Eining - 01.11.1960, Blaðsíða 1
18. árg.
Reykjavík, nóvember 1960
11. tbl.
Svíþjóðarför
ii
Fyrsta kvöld áfengismálaþingsins í
Stokkhólmi vorum við séra Kristinn
Stefánsson falaðir á tvo sérfundi, er
vera skyldu á sama tíma. Ég kaus
fund alþjóðasambands bindindisfélaga
ökumanna, en enska nafn þess er:
International Abstaining Motorists As-
sociation. Forseti þess er Ruben
Wagnsson, fyrrverandi landsstjóri.
Hann stjórnaði fundi mjög röggsam-
lega. Fundurinn var til húsa í aðal-
byggingu tryggingafélagsins Ansvars,
sem er allveglegt fimm hæða hús við
eina glæsilegustu götu borgarinnar.
Framkvæmdast j óri bindindisf élags
ökumanna (MHF) í Svíþjóð, Rune
Andréasson, flutti þar fróðlegt yfirlits-
erindi. Fjölmennastur er félagsskapur-
inn í Svíþjóð, víst um 175 þúsund fé-
lagar, ef vélhjólareiðmenn eru taldir
þar einnig. I Noregi 16 þúsund í júní
s.l. í Danmörku yfir 4.000, Englandi
yfir 20,000, Canada 10.000, en þar
eru þessi samtök enn í mótun og ekki
ennþá í sambandi við sænska trygg-
ingafélagið Ansvar, en það er braut-
ryðjandinn í tryggingamálum bindind-
ismanna víða um heim. í ýmsum ríkj-
urn Bandaríkjanna eru samtals um
220,000 félagar í bindindisfélagsskap
ökumanna, og þar eins og í Canada
eru þessi samtök enn í mótun og nokk-
uð út af fyrir sig. — Litlar deildir eru
þegar í Grikklandi, Japan og Mada-
gaskar.
Tryggingafélagið Ansvar hjálpaði
til að koma á fót tryggingum bindind-
ismanna í Noregi, Danmörku og Eng-
landi, og nú er í ráði að færa út kví-
arnar til Canada, Ástralíu, Ceylon,
Afríku og einnig til íslands og Finn-
lands.
Þessar upplýsingar um trygginga-
framkvæmdirnar og fleira, veitti for-
stjóri Ansvars, Gunnar Nelker, í á-
gætu erindi, sem hann flutti á fundin-
um. Fundarmenn voru um 50 og frá
ýmsum löndum.
Ansvar er orðið voldugt fyrirtæki og
getur því stutt bindindisstarfsemina í
Svíþjóð á marga vegu, og í hvaða
landi, sem þessi tryggingastarfsemi
nær fótfestu, reynist hún eitt sterkasta
reipi bindindisstarfseminnar. í Svíþjóð
er bindindisfélag ökumanna (MHF)
orðið fjölmennasti bindindisfélagsskap-
ur landsins. Vöxtur hans hefur verið
mjög ör. Þegar félagið gaf út sitt
vandaða og fróðlega 30 ára afmælis-
rit 1951, hét það: „Frá 30 til 30,000,:,
en nú, þegar félagið er enn ekki fullra
40 ára, eru félagar þess orðnir hátt á
annað hundrað þúsund. Mikill fjöldi
manna úr öðrum samtökum bindindis-
manna eru auðvitað í MHF — Motor-
förarnas Helnykterhetsförbund, þar
á meðal templarar, enda styðja þeir
manna bezt hvarvetna alla bindindis-
starfsemi. Ættu templarar hér á landi
að styðja sem bezt Bindindisfélag öku-
manna til þess þroska, sem það þarf
að ná sem allra fyrst, og mun sá
stuðningur margborga sig í framtíð-
inni.