
Heimili: