Eining - 01.10.1949, Qupperneq 2

Eining - 01.10.1949, Qupperneq 2
2 E I N I N G Þeir sjá Þannig heitir mjög athyglisverð rit- gerð í Readers Digest, um það hvernig 840,000 Mormonar tryggja samfélag sitt gegn óhöppum og skorti. Flesíum þróttmiklum trúarhreyfing- um fylgir jafnan einhver sérvizka, jafn- vel ókostir, en líka miklir kostir. Þarf ekki annað en minna á Valdensana, fyrr á tímum, og síðar Huginottana, Hern- hutistana, Kvekara og ýmsar aðrar hreyfingar innan kristninnar sjálfrar. — S. D. Aðventistar hafa komið upp fyrir- myndar heilsuhælum víða um lönd. — Meþódistar urðu mestu siðbótamenn Englendinga, og nú eru það menn Ox- fordhreyfingarinnar, sem vinna mestu furðuverkin þar í landi og víðar, til efl- ingar samvinnu og bróðurhug, heiðar- leik og siðgæði. Mormonar eiga hrein- legustu borg í heimi, og samhjálparkerfi þeirra er einsdæmi. 1 áðurnefndri grein segir svo: Það brann allt til ösku hjá Klark Brinton. Hjónin voru við útivinnu og urðu ekki eldsins vör fyrr en um seinan. Strax eftir brunann komu menn, kon- ur og karlar, akandi í bílum sínum hina löngu leið frá Saltvatnsborginni að býli bóndans, og færðu hjónunum húsgögn, fatnað, sængurföt, eldhúsáhöld og mat- föng. Að kvöldi var búið að lagfæra allt í kjallara eins nágrannans og koma Brintonhjónunum þar fyrir í alls nægt- um. Morguninn eftir komu menn með vélar og tóku að hreinsa brunarústirn- ar, og eftir tíu daga stóð þar aftur full- smíðað hús, búið húsgögnum, allt mál- að utan og innan og vel frá öllu gengið. Brintonhjónin gátu ekki nógsamlega þakkað hjálpina, sem kom að mestu frá fólki, sem þau vissu engin deili á. Þau töluðu um að borga. Nei, ekkert þurfti að borga. Þetta var aðeins söfn- uður Mormona, sem breytti við þau eins og safnaðarmeðlimirnir óska, að aðrir breyti við þá. Á 12 árum hafa Mormónarnir eflt svo þessa samhjálp, sem þeir kalla Wel- fare Program, að allir í söfnuðum þeirra, 840,000, eru tryggðir gegn óhöppum og skorti. Þeir geta þolað nokkur vond ár og uppskerubrest, en látið sér líða vel, haft nægilegt að bíta og brenna, því að nú eiga þeir 110 miklar vöruskemmur, fullar af matvöru, fatnaði og álnavöru, eldsneyti, byggingarefni og jafnvel hinu nauðsynlegasta til sjúkrahjálpar. Þess- ar birgðaskemmur eru víðsvegar, en ekki á einum stað. Mest reyndi á Samhjálpina 1948, er Columbia-áin sópaði burtu öllu því, sem 50 fjölskyldur áttu. En strax var tekið að flytja nauðsynjar frá vöruskemmun- um handa þessum aðþrengdu fjölskyld- um sína um. Þá skorti þó ýmislegt smávegis, eins og t. d. svæfla. Umsjónarmaður Samhjálparinnar í borginni, Salt Lake City, sneri sér þá til sjálfboðaliðanna, og innan 6 klukkustunda voru 150 svæflar fullgerðir. Síðari hluta þessa sama dags voru 20 þungalestir ýmissa nauðsynja á leiðinni til hinna alls lausu manna. Þessi Samhjálp Mormónanna hófst á kreppuárinu 1936. Hver söfnuður átti að hefja undirbúning að hjálparstarf- semi. Söfnuðirnir eru um 1400 og um 600 manns í hverjum. Þeir gátu hagað þessari byrjun eftir því, sem þeim hent- aði bezt. Það gat verið framleiðsla á landbúnaðarafurðum, verksmiðj uiðnað- ur, fatagerð, niðursuðuvörur, búsáhöld, námuvörur og allt hugsanlegt. I þessa byrjunarstarfsemi átti svo að leggja fé úr sameiginlegum „föstu- og tíundasjóði", sem Mormonarnir kalla því nafni. Fyrir það átti að kaupa ýms- ar eignir og koma framleiðslu Sam- hjálparinnar á réttan rekspöl. Öll vinna skyldi þó vera ólaunuð sjálfboðavinna. Framleiðslunni átti svo að dreyfa og jafna niður í hinar ýmsu birgðaskemmur, sem sjálfboðarnir áttu einnig að reisa. Þar skyldu vörurnar geymast og vera ávallt til taks. Þessir 1400 söfnuðir draga nú saman slíkar birðar í stórum stíl, í fullum flutninga- vögnum. Kartöflur koma frá söfnuði í Idaho, lax frá Oregon, sápa frá Provo, áhöld frá Ogden, kvenblússur frá Los Angeles. Á þeim 12 árum, er Samhjálpin hef- ur verið að aukast og grípa um sig, hafa 670,000 Mormonar lagt til 16 klukku- stunda sjálfboðavinnu árlega til fram- dráttar starfseminni víðsvegar þar, sem söfnuðirnir eru. Og nú eru eignir Sam- hjálparinnar metnar á sex milljónir dollara. Þar af eru 18,000 ekrur rækt- aðs lands, 56 niðursuðuverksmiðjur, hveitihlöður, viðgerðaverksmiðjur, tvær sögunarmyllur, ein sápugerð, korn- mylla, skógerð, ostagerð og kolanáma. Vörur í geymslu eru metnar á hálfa aðra milljón dollara. Vinnubrögðin eru slík, að morgun einn sumarið 1948 komu t. d. 104 menn klukkan hálf fimm (þætti árla risið á íslandi), unnu í tvær klukku- stundir á sykurræktunarakri, settust svo í bíla sína og óku til sinna venjulegu starfa. Um uppskerutímann eru niðursuðu- verksmiðjurnar í fullum gangi dag og nótt. Sjálfboðaliðar koma og vinna í átta klukkustundavöktum". Eitt sinn var óskað eftir atvinnulausum mönnum í borginni til þess að rífa og brjóta nið- ur byggingu, hagnýta allt nothæft af efninu og flytja á annan stað og reisa þar byggingar, eins konar miðstöð Sam- hjálparinnar. Vinnulaun þessara manna áttu að vera landbúnaðarvörur, sem bændur höfðu aflögu. Á sex mánuðum reis þarna upp mikil birgðaskemma, verzlun, nokkrar verksmiðjur og bílskúr handa hinum stóru vörubílum Sam- hjálparinnar. Þessi fyrirtæki sjá um þarfir 165 safnaða (um 100,000 manna). Starfsmenn eru um 30 laun- aðir menn og 200 sjálfboðaliðar. Bygg- ingavinnuna framkvæmdu bændur og verzlunarmenn á þessu svæði, undir umsjón sérfróðra safnaðarmeðlima, smiða, múrara og raffræðinga. Mesta afrekið er kornhlaða (elevator), sem tekur 318,000 skeppur (bushels). — Hún var reist af 160 mönnum í eftir- vinnu. Haustið 1945 varð norðurhluti borg- arinnar Salt Lake City fyrir flóði, er flæddi um kirkjugarð borgarinnar, með- al annars, reif með sér grafsteina, tré og jarðveginn, jafnvel líkkistur, og skolaði öllu niður í íbúðarhverfi borgarinnar. Á einni klukkustundu fylltust sex götu- fjórðungar í íbúðarhverfunum af ýmsu, er flóðið reif með sér. Biskupinn útvarp- aði hjálparbeiðni til Samhjálparinnar. Fjögur þúsund menn gáfu sig fram, en ekki þurfti nema helming þess liðs. Á þeim árum, sem Samhjálpin hefur starfað, er gert ráð fyrir, að hún hafi veitt hjálp 430,000 Mormonum. Fyrst á lista eru gamalmennin, þar næst ekkj- ur og svo þurfandi Mormonar í Norður- álfunni. Frá því í desember 1945 hafa verið sendir til Evrópu 107 járnbraut- arvagnar af fóðurvörum, fötum og öðru slíku. Ef þjóðir gætu lært að efla þannig samhug og samstarf, bæði inn á við og út á við, þá kæmi fljótt annar svipur á veröldina. Ö1 og díengissýki Þegar ölframleiðendur í Noregi sóttu sem fastast að fá að framleiða útflutnings- ölið — Eksportölið, var reynt að telja mönnum trú um, að neyzla þess mundi draga úr verri drykkjuskap. Niðurstaðan hefur orðið hið gagnstæða og þetta sterka öl er orðið mjög illa þokkað í Noregi. í Svíþjóð er bönnuð framleiðsla á svo sterku öli, öllu því, sem kallast „skatte- klass 3“, það er bæði Bokköl og Eksportöl og fl., en samt er 12—13% af áfengissúkl- ingum Svíþjóðar, eða 7—800 öldrykkju- menn og hafa orðið áfengissjúklingar á að drekka hið „meinlausa" öl, sem talið er vera svo. Bindindismenn á íslandi þurfa að vera vel á verði og láta ekki hagsmunahyggju einstakra manna ná til þess að blekkja þjóðina. r 4 « 4 * 4

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.