Eining - 01.07.1968, Side 12

Eining - 01.07.1968, Side 12
12 E I N I N (\ Hér eru vitnin Nóbelsverðlaunaskáldið Halldór Kilj- an Laxness hefur sagt, að áfengissýkin sé verst allra sjúkdóma, „sjálfvalin sjálfsmorðstilraun." Hvað eftir annað hafa prestar látið þau orð falla í útvarpsræðum, að áfeng- isdrykkjan væri hið allramesta böl þjóð- arinnar. Prestar komast oftast ekki hjá því, að kynnast þessu allverulega. Janúarhefti Kirkjuritsins 1968 birti erindi eftir Laufeyju Sigurðardóttur frá Torfufelli, sem hún flutti í Akureyrar- kirkju 9. marz 1967. Þar er vitnisburð- ur hennar um slysa- og glæpavaldinn mikla. Meðal a. o. segir frúin: „Á árinu sem leið var selt vín (áfeng- ir drykkir) fyrir 525 milljónir. Með hvaða tölu skyldi þurfa að marg- falda þá upphæð ef öll kurl kæmu til grafar, allar þær veigar er komu til landsins eftir öðrum leiðum? Eigi veit ég hvað sá reikningur yrði hár, en hitt er víst, að enginn reikningsheili getur reiknað allt það tjón, sem af drykkju leiddi á liðnu ári. öll slysin og óhöppin, mannslífin, heimilisbölið, liarmana oy tárin, slíkt verður aldrei metið, tjónið er stærra en svo. Það er þyngra en tárum taki, en þetta verðum við að horfast í augu við, og taka afstöðu til, bæði þú oy ég. Sá Guð er skóp oss ábyrgð vits og vilja. Hann virðir trúarþor að sanna og skilja. Og trúin á Guð er eina bjargráðið. Kirkjan á enn sem fyrr sterka menn og sanntrúaða er vísa veg trúar og siðgæð- is, en eigum við ekki öll að hjálpa til að skapa svo sterkt almenningsálit gegn þessum voða, að þjóðin nái réttum átt- um á Stórasandi ógæfunnar?“ Góður vitnisburður. — Þannig mæla heilbrigðar sálir, sem lifa ekki með „kalið blóð.“ — Öll eigum við að leggj- ast samtaka gegn þjóðarbölinu og skað- valdinum versta. 1 síðasta árgangi Hlínar er ágætt er- indi eftir velmenntaða prestsfrú, Janet Ingibergsson. Einnig hennar vitnisburð- ur er hiklaus. Frúin mælir á þessa leið: „Ég álít það (áfengið) vera mesta böl þessarar kynslóðar. Hvaða afbrot heyrum við um, svo að ekki sé minnst á áfengi í því sambandi?“ Morðum hefur fjölgað á hinum síðari árum hjá okkar fámennu þjóð. Hefur ekki oftast eða alltaf áfengispúkinn ver- ið þar með í verki ? Mörg og merk eru vitnin um allan heim, sem vitnað hafa gegn hinum margseka glæpavaldi, en þótt þau séu tugir þúsunda eða hundruð þúsunda, þá daufheyrist menningardómstóll mann- kynsins við öllum þeim sannleiksvitn- um. — Svartur blettur á menningunni, eins og styrjaldirnar. Hve lengi ætla þjóðirnar að umbera þann skaðvald, sem flest ódæðisverkin vinnur? Við spyrjum og spyrjum, og hrópum út í heyrnarlausan heiminn. -K-K -)< -K-K Mikilvirk dyggð Þótt í fari frækins manns finnist ýmsir gallar, stjórni góðvild gerðum hans, greiðast flækjur allar. Öll él birta um síðir Alla tíð stenst enginn kvilli, oft þó lengi gleði spilli. Lubbatízku ljóti siður leggst vonandi bráðum niður. P. S.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.