Eining - 01.06.1948, Side 7
7
*
EINING
Þessar blómarósir eru brjóstumkenrianlegar, að þurfa að standa 3—5 Nýja húsið við Klapparstíg 26, Reykjavík. Skrifstofa Einingar er á
klukkustundir, sumar þeirra, undir lögreglu eftirliti, til þess að geta þriðju liæð.
fengið skó á fæturna. Þær eiga sjálfsagt enga bíla, en eru sennilega
eins konar gangnamenn Reykjavíkur og skófrekar.
I
i
Orsök krabbameina
Norskur yfirlæknir, Rolf Bull Engel-
stad, sem er doktor í læknavísindum,
flutti fyrirlestur á stjórnarfundi Nas-
jonalforeningens í Aalesund á árinu
1947, um orsakir krabbameina.
Þetta er langt og yfirgripsmikið er-
indi, en hóflegt, eins og vænta má af
vel lærðum manni. Þar fer ekki mikið
fyrir fullyrðingum. Læknirinn telur þó
nokkurn vegin víst, að matarhæfi geti
verið orsök krabbameins og telur upp
ýmislegt því til sönnunar, samkvæmt
rannsóknum og tilraunum á dýrum, sem
þó verði að taka með allri varúð.
„En um nautnameðulin, sem orsök
krabbameina“, segir læknirinn, er öðru
máli að gegna, „um það vitum við með
meiri vissu, en fæðutegundirnar. Að
minnsta kosti um hin tvö aðalnautna-
meðulin, tóbakið og áfengið. Öllum er
nú Ijóst, að tóbaksneyzlan, sérstaklega
reykingarpípan, orsakar oft krabba-
meini í vörum manna. Sennilegt er, að
öll tóbaksneyzla geti auðveldað myndun
krabbameina, ekki aðeins í vörunum,
heldur og í munni, koki og hálsi. Það
er heldur ekki óhugsandi að tóbaks-
neyzlan geti auðveldað krabbameins-
myndun í öndunarfærum, Iungnapípum
og lungum. Rannsóknir og tilraunir með
dýr hafa leitt í ljós, að tóbakið veldur
krabbameinum.
Því verður heldur ekki mótmælt, að
ofnautn áfengis auðveldar myndun
krabbameina. Rannsóknir hafa Ieitt í
ljós, að krabbamein í munni kemur
næstum aldrei fyrir hjá bindindismönn-
um, töluvert oftar hjá hófdrykkjumönn-
um, en hjá drykkjumönnum eru slík
krabbamein mörgum sinnum tíðari.
Dagleg reynsla bendir til þess, að of-
nautn áfengis orsaki einnig krabbamein
í hálsi og vélindi, og óhugsandi er ekki,
að það geti einnig valdið krabbameini
í maga. A sama tíma verður ofnautn
áfengis framarlega í röð krabbameins-
orsaka í öðrum meltingarfærum, og er
vert að hafa slíkt hugfast“.
Frekari fullyrðingar segist læknirinn
ekki vilja við hafa en þetta, að áreið-
anlega auðveldi mikil áfengis- og tó-
baksneyzla myndun krabbameina og
viss tilhögun í matarhæfi geti einnig
haft hættu í för með sér.
„Ef einhver spyr mig“, segir lækn-
irinn, „hvort ég haldi, að matarhæfi
og lifnaðarvenjur eigi nokkra sök á því,
hversu krabbamein hafa farið í vöxt,
þá svara ég hiklaust — já. Þessa skoðun
mína styður sú staðreynd, að tveir
þriðju hlutar samkynja krabbameins-
bólgu koma fyrir í meltingarfærunum“.
Þessu vilja menn
halda við
Reykjavíkurblöðin sögðu 6. og 7.
apríl s. 1. frá dómi, sem 4 ungir menn
höfðu hlotið. Mál þeirra allra var bæði
mjög raunalegt og ógeðslegt. Tveir
þeirra, Arnar Þórir Valdimarsson og
Geir Guðmundsson, höfðu ráðist á konu
að næturlagi og barið hana til óbóta.
Dómur þeirra virðist ekki þungur, þeg-
ar þess er gætt, að ef ekki hefði viljað
svo til, að konunni tókst að hrópa á
hjálp, hefði meðferð piltanna getað
kostað hana lífið. Þessir ólánsmenn voru
báðir ölvaðir.
Hinir tveir, bræðurnir Ólafur og
Óskar Gunnaússynir, örfuðust til ill-
verka við það, að á leið þeirra verður
ölvuð stúlka, sem þeir ginna upp í bíl
til sín, aka með hana afvega og nauðga
henni. Ósannað er, hvort piltar þessir
hafi ekki einnig neytt áfengis. En hvað
um það, stúlkan var ölvuð og var því
auðgert að ginna hana upp í bílinn.
Piltar þessir hafa nú verið dæmdir í
3 ára fangelsi og allháa fjársekt og rétt-
inda missi.
Þessi mál eru aðeins tvö af óteljandi
glæpuni, sem áfengisneyzlan orsakar.
Hvorugur Vérknaðurinn hefði verið
framinn, ef áföiigisneyzla hefði ekki
verið annars vegar, og þessum mann-
skemmdum vilja menn halda við í þjóð-
félögunum með ótakmarkaðri áfengis-
sölu. Bæði árásarmennirnir og þær, sem
fyrir illverkunum urðu, hefðu sloppið,
ef áfengið hefði ekki verið að verki.
Hvað hafa þeir menn á samvizkunni,
sem viðhalda áfengisviðskiptunum og
mæla þeim stöðugt bót?
Mennirnir með eitruðu
vopnin
Það er mjög auðskilið, að þeim mönn-
um, sem hafa lygar og róg fyrir helztu
vopn sín, sé uppsigað á kristindóm og
biblíu kristinna manna. Hún segir svo
margt óþægilegt í þeirra garð.
Til dæmis:
„Hroki er undanfari falls“.
Þetta fékk Hitler að reyna. Þetta fékk
Mussolini að reyna, sömuleiðis Japanar
og þannig hefur öllum hrokagikkjum
reitt af og svo mun enn fara.
„Þvaður sumra manna er sem spjóts-
stungur“, segir þar ennfremur.
Orð rógberans eru eitruð. Þau eru af
hinum vonda. Allir vita í hvers þjónustu
rógberinn er.
„Orð rógberans eru eins og sælgæti“,
segir trúarbók kristinna manna. Það er
því létt verk að iðka róg. Hann bragð-
ast mönnum eins og sælgæti. Hann „læs-
ir sig inn í innstu fylgsni hjartans“,
segir þar enn fremur. En rógurinn er
ekki að sama skapi haldgóður:
„Sannmálar varir munu ávalt stand-
ast, en lygin tunga aðeins augnablik“.
Þeir menn, sem verða fyrir aðkasti
vegna kristindómsins, mættu minnast
orða meistarans: „Sælir eruð þér, þá
er menn atyrða yður og ofsækja og tala
Ijúgandi allt illt um yður mín vegna.
Verið glaðir og fagnið, því að laun yðar
eru mikil í himnunum“.