Eining - 01.11.1960, Page 8

Eining - 01.11.1960, Page 8
8 EININC arleysi, óróa, geðofsa, þunglyndi, titringi, svitakófum, höf- uðverkjum, maga- og hjartakvillum, minnistruflunum, kláða o.s.frv. Þessi einkenni hverfa í bili við áhrif áfengisins, léttir mönnum mjög við það og leita aftur og aftur í vaxandi mæli fróunar og svölunar í hinni forneskjulegu guðaveig. Áhrifin eru sljóvgandi og róandi fyrst í stað, og minnka viðbrögð ósjálfráða taugakerfisins sem kvíðinn og óttinn orsaka, og sem valda aftur auknum kvíða. Hræðsla, ótti og kvíði eru óþægilegar, stundum allsárar kenndir, og fylg- ir þeim aukin vöðva- og taugaspenna. Þessi spenna, hvort heldur um er að ræða einstakling eða þjóð, skapar vanda- mál, sem þarf að leysa, óþægilega kennd, sem krefst úr- lausnar. Ölvunin leysir þensluna í bili, og meðal annars þess vegna hefur áfengið svo mjög verið haft í hávegum. Þegar taugaveiklaðir ofdrykkjumenn hætta að drekka, þarf að bæta þeim upp áfengismissinn með því að hjálpa þeim til þess að vinna bug á taugaveikluninni. Annars verður þeim lífið óbærilegt, enda hafa sjálfsmorð verið tíðari meðal þeirra en hjá öðrum mönnum. í öðrum flokknum eru ávana ofdrykkjumenn, sem ekki eru taugaveiklaðir að upplagi, en vanizt hafa á ofnautn vegna starfa síns eða félagslífsins í hópi þeirra kunningja og vina, sem þeir umgangast. 1 þessum flokki eru sölu- menn, viðskiptamenn, þjónar, hljóðfæraleikarar, blaða- menn stjórnmálamenn, sendiráðsmenn og aðrir, sem gegna störfum á stöðum, þar sem áfengi er mjög um hönd haft. Hafi þeir ekki stundað drykkjuskapinn lengur en 10 til 15 ár, dugir þeim venjulega að hætta við vínið og er þeim þá borgið. Hafi þeir hins vegar drukkið lengur en 10—15 ár, eru þeir orðnir taugaveiklaðir af völdum áfengisins, og þarf þá að taka það með í reikninginn þegar þeir hætta að drekka. f þriðja flokknum eru geðvilltir og frumstæðir gjálífs- menn (psychopathar). Þeir eru hvorki glæpamenn né geð- veikir, þó að þeir hafi hneigð til annars eða hvoru tveggja. Það er því líkast að í þá vanti þær hömlur, sem siðaðir menn í nútíma þjóðfélagi eiga að hafa, og sem gerir þá sið- aða. Þeir hafa forneskjulegt lundarfar, víkingsskapgerð, trúa á mátt sinn og megin, og á það að önnur lög og reglur gildi fyrir þá en aðra menn. Þeir drekka ekki af beinni þörf fyrir áfengi, heldur vegna þeirrar frumstæðu hvatar að skemmta sjálfum sér, oft á kostnað og án nokkurs tillits til annarra. Margir þessara manna þjást af uppeldisskorti á háu stigi, hafa ýmist verið aldir upp við of strangt upp- eldi eða of mikið eftirlæti, eða hafa farið á mis við holl uppeldisáhrif frá heimilum sínum, skólum og trúarfélögum eða kirkju. Stafar þetta stundum af skapgerðarágöllum og skilningsleysi foreldranna eða drykkjuskap þeirra, einnig vegna langvinnra sjúkdóma, fjarveru, dauðsfalla eða frá- skilnaðar þeirra, nema önnur holl uppeldisleg áhrif komi til og vegi þá upp á móti slíkum áföllum. Sem betur fer á það sér oft stað. Áfengið hefur slæm áhrif á líkama mannsins, en mis- munandi mikil á ýmis líffæri. Verstu áhrifin koma fram í miðtaugakerfinu, heilanum og þar næst í lifrinni. Menn hafa lengi vitað að langvinn ofdrykkja getur valdið varan- legum og óbætanlegum skemmdum á heilanum. Með aldr- inum deyr dálítið af heilafrumunum eða þær verða síður starfhæfar og er þetta eðlileg hnignun, sem á sér stað hjá flestum mönnum, þegar árin færast yfir þá. Hafi þeir ver- ið vel gefnir upphaflega, ber oft lítið á þessu, jafnvel á sjötugs- og áttræðisaldri. Hjá ofdrykkjumönnum gengur þessi hnignun og hrörnun heilans miklum mun örar og ber iðulega á minnis- og andlegu skerpuleysi hjá þeim, þegar á fertugs- og fimmtugsaldri. Þá fer það einnig hér nokkuð eftir því, hvað þeir hafa haft af miklu að taka upphaflega. Drykkjumenn eru rétt fyrir ofan meðallag hvað gáfnafar áhi’ærir að meðaltali ,en þeir eru samt líka margir illa gefnir. Hnignun heilans af völdum áfengisins lýsir sér sem upp- lausn persónuleikans, minnisleysi, skortur á aðlögunarhæfni og almenn gáfnatregða. Þeir hætta algerlega að taka nokkr- um framförum en lifa á fornri frægð og á því, sem þeir hafa verið búnir að læra eða afkasta áður en ofdrykkjan hófst. Við krufningu kemur í ljós mikil rýrnun á heilaberk'mum eða heilayfirborðinu. I nýrri og ágætri bók hefur Courville lýst ástandi miðtaugakerfis ofdrykkjumanna við krufningu á Los Angeles County spítalanum. Hann segir að ein hin athyglisverðustu áhrif margendurtekinnar ölvunar og of- drykkju sé vaxandi rýrnun framheilans. Þessi rýrnun virð- ist stafa af eituráhrifum áfengisins sjálfs, en ekki af bæti- efnaskorti, eins og haldið hefur verið fram til þessa. ,,Þetta tel ég, samkvæmt reynslu minni“, segir hann ennfremur, „vera algengustu orsök heilarýrnunar á fimmtugs- og sex- tugsaldri". Heilaskemmdir finnast jafnvel hjá ungum ofdrykkju- mönnum á þrítugsaldri, samkvæmt athugunum þeirra Jum- örkin, Wilson og Snyder. Með heilalínuritum, heilablæstr: og sálfræðilegum prófum sýndu þeir, að 7 ungir hermenn, sem þeir rannsökuðu, voru með heilaskemmdir. Með heila- blæstri má iðulega finna einkenni rýrnunar á heilaberki eldri ofdrykkjumanna. Pulvinage fann t.d. slíka rýrnun hjá 17 ofdrykkjumönnum, sem hann rannsakaði. Enginn vafi leikur á því að endurtekin ofdrykkja, svo- kallað helgarfyllirí, veldur oft varanlegum heilaskemmdum. Hversu miklar almennar og víðtækar þessar skemmdir eru hjá óhófs- og ofdrykkjumönnum hefur ekki verið rannsakað til hlítar enn sem komið er. Sé hins vegar haft í huga, að heilarýrnun er lokasiig langvinnrar, hægfara hrörnunar geysimikils fjölda heilafruma, verður ekki komizt hjá því að álykta, að fyrir hvern einn ofdrykkjumann með slíka mælanlega og augljósa heilarýrnun, hljóti að vera fleiri tugir manna með minni háttar skemmdir, sem ekki er hægt að sýna fram á. Núverandi mælingaraðferðir á heilastarf- semi eru nokkuð ónákvæmar ennþá, og ekki er hægt að sýna fram á rninni háttar frumutap, sem hlýtur eigi að síð- ur að koma fyrir hjá mönnum, sem drekka mikið ýmist að staðaldri eða einstöku sinnum. Til viðbótar beinum eituráhrifum áfengis á heilann eru önnur atriði og atvik, sem auka jafnframt heilaskemmd- irnar. Súrefnisskortur vegna þrota þess á heilaæðum, sem áfengið veldur, hin tíðu höfuðhögg og slys með meiri eða minni blæðingum og marblettum á heilann og næringar- efnaskortur, sem oft fylgir í kjölfar langvarandi drykkju vegna lifrar- og magabólgu og lystarleysis af þeirra völd- um. B-bætiefnaskortur er mjög alvarlegur, þar eð hann er aðal orsökin, auk eituráhrifa áfengisins sjálfs, til áfeng- isgeðveiklunar í ýmsum myndum, svo sem Werniches heila- skemmda og Karsakofs-veiki, auk ofdrykkjuæðis og brenni- vínskrampa. Þó að þessar meira eða minna skammvinnu geðveilur séu ekki algengar, eru þær heldur engan vegin fátíðar. Sumir ná sæmilegum bata síðar, en þriðjungur Werniches og Karsakoffs-sjúklinga nær sér aldrei aftur hvað sem gert er, heldur verða andlegir aumingjar eða

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.