Eining - 01.10.1953, Blaðsíða 7

Eining - 01.10.1953, Blaðsíða 7
EINING 7 « « « « * « « « « ^Jfin heilcic^a. aíóÉ... <K Lítið, bræður, til köllunar yðar: Þér eruð ekki margir vitrir að manna dómi, ekki margir mátt- ugir, ekki margir stórættaðir; heldur hefur Guð útvalið það, sem heimurinn telur heimsku ,til þess að gera hinum, vitru kinnroða, og Guð hefur út- valið það, sem heimurinn telur veikleika, til þess að gera hinu volduga kinnroða. Og hið ógöfuga í heiminum og hið fyrirlitna hefur Guð útvalið, og það sem ekkert er, til þess að gera það að engu, sem er, til þess að ekki skuli neitt hold hrósa sér fyrir Guði. En honum er það að þakka, hvað þér eruð orðnir fyrir samfélagið við Krist Jesúm. En hann er orðinn oss vísdómur frá Guði, bæði réttlæti og helgun og endurlausn; til þess að, eins og ritað er: sá sem hrósar sér, hrósi sér í drottni. Og er eg kom til yðar, bræður, og boðaði yður leyndardóm Guðs, kom eg ekki heldur með frá- bærri miælskusnilld eða speki; því að eg ásetti mér að vita ekkert á meðal yðar nema Jesúm Krist og hann krossfestan. Og eg dvaldist á meðal yðar í veikleika, ótta og mikilli angist. Og orðræða mín og prédikun mín studdist ekki við sannfærandi vís- dómsorð, heldur við sönnun andar og kraftar, til þess að trú yðar væri eigi byggð á vísdómi manna, heldur á krafti Guðs. 1. Kor. 1, 26—31; 2. 1—5. Vilja menn vita hií rétta? Okkur er kennt, að sannleikurinn geri menn frjálsa og ávallt skuli hafa það, er sannara reynist. Fátt er hryggilegra en það, hve góðum málum er oft snúið til hins verra með ósannindum og blekkingum. Það var ekki aðeins á dögum Páls frá Tarsus, að menn höfðu „umhverft sannleika guðs í lygi“. Lygin hefur löngum verið eitt skæðasta vopn óheilla- valdanna. Hér skal aðeins vikið að einu margþvældu deilu- efni manna og sögð furðuleg frétt. Einn af þeim mönnum, sem eg hitti á áfengismálaþinginu í París s. 1. sumar og varð upphaf að nýjum samböndum við önnur lönd, var Englendingurinn H. Cecil Heath. Hann er lögfræðingur og hefur verið forseti öflugustu bindindismanna- samtakanna í brezka heimsveldinu, The United Kingdom Alli- ance. Að þeim samtökum hafa staðið margir nafnfrægir menn og háttsettir í þjóðfélaginu. Auðvitað gefur þetta samband út fræðslurit alls konar og einnig árbók, hið merkasta plagg, en hana hef eg eitt sinn kynnt í útvarpserindi. Eg er nýbú- inn að fá eitt fræðslurit sambandsins, er heitir Research student service. 1 þessu riti er örstutt grein eftir frú að nafni D. Leigh Colvin. Píún er forseti Kristilegs bindindissambands kvenna í Bandaríkjunum. Frúin segir: „Á forsetakosningadaginn 4. nóvember 1952 tók eg mér í hönd tímarit, er fjallar um áfengismálin, og þar las eg þessar setningar: Aðeins síðastliðið ár hefur lögreglan lagt hald á 20,402 ólögleg áfengisbruggunartæki, er gátu framleitt meira áfengi en allt það magn, er framleitt var á löglegan hátt árið 1951. Gera má ráð fyrir, að þjónar laganna hafi ekki haft hendur í hári allra lögbrjótanna og því ekki náð öllum ólöglegum bruggunartækjum, en þau, sem tekin voru framleiddu meira áfengi en öll löglega frarWleiðslan var, og þetta er eftir afnám áfengisbannsins. Á bannárunum náðu menn eingöngu í ólög- legt áfengi, nú hafa þeir allt hið löglega áfengi og til viðbótar hið ólöglega, sem er hinu meira. Þannig dafna leynibrugg- ararnir í skjóli hinnar alfrjálsu áfengisverzlunar, og þó var stöðugt hamrað á því á bannárunum, að afnám bannsins mundi uppræta alla ólöglega áfengisframleiðslu og sölu. Lög- lega áfengissalan tók úr vösum landsmanna árið 1952 níu milljarða dollara. Bætið svo öðru eins við fyrir kaup á ólög- legu áfengi, og það er þetta, sem magnar glæpalíf, fátækt, sálsýki og alls konar spillingu, sem nú veikir þjóðlífið. Þannig getum við séð hvílíkt skaðræði afnárr^ áfengisbannsins hefur reynzt“. Þessi eru þá orð frúarinnar. En ætli menn geri sér ljóst, hvílík upphæð fjármuna það er, sem Bandaríkjaþjóðin ver til áfengiskaupa, níu milljarðar dollara fyrir löglegt áfengi og annað eins eða meira fyrir ólöglegt áfengi. Hvað er einn milljarður? Við heyrðum áðan í útvarpsfrétt (24. apríl), að Atlantshafsbandalagið ætlaði að verja 900 milljónum dollara til ýmissa mannvirkja í Vestur-Evrópu. Þetta er ekki einn milljarður, á vanta 100 milljónir dollara. En Bandaríkja- þjóðin eyðir níu milljörSum á ári til áfengiskaupa, auk ólög- lega áfengisins. Hve m(arga kolla getur allt þetta áfengi rugl- að, hve mörgum umferðaslysum valdið og hve mörgum glæp- um? — Hyldýpi, botnlaust hyldýpi. Vilja menn nú vita hið rétta? Hið rétta er þá þetta, að ólög- leg áfengissala þrífst betur í skjóli frjálsrar áfengisverzlunar en þegar áfengisbann ríkir. Stóreignamennirnir og auðkýfingarnir í Bandaríkjunum, sem börðust harðast gegn banninu til þess að létta af sjálf- um sér sköttum, eyddu í þá baráttu mörgum árum og miklu fé og höfðu til umráða stórblöð og tímarit, einnig samstarf glæpamannakerfanna, lofuðu því hátíðlega í blöðum sínum, í ræðu og riti, að áfengisknæpan skyldi aldrei koma aftur, þótt bannið yrði afnumið, og þá skyldi einnig vera úti um alla ólöglega áfengisgerð og sölu, en það voru varla liðnir mán- uðir frá afnámi bannsins, er þessir sömu menn mæltu með því, að áfengisknæpan (barinn) yrði endurreist, og nú hafa þjóðirnar fengið fulla raun fyrir því, og ekki sízt Bandaríkin, hversu prýðilega leynisala og leynibrugg þrífst í skjóli hinnar frjálsu áfengissölu. Allur lýður veit, að þjónar og málsvarar áfengisneyzlunnar hafa vondan málstað, og þess vegna verða þeir að sækja sitt mál með ósannindum og blekkingum. Á öðru eiga þeir ekki völ, en blekkingunum hefur löngum heppnazt vel í heimi vanþroska mannkyns. Pétur Sigurðsson. Það er lítilmannlegt að drekka

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.