Eining - 01.11.1950, Qupperneq 11
Nýjasti skólinn
Einn hinn mesti frömuður krist-
innar menningar, Páll postuli, segir,
að þótt hann „talaði tungum manna
og engla“, þótt hann vissi „alla
leyndardóma og ætti alla þekkingu“,
og þótt hann „hefði svo takmarka-
lausa trú, að færa mætti fjöll úr
stað“, væri hann samt „ekki neitt“,
ef hann „hefði ekki kærleika“.
Slík kenning gildir fyrir alla menn
! á öllum tímum.
En svo má líka segja um okkur
nútímamenn, sem erum alltaf að
læra og læra, eyðum næstum hálfri
ævinni í skólanám, að við séum ekki
;; neitt, ef við lærum ekki það, sem
mestu máli skiptir fyrir hvern mann
og þjóðfélag hans.
Hvað er mest áríðandi fyrir okkur
Islendinga að læra, nú sem stendur?
1. Að sigrast á eigingirni og
flokkadrætti og vilja allir sem einn
maður hag og heill þjóðarinnar. Þá
vegnar líka hverjum einstaklingi vel.
2. Að temja okkur strangasta
heiðarleik í öllum viðskiptum. Svíkja
hvergi, vera sanngjamir, réttvísir og
ábyggilegir.
3. Að vera skylduræknir, trúir
og samvizkusamir við öll störf, hvort
heldur eru embættisstörf eða algeng
erfiðisvinna. Svíkja þar engan og
hafa ekki neitt af neinum.
4. Að temja okkur hollar lífs-
venjur: skynsamlega meðferð fjár-
mála, hófsemd og reglusemi í hverri
grein, stundvísi, orðheldni og hirðu-
semi.
5. Að gefa uppvaxandi æsku
holla leiðsögn með góðri fyrirmynd
í allri breytni.
Ef við lærum þetta ekki og höf-
um ekki þetta til að bera, þá má
Erlendar
bindindisfréttir
í höfuðstað Tyrkjaveldis, Istambul, hef-
ur ölvun við akstur verið hin mesta plága,
eins og víða annars staðar. En á þessu er
nú tekið hörðum höndum. Hver maður,
sem tekinn er ölvaður við akstur, er flutt-
ur á geðveikrahæli og hafður þar til rann-
sóknar um mánaðartíma. Prófessor Gökay,
:sem verið hefur forystumaður bindindis-
samtakanna í Tyrklandi, og nú er borgar-
stjóri í höfuðstaðnum, er kunnur tauga-
sjúkdómalæknir, og hann lítur þannig á
málið, að sá maður, sem kæruleysislega
ekur af stað í bíl, þótt hann hafi neytt
áfengis, þurfi að rannsakast nákvæmlega,
því að ekkert sé líklegra, en að eitthvað
sé bogið við sálarástand hans.
Þetta er öðruvísi en á íslandi, þar sem
menn fá væga dóma fyrir ölvun við akst-
ur, þótt þeir drepi menn.
★
Nágrannar okkar, Norðmennirnir, sækja
nú fast bindindisstarfsemina í landinu. —
Stórþingið hefur til meðferðar gagngera
breytingu á allri áfengislöggjöf Norð-
manna. Þar verður ákvæði um innflutn-
ing og sölu áfengis, um fræðslustarfsem-
ina, um hótel og veitingahús án áfengis-
veitinga og svo stendur til að endurbæta
á margan hátt löggjöfina um bílaakstur.
Bindindismálakerfi Norðmanna er all-
vel skipulagt og starfhæft. Fyrir utan
Stórstúku Noregs eru mörg önnur bind-
indisfélög og félagasambönd. En auk allra
slíkra samtaka, er svo Bindindismálaráð
rikisins í Osló, og undir þá skrifstofu
heyra yfir 600 áfengisvarnanefndir lands-
ins. Þá er Landsráð, sem sér um fræðslu
í skólum og víðar (Landsraad for edrue-
lighetsundervisning), og nýlega hefur tek-
ið til starfa stofnun, sem annast um vís-
indalegt starf í þágu bindindismálanna.
Hún gefur út sérstakt fræðslurit. Þá er
landsnefndin, sem er eins konar einingar-
stofnun allra bindindissamtaka lands-
ins. Sú nefnd gefur út blaðið Follcet. —
Einnig eiga Norðmenn bindindisskóla, en
stutt er síðan hann tók til starfa, og svo
eiga þeir nokkur drykkjumannahæli fyrir
bæði karla og konur, og er í ráði að fjölga
þeim.
Allfjölmennur og sterkur hópur stór-
þingsmanna stendur saman um bindindis-
málið. — Norðmenn una illa vaxandi
drykkkjuskap. Síðustu skýrslur þeirra
sýna, að öll áfengisneyzla þeirra 19b9 varö
7435.000 lítrar af 100% áfengi, en 1948
var hún 7.347.000. Aukningin síðastliðið
ár er því tæpir 100 þúsund lítrar af 100%
áfengi. Brennivínssalan minnkaði nokkuð,
en sterka ölið gerði það að verkum, að
áfengisneyzlan varð þó stórum meiri en
áður.
Nú hafa bæjar- og sveitarstjórnir, einn-
ig áfengisvarnarnefndir frá öllum fylkj-
um landsins krafizt þess, að sala sterka
ölsins sé algerlega bönnuð líkt og í Sví-
þjóð. Reynslan hefur orðið sú, að sterka
ölið hefur aukið mjög áfengisneyzlu yngri
kynslóðarinnai', en þar er viðkvæmasti
blettur þjóðarinnar.
★
í ,pressemeldinger‘ frá Osló er þess getið,
að frá París hafi fregnritari við „Ekstra-
bladet“ sent skeyti og getið þess, að pró-
fessor Darobert hafi nýlega veitt þær
upplýsingar, að áfengissýkin aukist nú
segja, að allt annað nám okkar sé
fánýtt.
Fyrir 30 árum var það svo, hvað
sem nú er, að maður, sem kunni öll
algeng sveitastörf, einnig alla al-
genga vinnu á sjó, og var auk
þess iðnlærður og vel að sér til
margra verka, dagfarsgóður, skyldu-
rækinn og heiðarlegur, hann var tal-
inn ómenntaður, en maður, sem fátt
kunni til verka, en hafði stundað
skólanám nokkur ár, hann var tal-
inn menntaður, og það þótt hann
væri stundum allt annað en fyrir-
mynd í reglusemi og skyldurækni.
Eitthvað eru menn nú teknir að
leggja annan mælikvarða á þetta,
þó glepur enn margt sýn. En við
skulum umfram allt leggja kapp á
að nema það fyrst og fremst, sem
gerir hvern mann að sönnun dreng-
skaparmanni og traustum þegni þjóð-
félagsins.
mjög í Frakklandi. Árið 1948 dóu úr
áfengissýki að meðaltali fjórir á dag, en
12 daglega úr sérstakri lifrarveiki (lever-
chirrosse). Ölvun við akstur eigi sök á
50% allra umferðarslysa, og 25% allra
slysa við vinnu sé einnig ölvun að kenna,
og 30% glæpa séu framdir af mönnum
undir áhrifum áfengis.
Enginn getur með sanni sagt, að slík
þjóð, sem býr við annað eins áfengisböl
og þetta, kunni að drekka. Af öllu Ijótu
í sambandi við áfengismálin, er það ef til
vill ljótast, að reyna að blekkja menn og
dylja, hve skaðlegar afleiðingar áfengis-
neyzlunnar eru allsstaðar.
★
Bindindisfélög bílstjóra á Norðurlönd-
um eru sameinuð í eitt allsherjar samband,
er heitir Nordislc Union for Allcoholfri
Trafik. Alls eru nú um 40 þúsund félagar
í þessum samtökum, og nú eru uppi raddir
um að koma á slíku alþjóða sambandi, er
berjist fyrir ströngu bindindi í sambandi
við alla umferð. Fyrsta alþjóðaráðstefnan
um bindindi og umferðamál var háð ný-
lega í Stokkhólmi. Þar mættu vísindamenn
frá Ameríku, bæði frá Bandaríkjunum og
Canada, fluttu erindi á þinginu og lögðu
drjúgan skerf til þess. Þeir höfðu með-
ferðis ný tæki til að mæla með áfengis-
magnið í blóði manna og sýndu, hvernig
tækin eru notuð.
í Svíþjóð ferst 600 manns árlega í um-
ferðaslysum, og talið er að þar af eigi
áfengi sök á 200 dauðaslysum.
EF EKKI
Ef menn eru ekki illa gefnir, en standa
samt gegn augljósum sannleika, þá eru
þeir annað hvort illa hugsandi eða á valdi
einhverra ilh'a afla.