Eining - 01.07.1968, Blaðsíða 2
2
E 1 NT I N G
STORSTUKUÞIIGIÐ
Bjartan og yndislegan júnímorgunn
hittumst við allmörg í Templarahöllinni
nýju í Reykjavík. Þar hófst 65. þing
Stórstúku Islands, 7. júní kl. 9 árdegis.
Fjölmenn og ágæt kynningarsamkoma
var þó í húsinu kvöldið áður.
Það virtist sem nýja Templarahöllin
og bjartir júnídagar ættu sinn þátt í að
setja góðan og vorlegan svip á þingið.
Allt fór það fram mjög prýðilega undir
rösklegri stjórn stórtemplars, Ólafs Þ.
Kristjánssonar, skólastjóra. Hann setti
þingið og bauð fulltrúa og aðra fundar-
menn velkomna, en þeir voru eitthvað
um 100. Hófust svo venjuleg þingstörf.
Kl. 2 eftir hádegi fóru þingfulltrúar og
fleiri templarar skrúðgöngu frá þing-
staðnum til Hallgrímskirkju. Þar söng
dr. séra Jakob Jónsson messu og flutti
þróttmikla ræðu.
Þing þetta var nokkuð frábrugðið
fyrri stórstúkuþingum. Þar voru vel
undirbúin skemmtiatriði. T.d. var farið
þenna fyrsta dag þingsins í ferðalag,
fyrst til Hafnarfjarðar og drukkið þar
kaffi í boði Þingstúku Hafnarfjarðar.
Síðan ekið til Krýsuvíkur, Stranda-
kirkju og Hveragerðis. Þar sá Þingstúka
Reykjavíkur um veitingar. Laugardags-
kvöldið fóru þingfulltrúar í Þjóðleikhús-
ið. í lokasamkvæminu, sunnudagskvöld-
ið 9. voru svo ýmis skemmtiatriði.
Nú stóð svo á hjá blaðinu, að búið var
að setja það og verið var að ganga frá
broti þess einmitt þingdagana, en út-
komu þess varð að hraða vegna sumar-
Framhald af 1. bls.
greinunum og uxu með degi hverjum,
unz hríslan varð öll laufprúð og fögur.
Hið eilífa undur lífsins.
Þegar mannssálin snýr sér til þess
eilífa máttar, sem er allra sólnasól, og
líka mannssálnanna. Þá gerizt undrið
mikla í lífi mannsins. Kristur kallaði
það endurfæðingu. Það þykir nú stæri-
látum heimi úrelt orð, en viðburðurinn
er þó hans mesta þörf. Þegar þetta und-
ur gerist í lífi mannsins, vaxa þar fagr-
ar dyggðir og réttlætisávextir skreyta
þá líf hans og alla breytni. Það er róttæk
breyting, sem er bót hinna verstu mann-
félagsmeina. Við teljum ekki tréð hugs-
andi veru, en það þiggur endurfæðandi
kraft lífsins. Ætti hugsandi maðurinn
þá að loka sálu sinni og fara svo á mis
við undrið mikla?
leyfa prentaranna. Nánari frásögn af
stórstúkuþinginu verður því að bíða út-
komu næsta tölublaðs. Hér fylgja þó
helztu samþykktar tillögur þingsins.
Tillögur frá áfengislaganefnd.
Stórstúkuþingið felur framkvæmdanefnd
Stórstúku íslands:
1) að vinna af mætti gegn því að Alþingi
lögleiði framleiðslu áfengs öls.
2) að leggja áherzlu á að meira eftirlit
verði haft með áfengissölu á vínveit-
ingahúsum.
3) að kappkostað sé að afstýra því, að
fjölgað verði vínveitingahúsum og þau
skilyrði sem sett eru fyrir slíkum leyf-
um séu haldin.
Tillag'a frá fræðslunefnd.
Stórstúkuþing felur framkvæmdanefnd
Stórstúku Islands að fara þess á leit við
forráðamenn íslenzka sjónvarpsins, að sýnd-
ar verði reglulega fræðslumyndir um
áfengismál.
Einnig væri æskilegt að sýna kvikmynd-
ir, sem eru bindindi hliðhollar, svo sem
Daginn fyrir stórstúkuþingið var háð
þing unglingareglunnar, en hún á sína
löngu og heillaríku sögu. Oftast hafa
verið þar í forustu vökulir og áhuga-
samir ágætismenn. Enn nýtur unglinga-
reglan þeirrar gæfu að eiga forgöngu-
mann, sem aldrei sofnar á verði, er sí-
vökull, sístarfandi, samvizkusamur
áhuga- og athafnamaður, þar sem er
Sigurður Gunnarsson, kennaraskóla-
kennari. Hann setti þingið og stjórnaði
því með sinni venjulegu Ijúfmennsku,
og lagði fram góða skýrslu. Hann er
stói’gæzlumaður unglingastarfsins.
Barna- og unglingastúkurnar í land-
inu eru nú 60 og félagar þeirra um 7000.
Þetta er langfjölmennasti starfandi fé-
lagsskapur barna og unglinga í landinu.
Óhætt er að fullyrða, að á liðnum 80 ár-
um hefur þessi félagsskapur, undir leið-
sögn ágætra gæzlumanna, unnið ómetan-
legt uppeldisstarf, sem aldrei verður of-
þakkað, og þar má ekki umbera neina
afturför. — Fleira um þetta verður að
bíða næsta blaðs, en hér fara á eftir
nokkrar samþykktir þingsins.
Ólafur Þ. Kristjánsson, stórtemplar.
„Glötuð helgi“ og „Ég græt að morgni," svo
að einhverjar séu nefndar sem dæmi.
Eðlilegt má telja, að samráð sé haft um
þetta mál við Áfengisvarnaráð ríkisins.
Tillög'ur frá Regluhagsnefnd.
1. Stórstúkuþingið skorar á framkvæmda-
nefnd Stórstúku Islands, að auka upp-
Framhald á 15. bls.
1) Unglingaþingið 1968 ályktar, að vinna
þurfi stöðugt að því að fjölga og halda
við lýði starfandi barnastúkum. Telur
þingið, að m.a. beri að stefna markvisst
að því að koma á fót bamastúkum í öll-
um skólahverfum Reykjavíkur og víðar,
þar sem hennta þykir, í sem nánustu
tengslum við barnaskólana, bæði um
húsnæði og starfskrafta.
I sambandi við þetta minnir þingið enn
á þá miklu nauðsyn, að stórstúkan hafi
jafnan a.m.k. einn fastráðinn erindreka,
er unnið geti að málefnum unglinga-
reglunnar.
2) Unglingaregluþingið ályktar, að leggja
þurfi mikla áherzlu á að tryggja barna-
stúkunum hæfa og áhugasama leiðtoga,
og bendir í því efni einkum á:
a) að leiðtoganámsskeið þurfi að vera fast-
ur og helzt árlegur liður í starfsemi
góðtemplarareglunnar,
b) að hraða þurfi útgáfu handbókar gæzlu-
manna, og
c) að ekki sé lengur unnt að byggja á því,
að störf gæzlumanna í barnastúkum séu
algerlega ólaunuð.
4) Unglingaregluþingið mælir með því, að
Framhald á 15. bls.
Unglingaregl uþingið