Eining - 01.10.1953, Qupperneq 5
EINING
5
Dr. TJuno Tuominen.
Finnska bindindis-
hreyfingin 100 ára
I Helsingfors í Finnlandi var mikið
hátíðahald dagana 26.—28. ágúst s. 1.,
^ og var það 100 ára afmælishátíð
finnsku bindindishreyfingarinnar, sem
upprunalega gekk undir nafninu Nyk-
terhets Vánner, en heitir nú Raittiuden
Ystávát.
Aðalhátíðarhaldið fór fram í húsa-
kynnum háskólans, og tók þátt í því
margt stórmenni, forseti Finnlands, ráð-
herrar, sendiherrar erlendra ríkja, al-
'í ----------------------------------
^ Frá Norðurlöndunum fjórum hefur
borizt allmikið af bréfum, blöðum og
tímaritum, er fjalla um norræna bind-
indisþingið í Reykjavík, landið og þjóð-
ina. I þessum bréfum og blöðum er
víða farið mjög fögrum orðum um mót-
tökurnar á íslandi, og megum við vel
við una. Bréf þessara manna eru mörg
framúrskarandi elskuleg, greinarnar í
blöðunum mjög vingjamlegar, og sum-
ar þeirra með glæsibrag. Má þar t. d.
nefna skrif Finna í sænsku blaði, sem
gefið er út í Finnlandi og heitir: Hjem-
bygden. Tveimur greinum í blaðinu
fylgja myndir frá Reykjavík, Geysir,
Heklu, og fleiri stöðum á landinu, einn-
ig myndir af forsetanum, dómsmálaráð-
* herra og forseta norræna bindindis-
þingsins.
Þriggja dálka yfirskrift greinanna er:
„Ljómandi norrænt bindindisþing í
Reykjavík“, og hefst önnur greinin á
orðunum: „Frábær gestrisni og dásam-
leg kynnisför . . . Vissulega var okkur
kunnugt um ísland sem land sagnanna,
^ en við hinu höfðu víst ekki allir búizt,
að kynnazt þar sögueyjunni sem landi
nútímamenningar . . . Eftir dásamlega
næturhvíld á Hótel Garði, dró eg
þingismenn og forustumenn á sviði fé-
lags- og menntamála, og svo margir
forvígismenn bindindismála á Norður-
löndum.
Margir aldurhnignir brautryðjendur
bindindismála á Norðurlöndum voru
heiðraðir við þetta tækifæri, svo sem
landshöfðingjar, skólastjórar æðri
skóla, prófessorar og forstjórar bind-
indissamtaka. Þar á meðal var danski
öldungurinn, Adolph Hansen.
Framkvæmdastjóri finnsku bindindis-
samtakanna, sem þarna áttu 100 ára af-
mæli, dr. Uuno Tuominen, var einn er-
Iendu gestanna okkar á norræna bind-
indisþinginu í Reykjavík, einnig forseti
hátíðarhaldanna, dr. Rafael Holmström,
og verða þeir okkur minnisstæðir. —
I sambandi við 100 ára afmælið kom
út bók eftir dr. Uuno Tuominen, og
heitir hún Raittiuden Ystávát 1853—
1883.
Finnar eru mikil dugnaðarþjóð á
flestum sviðum, margreyndir í þreng-
ingum og frægir fyrir heiðarleik í þjóða-
viðskiptum. Af hinum mörgu erlendu
gestum okkar á norræna bindindisþing-
inu í Reykjavík, sem skrifað hafa um
það í erlend blöð og tímarit, hafa engir
gert það af meiri alúð, hlýleik og snilli
en einmitt Finnar. — Eining biður bind-
indinsstarfi þeirra, og þjóðinni sjálfri,
allrar blessunar.
gluggatjaldið frá og sá þá sólroðna,
hreinlega og fagra borg. Sagt er, að það
sé fögur sjón að sjá Island stíga upp úr
hafinu, og fyrir mig var fyrsta sýn af
landinu óviðjafnanlegt augnayndi. —
Venjulega fer ímyndunaraflið villigötur,
er menn reyna fyrirfram að gera sér
Ijóst útlit annarra landa, að minnsta
kosti er óhætt að segja það um ísland“.
Þá segir greinarhöfundur, að Islend-
ingar hafi skarað fram úr öllu venju-
legu við slík þinghöld í því, að auka á
hrifningu gestanna með degi hverjum:
„Det var som om sensationsgraden —
det fantastiska man fick vara med om
— skulle ha ökast för varje dag“.
Reformatorn, aðalmálgagn Góðtempl-
arareglunnar í Sviþjóð, birti einnig
langa ritgerð, og segir frúin, sem grein
þá skrifar, að við Mývatn hafi náð há-
marki aðdáun sín á íslenzkri náttúru-
fegurð.
Bláa bandið sænska, birti einnig
greinar og myndir frá förinni til Islands.
Þar er sérstaklega hitaveitan, Geysir,
Gullfoss, aflstöðvarnar við Sogið og
Hveragerði gert að umtalsefni af undr-
un og aðdáun.
Framhald.
Soffía Jónsdóftftir
áftftræó
Sjöunda júlí s. 1. átti Soffía Jóns-
dóttir, Laugavegi 18 í Reykjavík, átt-
ræðisafmæli. Þann mánaðardag er hún
fædd 1873, að Syðri-Ey á Skagaströnd.
Til Reykjavíkur fluttist hún 1910 og
hefur átt þar heima síðan. Árið 1897
giftist hún Sigurbirni Jóhannessyni, sem
margir eldri Reykvíkingar kannast við.
Hann var um langt skeið starfsmaður
við verzlun Jes Zimsens. Þeim hjónum
varð þriggja barna auðið.
Um leið og frú Soffía Jónsdóttir átti
áttræðisafmæli, átti hún einnig 40 ára
templaraafmæli. Árið 1913 gekk hún
í stúkuna Verðandi og var félagi henn-
ar 20—30 ár, var svo ein af stofnend-
um stúkunnar Reykjavík, sem ekki varð
mjög langlíf, en gerðist því næst félagi
í stúkunni Einingin. — Það var árið
1947.
Soffíu Jónsdóttur er sennilega engin
þökk*í því, að Eining sé að minnast af-
mælis hennar eftir dúk og disk. En það
ber oft við, að konur, sem innt hafa af
hendi langa og mikla þjónustu á ýmsa
lund, gleymast stundum, þegar verið
er að halda til haga vel unnum verkum
manna. Soffía er mjög væn og vel gef-
in og hefur verið mesta dugnaðarkona.
Hennar langa þátttaka í bindindisstarf-
inu er því vissulega orðið mikið þjón-
ustustarf, sem á hinar beztu þakkir skil-
ið. Trúmennskan og festan í öllum slík-
um málum er alltaf ómetanleg. Það eru
einmitt þeir, sem trúir eru allt til hinztu
stundar, er hljóta „kórónu lífsins“. —
Lífið krýnir þá sigursveig viðurkenning-
ar og þakklætis, og launa hinna grand-
vöru. P. S.
Einar Jónsson
myndhöggvari
Hátt þinn andi hefur sig,
hlýtur sœtiS fyrsta.
Kynslóðirnar krýna þig
konung dýrra lista.
Pétur Sigurðsson.
Frá erlendii fulltrúiiiiuiii á
norræna bindindisþinginu