Eining - 01.11.1960, Blaðsíða 4

Eining - 01.11.1960, Blaðsíða 4
4 EINING Eufemía Waage. Tíminn líður. „Óðfluga berst hann áfram straumur tímans, og vér fáum engu um ráðið frekar en strá í stormi. Þótt vér bæðum gleðistund að staldra við ofurlítið lengur eða sorg- ina að hraða sér hjá, þá stoðaði það ekki minnstu vitund. Nauðugir viljugir verðum vér að beygja oss fyrir tím- ans mikla valdi, gamlir, ungir, glaðir, hryggir. Áfram, áfram líður (tíminn) endalaust". (Ásm. Guðm.s., bisk.: Frá heimi fagnaðarerindisins, bls. 17). Þetta sönnum vér menn á hverju ári, dag frá degi alia okkar ævi. Sífellt hverfa einhverjir félagar okkar burtu, hverfa inn á bak við tjaldið, sem skil- ur að leik- og starfsvelli þessa jarð- lífs og „heima sálarinnar“. Á 'jiðnu sumri, hafa tvær systur okk- ar stofnfélagar Framtíðarinnar, verið kallaðar yfir „móðuna miklu“, verið kallaðar á fund horfinna ástvina sinna og félaga, til þess „meira’ að starfa Guðs um geim“. — Við minnumst þeirra og þökkum þeim störfin hér, og er þá næst okkur að þakka þeim störf- in fyrir okkar göfugu hugsjónamál „algert bindindi á áfenga drykki og bræðralag allra manna“. Við trúum því og treystum að guðdómlega al- heimsaflið hafi hitt þær „í englanna’ og ljóssins ríki“ „í sælu þeim sjálfum hjá“, og að þar fái þær, „uppskorið laun trúfesti sinnar“ því þær sáðu hér vel og lengi góðu sæði, hvor í sínum verkahring og hvor með sínu lagi, ó- líkar á flestan hátt annan en þann að vera „trúar allt til dauðans“ æskuheiti sínu og hugsjón. (Av. Myndiruar af þeim eru teknar út úr bópmynd af þálifandi stofnfélögum st. Fram- tíöarinnar nr. 173, er tekin var í febrúar 1943 í tilefni af 25 ára afmæli stúkunnar). Eufemía Waage F. 6. jan. 1881 — D. 2. júní 1960 Hún var dóttir Indriða Einarssonar, skálds, fyrsta ísl. hagfræðingsins (og einn af stofnendum Stórstúku fslands af I.O.G.T., 24. júní 1886) og konu f Frö EUFEMÍA WAAGE og GUÐRÚN A. JÓNSDÓTTIR GuSrún St. Jónsdóttir. hans: Mörthu Maríu Pétursdóttur (Guðjóhnsen), elzt barna þeirra. Hún hét móðurnafni föður sins og skrif- aði hann það: Euphemía. — Mjög var kært með þeim feðgunum og mun hún jafnan hafa fylgt föður sín- um er hann fluttist milli stúkna. Það átti sér stað nokkrum sinnum og jafn- an af því að Indriði sá að starfs hans var meiri þörf málefnisins vegna í annarri stúku. Ósamlyndi við starfsfé- laga mun þar aldrei hafa ráðið, því ljúfari félagsbróðui' mun varla geta, þótt vel héldi hann á sinni skoðun. Og Eufemía var föður sínum lík í því sem mörgu öðru. Þess skal hér sérstaldega getið að frú Eufemía mun hafa verið kölluð burt héðan síðust þeirra, er sátu stofnfund Unglingareglunnar á íslandi þegar Barnastúkan Æskan nr. 1 var stofnuð 2. sunnudag eftir páska 9. maí 1886. Hún var þá aðeins 4 mán- uði á 6. ári og því of ung til að gerast reglulegur stofnfélagi Æskunnar. En hún var með eldri telpu, sem gætti hennar, og sú gerðist stofnfélagi og var félagi Æskunnar til dauðadags (að því er ég hef spurt) og þá gömul kona. Þessari telpu mun litla Eufemía hafa fylgt á fundi og síðan gerst reglulegur félagi þegar hún hafði náð lágmarksaldri til þess. Og það var hún svo áfram þar til lífsannirnar drógu hana þar út úr starfi. Árið 1896, þá 15 ára, gerðist hún félagi í stúkunni Verðandi, nr. 9, sem er elzta stúkan hér í Reykjavík, stofn- uð 3. júlí 1885; en þar voru foreldrar hennar félagar. Löngu seinna fylgdist hún svo með föður sínum í stúkuna Bifröst, nr. 43. Og 11. febr. 1918 gerð- ust þau svo stofnfélagar stúk. Fram- tíðarinnar, þegar Bifröst og Hlín nr. 33 runnu saman. Síðar vai-ð Indriði fyrsti heiðursfélagi Framtíðarinnar, en frú Eufemía var í hópi þeirra 12 stofnfélaga stúkunnar, sem kosnir voru heiðursfélagar hennar í tilefni af 25 ára afmæli stúkunnar 1943. — Stórstúkustig tók frú Eufemía 18 ára gömul 6. júní 1899. Hún giftist ung — 9. sept. 1902 — Jens Waage, síðast bankastjóra, sem hún varð á bak að sjá eftir langvar- andi veikindi hans 10. sep. 1938. Bæði voru þau hjón góðir og kunnir leik- arar á sínum tíma og hann leikstjóri um langt skeið, og tryggir templarar til æviloka. — Þau eignuðust 8 börn; misstu 5 þeirra ung (það þriðja í röð- inni í húsbruna, nærri 16 ára), en aðeins 1, elzta barnið: Indriði leikari Waage, lifir sína góðu móður. Guiðt'ún St. Jónsdóttir F. 6. jan. 1878. — D. 9. sept. 1960 Foreldrar hennar voru hjónin Jón Bjarnason, verzlunarmaður, fyrr í Hafnarfirði en síðast deildarstjóri í Verzl. Edinborg í Reykjavík, og Helga Árnadóttir, sem kunn var fyrir störf sín í Templarareglunni um árabil og hvað eftir annað gæzlumaður bæði í Æskunni, nr, 1, og Svövu nr. 23. — (Elztur barna þeirra og bróðir Guð- rúnar var Árni timburkaupmaður hér í Reykjavík). Guðrún hefur vafalaust gerzt ung- templar sem barn undir handleiðslu móður sinnar, og í stúku fulorðinna gekk hún 1893, 15 ára. Nálægt alda- mótunum gekk hún í stúkuna Hlín nr. 33 (stofn. 27. jan. 1897) og sem trúr félagi hennar varð hún meðal stofn- enda Framtíðarinnar, 11. febr. 1918. — Stórstúkustig tók hún 6. júní 1905. Guðrún St. var ógift og barnlaus. Hún vann lengst af sem verzlunar- stúlka, síðast lengi í Thorvaldsensbaz- arnum. Hún var hlédræg og bar því lítið á henni út á við, en góður félags- starfsmaður og traust. Nokkuð snemma fór hún að missa heyrn; varð það til þess að hún hætti að sækja fundi í stúkunni okkar. En hugsjón móður sinnar og okkar templara var hún trú framúr. Síðast bjó hún hjá

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.