Eining - 01.06.1971, Page 6

Eining - 01.06.1971, Page 6
6 EINING Manitoba, áttum við hjónin ágæta ná- granna, sem voru oft áheyrendur mín- ir þar. Húsbóndinn hafði notað nef- tóbak mestan hluta ævinnar. Er hann var gestur okkar eitt sinn, sagði kona mín við hann: Láttu mig nú fá tóbaks- dósimar, og hann fékk henni þær og tók ekki framar í nefið. Við geymdum dósirnar lengi. Mörgum árum síðar, er ég var á fyrirlestraferð í Skagafirði, fékk ég lítið bréf; í því var peningaseðill og að- eins þau orð, að án minna áhrifa hefði seðlinum verið brennt í tóbaksreyking- um. Auðvitað prédikaði ég minnst um tóbak, en lét oft þau orð falla, hve fávíslegt það væri að brenna peningum sínum í tóbaksreykingum. Svo var það í kauptúni einu norð- anlands að töluverð saga gerðist, of löng til að segja hana hér til hlítar. Ég flutti nokkur erindi á þessum stað og annað kvöldið, sem ég talaði þar, var mér sagt, að fleiri hefðu verið tald- ir út úr samkomuhúsinu en til væru í þorpinu, fólk kom að nokkuð langar leiðir. Þá var mér líka sagt, að 8 manns í þorpinu hefðu heitið því að hætta tóbaksneyzlu. Einhverjir þeirra munu þó hafa brotið það loforð síðar, en sum- ir aldrei, og kaupmaður einn á staðnum seldi aldrei sígarettur eftir þetta. Mér var svo vel tekið, að ég varð að svara beiðni manna um að koma út í sveitir og flytja erindi á skemmtisamkomum manna, vaka við það nótt eftir nótt, flutti tvö erindi á hverjum stað, annað kl. 10 að kvöldi og hitt kl. 2 eða 3 um nóttina. Þetta reyndi töluvert á þrek mitt og heilsu, en var mjög ánægjulegt — ógleymanlegt. Austur á fjörðum gekk eitt sinn ungur maður út úr samkomuhúsi, þar sem ég hafði flutt ræðu — prédikun, og beint að steini, lagði reykpípuhaus- inn þar á og braut hann með öðrum steini. Þar með var hann hættur reyk- ingum. Ég var aldrei margorður um reyking- arnar og fór aldrei út í nein vísindi, en lagði áherzlu á, hve þetta væri í raun og veru kjánalegur siður, óþrifa- legur, óhollur og fávíslegt að brenna þannig peningum sínum, og til tilfinn- inganna talaði ég með hinum dásamlegu orðum postulans mikla, Páls, þar sem hann segir: „Allt er leyfilegt, en ekki allt gagnlegt, og ég má ekki láta neitt fá vald yfir mér.“ Maðurinn á að vera frjáls, alfrjáls en ekki þræll, ekkert annað er mannsæmandi, ekki þræll neinna skaðnautna. Menn fæðast ekki með sígarettu eða reykjapípu í munn- inum, og ekki heldur með tóbaksdósir í höndunum. Tóbaksnautnin er ekki meðfædd, hún er ávanasiður, og mað- urinn á ekki að gerast þræll hennar. Það sæmir honum ekki. Hann á að vera sá sem valdið hefur yfir öllum ósiðum, en ekki þræll þeirra. Tóbaks- og áfeng- isneytendur verða oftast þrælar nautn- arinnar og segjast ekki geta hætt, fjötr- aðir þrælar. Þetta er manninum ósam- boðið. Á þetta lagði ég mesta áherzlu í baráttu minni — prédikun minni gegn tóbaksneyzlunni, og sá oft nokkurn ár- angur. Það gefur oftast beztu raun að tala til tilfinninga manna, því að af þeim stjórnast menn fremur öllu öðru. Gefi nú öll góð öfl herferðinni nýju gegn tóbakinu glæsilegan sigur. Pétur Sigurásson. Séra Sveinn Víkingur Snemma í júní sl. hafði einn af merk- ustu klerkum landsins, séra Sveinn Vík- ingur, vistaskipti og hvarf til hinna háu heima, sem hann hafði hugleitt mjög um ævidaga sína og frætt okkur um myndarlega. Okkur fannst mörgum hann kveðja okkur of fljótt, því að hans auða sæti er vandfyllt. Fæddur var séra Sveinn 17. janúar 1896 í Garði í Kelduhverfi, N.-Þing. Prestsembætti þjónaði hann árin 1922- 1942 á ýmsum stöðum, lengst af í Dvergasteins-prestakalli, Seyðisfirði. Biskupsritari og skrifstofustjóri var hann árin 1942—59. Einn vetur var til bindmdisstarfssem i Folket, Noregi, getur þess að félags- málanefnd Stórþingsins, hafi rætt vax- andi áfengisneyzlu þjóðarinnar og að gegn henni þurfi að herða sóknina, slær fram þeirri athugasemd, hvort ekki væri réttmætt að láta megnið af áfengissölugróðanum ganga til bindind- isstarfseminnar. Þetta er rökrétt hugsun. Bemard Shaw sagði einhverju sinni, að ætti áfengissalinn að bæta fyrir allan þann skaða, sem áfengissalan veldur, þá mundi enginn selja áfengi. hann skólastjóri Samvinnuskólans að Bifröst, og báru skólasveinar á hann mikið lofsorð, sögðu hann hinn skemmti- legasta og bezta skólastjóra, sem þeir hefðu kynnst, og er það vel skiljan- legt, því að maðurinn var bæði gáfaður og skemmtilegur. Séra Sveinn Víkingur var í alla staði merkur klerkur, ræðumaður og fyrir- lesari hinn ágætasti, þóttu útvarpser- indi hans ávallt góður fengur. Á rit- vellinum var hann mikilvirkur, ritaði og þýddi fjölda bóka og skrifaði all- marga tugi blaðagreina. Kvæntur var séra Sveinn Sigurveigu Gunnarsdóttur frá Skógum í öxar- firði og lifir hún mann sinn. Þegar ég undirritaður vann það af- rek að stofna stúku á Seyðisfirði á ár- unum laust eftir 1930, já, ég segi af- rek, því að einn ágætur bankamaður þar, Gunnlaugur Jónasson hét hann víst, sagði, að sér hefði aldrei til hugar komið að slíkt gæti gerzt þar, þá voru það ekki minni karlar, sem þátt tóku í stúkustofnunni, en þeir séra Sveinn Víkingur, Haraldur Guðmundsson, þá bankastjóri, síðar ráðherra og merkis- bóndinn Jón í Firði, engir trúbræður í pólitík. Afrek var það að stofna þessa stúku með þessum ágætu mönnum, en skammlíf varð hún samt, því miður. Séra Sveinn Víkingur andaðist 5. júní sl. Hans er gott að minnast og hugheila samúð votta ég konu hans og öðrum nánustu. Pétur Sigurðsson. >000-00000000000000000000000000000000000000000

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.