Eining - 01.08.1957, Blaðsíða 14
14
EINING
Isafoldarprent-
smiðja átftaftíu ára
Þar sem júní-júlí-blað Einingar var
svo langt komið í prentun, er Isafoldar-
prentsmiðja átti þetta merkisafmæli,
hefur blaðinu ekki gefist færi á að flytja
prentsmiðjunni heillaóskir fyrr en nú.
Eining hefur frá upphafi skipt við ísa-
fold, og ritstjóri blaðsins hefur skipt við
prentsmiðjuna hátt á þriðja áratug. Við
færum því stjórn hennar og starfsmönn-
um beztu þakkir fyrir góð viðskipti og
gott samstarf. Þótt mannaskipti hafi
stundum orðið, hefur þá komið góður
maður í góðs manns stað.
ísafoldarprentsmiðja er þjóðinni að
góðu kunn. Hún hefur verið allmikið at-
vinnufyrirtæki og menningarfrömuður,
því að ekki eru þær fáar ágætisbækurn-
ar, sem hún hefur sent frá sér á þessum
átta áratugum, og ýms víðlestnustu blöð
landsins hefur hún einnig prentað á
þessum liðnu áratugum. Hún hefur frætt
þjóðina og skemmt henni einnig. Afköst
hennar hafa verið mikil og hún hefur
notið góðrar forustu. Hinn þjóðkunni
sæmdarmaður Björn Jónsson, var upp-
hafsmaður hennar. Nafni hans mega
bindindismenn lengi halda á lofti, því
að tök hans á máli þeirra voru ósvikin
og örugg. Eftirmenn hans við stjórn ísa-
foldarprentsmiðju voru svo Ólafur
Björnsson, Herbert Sigmundsson, Gunn-
ar Einarsson og Pétur Ólafsson.
Prentsmiðjan var stofnuð 16. júní
1877 og átti því áttatíu ára afmæli 16.
júní sl. Saga hennar er merk, en verð-
ur ekki rakin hér, það hafa dagblöðin
gert. Hér er aðeins flutt heillaósk. Frá
lítilli en farsælli byrjun hefur vegur ísa-
foldarprentsmiðju vaxið og býr hún nú
í hárri og veglegri höll, sem búin er mik-
illi afkastagetu. Verði þá afköst hennar
þjóðinni til sem mestrar farsældar á
komandi dögum.
P. S.
-------ooOoo------
Fordæmi ríkissftjórn-
arinnar 17. júní
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní sl. tók
ríkisstjórin á móti gestum sínum í ráð-
herrabústaðnum við Tjarnargötu. Þar
voru engir áfengir drykkir veittir, en
gestum þó vel fagnað og vel veitt. Þetta
vakti fögnuð og þakklæti okkar bind-
indismanna, og við erum ekki fámennir
í Iandinu.
Sömuleiðis lét borgarstjórinn í Rvík
engar vínveitingar eiga sér stað í veizl-
um þeim í Melaskólanum, er bæjar-
stjórnin hélt við heimsókn konungshjóna
Danmerkur og Svíþjóðar, enda fóru
veizlur þær fram í skólahúsi, en hvort
sem það réði eða annað, er fordæmið
gott og á skilið þakkir.
Vissulega þyrfti húsbóndinn á hvaða
heimili sem er, að gefa jafnan hið eftir-
breytnisverða fordæmi. Vonandi er, að
stjórnarvöld, bæði hér á landi og víðar,
taki að gera sér ljósa ábyrgðina, sem á
þeim hvílir í þessum sökum. Áfengis-
neyzlan er eitt mesta mein allra menn-
ingarþjóða og gegn henni ættu þeir fyrst
og fremst að vinna, sem eru leiðtogar
þjóðánna, ef þeir vilja komast hjá ádeilu
spámannsins: ,,leiðtogar þessa fólks
leiða það afleiðis, og þeir, sem láta leiða
sig, tortímast".
Önnur orð spámannsins mættu vera
leiðarstjarna hverjum þjóðarleiðtoga:
„Þegar konungurinn ríkir með réttlæti
og höfðingjarnir stjórna með réttvísi, þá
verður hver þeirra sem hlé fyrir vindi
og skjól fyrir skúrum, sem vatnslækir í
öræfum, sem skuggi af stórum hamri í
vatnslausu landi“, — með öðrum orð-
um skjól og vernd. Og sígild eru orð
spekingsins: ,,Ekki sæmir konungum
að drekka vín, né höfðingjum áfengur
drykkur“.
Þetta er markmiðið sem keppa ber
að.
-------00O00—-----—
Afengisneyzla og
kynsjúkdómar
Læknir nokkur, Leo Rosenhouse að
nafni, hefur þann starfa á vegum heil-
brigðismálaráðuneytis í Californíu, að
rannsaka samhengi áfengisneyzlunnar
og kynsjúkdómanna. I júní 1956 ritaði
læknirinn grein um þetta í rit, er heitir
Sexology. Sem dæmi um hinar hroll-
vekjandi fylgjur áfengisneyzlunnar,
nefnir hann konu, er tekin var til lækn-
ingar, haldin syfílís. Hún var og áfeng-
issjúklingur. Kona þessi hafði þó ekki
stundað lauslæti, en áfengisneyzlan
hafði auðvitað lamað varnir hennar og
oft mundi hún ekkert með hverjum hún
hafði verið í ölvunarástandi sínu. Hún
mundi þó glöggt, að einn daginn hafði
hún haft mök við níu karlmenn. Fáa
gat hún nafngreint, en við þrjá var þó
Ein af hverjum fimm lauslœtisdrós-
anna, er greinin skýrir frá, er áfengis-
sjúklingur. Sú dökka heldur á glasinu.
hægt að hafa samband og allir voru þeir
sýktir af syfílís. í ölvunarástandi hafði
þessi kona, segir þar, sennilega sýkt
svo sem 50 menn, sem svo aftur út-
breiða kynsjúkdóminn meðal þjóðarinn-
ar.
Læknirinn segír, að tvær milljónir
manna, karla og kvenna í Bandaríkjun-
um, njóti læknisaðstoðar sem syfílís-
sjúklingar, og gerir ráð fyrir að ein
milljón manna til viðbótar gangi með
kynsjúkdóma, án þess að þeir njóti
nokkurrar læknis hjálpar.
Þá er nefndur annar læknir, dr.
Nicholas J. Fiurmara, sem í ríkinu
Massachusetts rannsakaði mál slíkra
sjúklinga, það voru 665 stúlkur, sem
höfðu haft mök við 603 hermenn, er
gengu með kynsjúkdóma, og 907 stúlk-
ur, er samband höfðu haft við sýkta
borgara. Oftast var staðurinn einhvers
konar knæpa, er leitt hafði þessi hjú
saman.
Af 1402 konum í San Francisco, sem
kærðar voru fyrir vændislifnað, var
fimmta hver áfengissjúklingur. Þannig
ræktar áfengisneyzlan alls staðar ólifn-
að, eymd, sjúkdóma og glæpi.
--------ooOoo--------
Nœsfum hálftannað hundrað
í einu
Dansk Good Templar skýrir frá því, að í
Timraa í Svíþjóð hafi 142 ungmennum ver-
ið veitt inntaka í stúkur í einum hóp, hafi
það verið hin fjölmennasta inntaka, sem
átt hafi sér stað þar í landi. Hópur þessi
skiptist milli fimm stúkna í hyggðarlaginu.
Fimm liundruð manns var við inntökuna.
Petta var uppskera af undanförnu starfi
margra reglufélaga.
•----ooOoo-----
Reykingar meginorsök
lungnakrabba
í skýrslu brezka heilbrigðisrannsóknar-
ráðsins, sem lögð var fram í neðri deild
hrezka þingsins í dag, segir, að tóbaksreyk-
ingar séu meginorsök krabhameins í lung-
um. Átjándi hver Breti látist nú úr lungna-
krabha. Segir í skýrslunni, að þetta sé niður-
staða langra rannsókna í mörgum löndum á
sambandi reykinga og krabbameins. Á veg-
um ráðsins er nú að hefjast mikil herferð
í Bretlandi til þess að kynna fólki niður-
stöðurnar og gera lýðum ljóst hvað tóbaks-
reykingar geta haft í för með sér.
Segir í skýrslunni, að rannsóknirnar hafi
leitt það í ljós, að krabbamein í lungum sé
40 sinnum algengara meðal mikilla reyk-
ingamanna en meðal hindindismanna á tó-
bak. Sígarettureykingar virðist vera skað-
legastar.
Á árunum 1945—55 hefur dánartala
þeirra, er látizt hafa af völdum lungna-
krabba meira en tvöfaldazt. Álíta brezkir
sérfræðingar, að í náinni framtíð muni einn
af hvefjum átta reykingamönnum, sem lát-
ast, deyja úr lungnakrabba, en hins vegar
segja þeir, að aðeins einn af hverjum 300,
sem ekki reykja, látist úr þessum sjúkdómi.
— Morffunblaðið 28. júní 1957.