Eining - 01.12.1951, Blaðsíða 2

Eining - 01.12.1951, Blaðsíða 2
2 EINING * oun FRAMHALD af bls. 1. tíð friðar og góðvildar, jólabarn- ið, sem skapaði nýtt mannkyns- sögutímabil, breytti svip lieims- ins, mati mannanna á lífinu og afstöðu þeirra til barnanna, og hvers annars yfirleitt. Alltaf hefur fæðing Krists bætt úr hinni mestu þörf mannanna. — Ijós keninga hans og fyrirmynd liefur skinið skært í myrkri menningarleysisins, veitt hugg- un, von og gleði. Og af hjarta syngjum við: „Er vetrar geisar stormur stríður, þá stendur hjá oss friðar- engilí blíður“. Og enn hvetja jólin allt mann- kyn til þess að, Snúa af hrokaleið háu og hallast að jötunni lágu. Á þessum jólum erum við ein- um áfanga nær liinum miklu jólum, þá allt mannkyn mun fagna friði, góðvild og öryggi. í fylling timans kemur þetta, eins og Guð sendi son sinn í „fylling tímans“. í þeirri von og vissu réttum við enn einu sinni hver öðrum hlýja hönd og segj- um: lecj jo i Sjúkrasamlög í Danmörku taka antabuslyfið á skrá Á stórstúkuþingi NIOGT í Odense voru í dag gefnar þær athyglisverðu upplýs- ingar, að hin nýja breyting á lyfjaskránni verði þeim mönnum að liði, sem vilja reyna að losna við hina óheillavænlegu áfengis- ílöngun. Samkvæmt hinum nýju reglum eru anta- bustöflurnar í flokki hinna „lífsnauðsyn- legu lyfja“. Sjúkrasamlögin greiða því framvegis 75% af verðinu. Talið er, að þetta muni hafa mikla þýð- ingu fyrir hina ógæfusömu menn, er þarfn- ast antabuslækninga, því að f járhagsástæð- ur margra þeirra séu erfiðar, en nú muni þeim auðvelt að njóta slíkrar læknis- hjálpar. Ekstrabladet í október 1951. Spjallað við börnin Hvað ætlar þú að verða, þegar þú verður stór? Þannig spyrja stundum fullorðnir menn börnin, og er þá oftast átt við, hvaða lífsstarf barnið ætli að kjósa sér, þegar þar að kemur. En hvað ætlar þú að verða, ungi vinur, hvort sem þú ert piltur eða stúlka? Ætlar þú að verða mannkostamaður, sannur maður, heiðarlegur og góður maður? Líttu á myndina af fiðrildinu. Því miður gat þetta ekki verið litmynd, en hefði þurft að vera það. Þessi fiðrildi, sem eru sum furðustór, eru undursam- lega falleg. Eg hef einu sinni séð mikið safn af þessum skrautlegu og stóru fiðr- ildum, eg sá það í Ameríku, og eg gleymi aldrei þeirri fegurð og litauðgi. En nú skuluð þið, börnin góð, athuga þetta fiðrildi dálítið nánar. Þið hafið ef til vill einhvern tíma séð loðið og luralegt lítið kvikindi skríða á götu eða á laufblaði. Þessi litlu kvikindi geta ver- ið mjög mismunandi. Við skulum gera ráð fyrir, að við séum komin eitthvað suður í lönd og stöndum hjá grænu tré og sjáum á einu blaði þess einmitt þetta loðna og luralega kvikindi. Það er ljótt, hefur enga limi, tvö stirð augu, er sjá aðeins beint fram undan sér, enga fæt- ur, en aðeins eins konar sogskálar, sem það mjakast áfram á, munnurinn er stór og það rífur í sig fyrnin öll af græn- um blöðum, svo að á einum sólarhring etur það meira en tvöfalda líkamsþyngd sína, og á 30 dögum er það orðið 9 þúsund og 5 hundruð sinnum þyngra en það var við fæðinguna. Það étur svona mikið af grænu blöðunum til þess að vaxa og búa sig undir undursamlega framtíð, og ef ekkert ólán hendir það, þá á það eftir að verða að stóru, ákaf- lega skrautlegu og fallegu fiðrildi. — Fiðrildið er eins fagurlega gert, eins og luralega lirfan er ljót. Nú er það búið að fá spengilegan kropp, sex liðuga fætur, augu, sem sjá í allar áttir og svo hina dásamlega skrautlegu, stóru og fallegu vængi. Það getur nú flogið víðs vegar og séð sig um, en lirfan gat lítið séð af heiminum. Það flýgur nú af einu blóminu á annað og nýtur þar gæðanna. Þetta fiðrildi er eitt af furðuverkum nátt- úrunnar. — En sagan er ekki öll sögð enn. Litla loðna og luralega lirfan, sem við vorum að tala um, er í mjög mikilli hættu einmitt á þessu þroskastigi, þeg- ar hún verður að éta svo mikið til þess að vaxa og geta átt vísa glæsilega fram- tíð. Og nú skulið þið heyra? Það er sér- stök flugnategund, sem situr um að geta setzt á loðna búk lirfunnar, og ef hún fær að vera þar í friði, þá stingur hún hárfínum frjóöngum inn í skinn lirfunn- ar og lætur agnarsmá egg þar inn fyrir húðina. Þessi egg verða svo að litlum maðki, sem á sínum t'ma tekur að eta og tæra lífsforða lirfunnar, og fer þá svo hörmulega, að í stað þess að verða hið undurfagra og skrautlega fiðrildi, sem flogið getur um loftin blá, verður lirfan aðeins ormahreiður og aldrei neitt annað, og þannig líður hún undir lok. Þannig getur líka farið fyrir hverju barni, ef illa tekst með uppeldið. — I hverju barni er engill, en það getur far- ið svo, að sá engill deyi og í stað hans komi eitthvað ljótt, eitthvað andstyggi- legt. Eins og lirfan þurfti að eta mikið til þess að vaxa og geta átt glæsilega framtíð, eins þarf barnið að læra margt og mikið, læra allt nytsamlegt og fallegt til þess að geta orðið sannur maður, fallegur og góður maður í orðsins sönn- ustu merkingu. En svo er það hitt, sem hverju barni og hverjum ungling ríður mest á, það er að verjast öllu ljótu, öllu sem getur spillt sálarlífi þess. Eins og lirfan getur orðið dásamlega fagurt fiðrildi eða að- eins ormahreiður, þannig getur barnið líka orðið á sínum tíma yndislegur full- orðinn maður, eða þá ómerkilegur mannræfill. Ef barnið og unglingurinn leyfir ljótum hugsunum að festa hjá sér rætur, venur sig á Ijótt orðbragð, á það að skrökva, vera óráðvant og læra ljóta siði af hinum og öðrum, þá getur farið svo, að barnið og unglingurinn verði eins konar hreiður Ijótleikans, eins kon- ar ormabæli, en aldrei mannkosta mað- ur og aldrei gæfubarn. Þetta getum við lært af sögunni um fiðrildið. Reynum þá að muna vel sög- una um fiðrildið og forðast hættuna, miklu hættuna, sem getur eyðilagt alla framtíð okkar. P. S. T 1 í * í > d

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.