Eining - 01.10.1949, Blaðsíða 10

Eining - 01.10.1949, Blaðsíða 10
10 E I N I N G 4 Verkefnin bíða Þeim, sem farið hafa til útlanda, verður oft tíðrætt um sumar skugga- hliðar stórborganna og hafnarbæjanna. Þeir hafa tekið eftir betlurum og alls konar vandræðalýð, sem ráfað hefur um göturnar og sett svip sinn á umhverfið. Hér á landi hefur, sem betur fer, verið lítið af þessu vandræðafólki, en þó höf- um við í Reykjavík nokkra tugi manna og kvenna, sem eru illa á vegi stödd og er full ástæða til að athuga, hvað hægt er að gera fyrir það. Afengisneyzla þjóðarinnar er nú orð- in svo mikil, að það hlýtur að vera öll- um ábyrgum mönnum mikið áhyggju- efni, en ekki hefur ríkisstjórnin og bæj- arstjórnin í Rej'kjavík viljað ganga á undan með góðu fordæmi og hætta að veita áfengi í samkvæmum, sem haldin eru á vegum þessara aðilja. En afleið- ingar hinnar gegndarlausu áfengis- neyzlu eru nú að koma betur og betur í ljós. — Á annað hundrað manns bíð- ur eftir því að taka út refsivist á Litla- Hrauni, Fangahúsið í höfuðborginni er oftast fullskipað og kjallari Lögreglu- stöðvarinnar allt of vel sóttur. Fjöldi heimila eiga um sárt að binda vegna bölvunar áfengis. Sú saga verður aldrei of oft sögð, en þarf þetta að vera svona ár eftir ár? Þurfum við, þessi fámenna þjóð, að sjá á bak tug- um, já, hundruðum ágætis manna og kvenna, sem verða árlega áfenginu að bráð? Er þessi ,,áfengisgróði“ ríkis- stjórnarinnar ekki of dýru verði keypt- ur, þegar hann kostar heill og velferð, líf og hamingju kvenna og barna, dreng- skap og manndóm ágætis manna? — Jú, vissulega getur þjóðin ekki lengur haldið svona áfram. Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd, að á- fengið er versti vágestur, sem þjóðina hefur gist. — Baráttan gegn áfengis- neyzlunni verður að halda áfram hik- laust og markvisst — enda er aðeins ein lausn til, og það er algert áfengisbann. í þessari grein verður ekki rætt frek- ar um þær ráðstafanir, sem gera þarf til að ná settu marki — aðflutnings- banni á áfengi, — en það er og verður sameiginlegt verkefni allra bannmanna á Islandi. í Reykjavík er nú allstór hópur manna og kvenna, sem hvergi eiga athvarf. — Fólk þetta hefur orðið áfenginu að bráð og sumt af því hefur árum saman lifað á bónbjörgum, sofið í portum, kálgörð- um og skúrum, þegar það var þá ekki í kjallara lögreglustöðvarinnar eða fangahúsum hér í bænum eða á Litla- Hrauni, — Þetta ólánssama fólk hefur ekki til neins að flýja. Það drekkur á- fengi, brennsluspíritus eða hárspíritus, allt það, sem getur slökkt þennan óseðj- andi áfengisþorsta. Sumt af því hefur glatað allri von um að úr rakni, sjálfs- traustið er farið og stundum drengskap- urinn um leið. Það vantar líka ekki, að menn dæmi það hart, mörgum finnst ekkert fyrir það gerandi, segja sem svo: „Þessir drykkjuræflar, eru bezt komnir í Steininum eða í kirkjugarðinum, við höfum ekkert við þá að gera. Þeir gátu hætt að drekka og þetta er þeim sjálf- um að kenna, hvernig komið er og lát- um þá sjálfa súpa seyðið af því“. — Því miður eru of margir menn, sem hugsa eitthvað þessu líkt. Ef svo væri ekki, þá væri fyrir Iöngu búið að taka á þessum málum með festu og einurð og þá þyrft- um við ekki í dag að glíma við vanda- mál, sem er mjög erfitt viðfangs. Það er erfitt að leysa það vegna skilningsleysis forráðamanna þjóðarinnar. Þeir ætlast til að þjóðin drekki áfengi fyrir milljón- ir, svo að þeir fái peninga til umráða og ráðstöfunar í þágu ríkisins, enda er nú svo komið, að um fimmti hluti tekna ríkissjóðs er áfengisgróði. Ein afleiðingin af áfengisflóðinu er virðingarleysið fyrir valdhöfunum, sem er að verða takmarkalaust — og er það illa farið. Það má oft deila um ráðstaf- anir ríkisstjórnarinnar, en ráðherrar skipa valda og virðingarstöður og þjóð- in á að sýna þéim þegnskap og virðingu. En um leið og virðingin fyrir valdhöfun- um þverr, þá þverr um leið virðing fyrir lögum og rétti, og alls konar lögbrot eiga sér stað. Peningaflóðið á stríðsár- unum á líka sinn þátt í þessu. Ástæðurn- ar geta verið margar, en þær breyta ekki þeirri staðreynd, að í dag er meira um þjófnaði og alls konar afbrot en nokkru sinni fyrr, ölvaðir menn vaða uppi og heimilislausir vesalingar eru að flækjast um götur Reykjavíkur nætur og daga. Það vantar stærra betrunarhús eða fleiri fyrir þá, sem brotið hafa lögin og dæmdir hafa verið til refsingar og þetta vita afbrotamennirnir og nota sér af. Og það vantar einnig vinnustofnun, þar sem hægt væri að koma þeim fyrir í vinnu, sem taka þurfa úí smærri refs- ingar eða eiga ógreidd barnsmeðlög, en nú er svo komið, að á fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir þetta ár, er gert ráð fyrir, að útgjöld bæjarins, vegna með- laga óskilgetinna barna, verði ein millj. króna. Gert er þó ráð fyrir, að innheimt verði 300 þúsund krónur, en sjö hundr- uð þúsund krónur fái borgarbúar að greiða með útsvörum. Á þessu þarf að ráða bót, og væri það spor í rétta átt að starfrækja vinnustofnun í sambandi við Korpúlfsstaðabúið, en þar eru næg verk- efni óleyst. Fyrir nokkru var kvartað við rann- sóknarlögregluna um, að piltur einn, sem staðinn var að stuldi í húsi einu hér í bænum, væri enn að flækjast þar og búast mætti við, að hann héldi hnupli * sínu þar áfram. — Rannsóknarlögregl- an svaraði: Við getum því miður ekkert gert við þenna pilt, það er enginn stað- ur til fyrir hann“. — Það vatnar upp- eldisstofnun fyrir pilta og stúlkur, sem hafa lagt fyrir sig hnupl og alls konar óknytti, og þessi uppeldisstofnun verður að taka til starfa áður en unglingar þess- ir eru orðnir að afbrotamönnum, sem þjóðfélaginu stendur mikil hætta aí. Þá eru það áfengissjúklingarnir, þess- ir aumustu allra, sem bjarga verður. En það verður ekki gert með því að setja þá í kjallara lögreglustöðvarinnar — um þenna kjallara mætti annars skrifa langt mál. Þarna eru 10 gluggalausar kompur, sem eru langt fyrir neðan allt, sem bjóða má mönnum, enda þótt drukknir séu. Kjallarinn er táknrænn um þá framsýni og dugnað, sem sýndur er af valdhöfunum í þessum málum. — Kjallarinn er alvarleg ásökun á hendur þeim mönnum, sem árum saman hafa látið það viðgangast, að hafa slíka ^ fangageymslu. Lögreglustöð höfuðborg- ar landsins er henni hvergi nærri sam- boðin — þar þarf að verða breyting á, en eftir hverju er verið að bíða? — Það hefur verið bent á stórar byggingar — Kveldúlfshúsin við Skúlagötu, sem munu hafa verið lítið notuð undanfarið — reynandi væri að fá þau fyrir lögreglu- stöð. Áfengissjúklinga má lækna, og nú er komið nýtt lyf, sem notað er með ágætum árangri, Antabustöflurnar, sem 4 margir munu kannast við. En enda þótt töflur þessar vinni stórvirki, þá þarf hæli fyrir suma áfengissjúklinga, en slíkt hæli vantar alveg. Að vísu liggur laga- frumvarp fyrir Alþingi, þar sem gert er ráð fyrir þess konar hælum í sambandi við geðveikrahælið að Kleppi, en það er að mínu viti mesta óráð. Hitt teldi ég heppilegra, að fólki þessu, áfengissjúkl- ingunum, sem þurfa lengri dvalarvist, ^ væri komið fyrir í stofnun í sveit, þar sem það gæti unnið að landbúnaðar- störfum og ýmsu öðru, en þó undir læknisumsjón. Hæli fyrir áfengissjúkl- inga vantar alveg, en það þarf að stofna og starfrækja hið allra fyrsta. Það er raunalegt en satt, að við höfum látið þessi mál öll afskiptalaus allt of lengi, en nú er svo komið, að hefjast verður jfc handa — aðgerðarleysi er þjóðarvoði. Öllu er takmörk sett, einnig því hversu lengi er hægt að vanrækja framkvæmd- ir í þessum vandamálum. Gísli Sigurbjörnsson. 4

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.