Eining - 01.07.1968, Síða 3
E I N I N G
3
SUMARMÁL
fíitstjórn blaösiðunnar:
Guðmundur I’órarinsson
og Einar Hannesson.
Anægjulepr afmælisfagna5ur
Frá afmælishófi ÍUT.
Eins og skýrt var frá í seinasta blaði,
áttu samtökin íslenzkir ungtemplarar
10 ára afmæli á Sumardaginn fyrsta.
Þá voru einnig nýliðin 10 ár frá stofnun
ungtemplarafélagsins Hrannar í
Reykjavík, forustufélag lUT. Þessara
tímamóta var minnzt með afmælisfagn-
aði lUT í Templarahöllinni á Sumar-
daginn fyrsta og Hrönn fagnaði afmæl-
inu á árshátíð félagsins þar á síðasta
vetrardagskvöldi. Þá efndi félagið til
Iþróttahátíðar að Hálogalandi laugar-
dagskvöldið 27. apríl s. 1.
Hingað voru komnir í heimsókn í til-
efni þessara tímamóta fjórir forustu-
menn ungtemplara á hinum Norður-
löndunum, en þeir voru Tore Söraa, rit-
ari Norræna ungtemplarasambandsins,
Bent Jóhansen, formaður danskra ung-
templara, Alf-Cato Gaaserud, formaður
norskra ungtemplara og Lars-Erik
Grubbström, formaður Sænska ung-
templarasambandsins. Fluttu þeir
kveðjur og árnaðaróskir íslenzkum ung-
templurum og færðu góðar gjafir.
Afmælishóf íslenzkra ungtemplara
sóttu auk ungtemplara, Geir Hallgrims-
son, borgarstjóri og flutti hann ung-
templurum kveðjur og þakkir fyrir
þeirra störf, og ýmsir forystumenn
bindindishreyfingarinnar. Aðalræðuna
flutti séra Árelíus Nielsson, fyrv. for-
maður ÍUt. Auk ávarpa hinna erlendu
gesta, töluðu Ólafur Þ. Kristjánsson,
stórtemplar, séra Kristinn Stefáns-
son, áfengisvamaráðunautur, Jóhann
Björnsson, forstjóri Ábyrgðar og Guð-
mundur Þórarinsson, umdæmisgæzlu-
maður ungmennastarfs, sem fluttu
kveðjur og árnaðaróskir. — Afmælis-
hófið sóttu um 100 manns. Veizlustjóri
var Gunnar Þorláksson, ritari lUT.
Þrír menn voru sérstaklega heiðr-
aðir fyrir störf í þágu samtakanna. Voru
það séra Árelíus Nielsson og Gissur
Pálsson, rafvirkjameistari, en þeir
voru kjörnir heiðursfélagar ÍUT. Sune
Persson, Svíþjóð, hlaut sérstaka viður-
kenningu fyrir mikilvæg störf í þágu
IUT fyrr á árum.
Á árshátíð Hrannar var flutt bráð-
skemmtileg revía, sem Karl Helgason,
félagi í Hrönn hafði samið. Vakti revían
mikinn fögnuð viðstaddra. Á íþrótta-
hátíð Hrannar var keppt í handbolta,
körfubolta og knattspyrnu. Þá sýndu
þrír þekktir frjálsíþróttamenn, m. a.
Jón Þ. Ólafsson, hástökk og þrístökk.
Iþróttaflokkar úr Reykjavík, Kópavogi
og Keflavík tóku þátt í íþróttahátíðinni.
Þess má geta í þessu sambandi að
íþróttamenn Hrannar munu taka þátt
í 3. deildar keppni í knattspyrnu í sum-
ar.
Norrænu f/estirnir taliS frá v.: Lars-Erik Grubbström, Tore Söraa, Alf-Cato Gaaserud og Bent
Johansen.