Eining - 01.06.1971, Blaðsíða 14

Eining - 01.06.1971, Blaðsíða 14
14 EINING um þau mál væri æskileg. Vissir námshópar hafa margvísleg- kennslu- gögn til afnota, en aðrir hópar eru vanræktir í þessu tilliti. Hópar þeir, sem ekki hafa næg kennslugögn, eru nemendur á grunn- og miðskólastigi, í iðnskólum og í kennaraháskólum. Ennfremur verður að minnast nem- enda, sem eru öryrkjar, og þeirra, sem erfitt eiga með að tileinka sér venjulegan námshraða á námskeið- um. 3. Að því er varðar kennslugögn fram- tíðarinnar, er ekki um að ræða nein þau frávik í markaði fræðslunnar um áfengi og eiturlyf, sem hafa ætti áhrif á gagnkvæm skipti. Varðandi framleiðslu nýrra kennslugagna, sem eru í undirbúningi, skal bent á eftirfarandi atriði, er verða mættu til þess að auðvelda sameiginleg not innan Norðurlanda: Teiknifilm- ur eru betur fallnar til notkunar í fleiri en einu landi en aðrar filmur, vegna þess að þær úreltast ekki eins fljótt, og samfösun á hljóði og mynd er ekki eins háð því, hvaða tungumál er talað. Kennslugögnin skulu vera hönnuð á þann veg, að auðvelt sé að setja inn texta í hverju landi um sig. Textasetning skal unnin heima fyrir. Ef gert er ráð fyrir skiptum á kennslugagni, skulu á- ætlanir gerðar það tímalega, að unnt verði að koma á framfæri sjón- armiðum eða áliti um hin ýmsu uppbyggingaratriði þess. Leitazt verði við að taka upp staðlaðar gerðir námsgagna (t. d. er pappírs- stærðin A4 handhæg í námsverkefni fyrir nemendur). I hverju landi fyrir sig ætti að vera einhver einstaklingur, sem hef- ur samband við kennara og fram- leiðendur til þess að leita uppi hag- nýta reynslu og nýjungar, sem fram hafa komið innanlands, og ef ætla mætti þær áhugaverðar fyrir öll Norðurlönd að koma þeim þá á framfæri við sambandsnefndina innan Nordan. 4. Æskilegt er, að norræn samfram- leiðsla hefjist, séu nokkur tök á því. Það væri hagkvæmt, að markaður- inn víkkaði út yfir landamæri hvers lands um sig, bæði frá kennslufræði- legu og fjárhagslegu sjónarmiði. Þessi framleiðsla kennslugagna ætti að miðast við a) nemendur, b) kenn- ara og c) kennaranema. Gott væri að útbúa samstæðu fræðslugagna um áfengi, eiturlyf og tóbak til gagnkvæmra nota í lönd- unum. Framleiða skal handa nemendum og kennurum gagnakort (lausblaða- kerfi). Lausblöðin hafa þann kost, að þau má endurnýja, þegar þau verða úrelt. Semja ætti námsverk- efni til notkunar með gagnakortum. Hentugar myndir, ýmiss konar geislamyndir (slides) ættu að vera fyrir hendi, ásamt hinum prentuðu gögnum. Stórar skuggamyndir, tylli- myndir (tyllt á flónelstöflu) ogkyrr- filmur ætti að framleiða sameigin- lega, þar eð slíkt myndaefni hefur beint notagildi í öllum löndunum. 5. Hafa ber í huga, að við fi*amleiðslu kennslugagna er erfitt að taka til- lit til séraðstæðna í hinum einstök- um löndum. Samframleiðsla, eða framleiðsla fyrir öll Norðurlönd krefst nákvæms og sérstaks undir- búnings frá upphafi. Vandamál geta risið út af höfund- arrétti, ef skipzt er á útdráttum námsgagna og námshugmyndum. Fela verður úrlausn slíkra mála lögfræðingum eða öðrum sérfróðum mönnum. Mikilvægt er að efla menntun kennara á sviði eiturefna og um- hverfismála. Allt efni, sem notað er við fræðsl- una, skal vera þannig úr garði gert, að það veki áhuga nemandans. Stefna ber að því, að nemandinn skynji samfélagslegt mikilvægi efn- isins, en til þess er notkun mynda vel fallin, og enn fremur umræður með ýmsu sniði, t. d. hópumræður. Ráðstefnunni var slitið sunnudaginn 28. febrúar, síðdegis. Voru allir þátt- takendur sammála um, að hún hefði tekizt ágætlega, og að norrænt samstarf á þessu fræðslusviði væri mjög mikil- vægt. SigurSur Gunnarsson. EINING Eining er fagurt orð á vörum. Eining er túlkun góðleikans. Eining hlúir að allra kjörum Einnig er markmið hyggins manns. Eining er líftaug alheimsfriðar. Eining er sál hins fagra siðar. Eining er friðarandans val. Eining er það, sem koma skal. P.S. SINNULEYSID VERST Enskt skáld hefur ort ljóð um komu Krists til nútímaborgar. Hann var ekki ofsóttur og ekki krossfestur, en hann varð fyrir því, sem honum fannst enn verra. Það skipti sér enginn af honum, og þá lætur skáldið hann óska sér held- ur Golgata. Það snerti enginn hár á höfði hans af kristnum lýð, en úti stóð hann aleinn þar til endað var hans stríð. Afskiptaleysið getur stundum kvalið verr en ofsóknir. Löngum getur það verið hin sterka hlið mannanna að vera ósammála um eitt og annað. Allir höfum við t. d. óbeit á ofdrykkju, en svo skiptast menn í hópa. Sumir fylgja algeru bindindi, aðrir telja hófsemd í áfengisneyzlu færa leið og jafnvel æskilega. Þeir leggjast því jafnan gegn róttækum hömlum, svo sem áfengissölubanni, og til þess að geta verið lausir við slík bönn, eru þeir fúsir til að lofa öllu góðu, lofa að styðja upplýsingu og fræðslu í þessum málum, reglusemi og almennt bindindi. Slík fyrirheit eru vissulega virðing- arverð, en efndirnar verða oftast frem- ur litlar. Svæsin andstaða getur verið óþægileg, en hún vekur þó oftast sækj- anda og verjanda til átaka, en afskipta- leysið, fálætið er seigdrepandi. Án þess að það væri á nokkurn hátt ósk mín, dæmdist það á mig að sjá um ritstjórn og útgáfu blaðsins Ein- ingar. I þetta hef ég varið miklum tíma næstum þrjá áratugi. Flestir þrá að sjá sem mestan árangur verka sinna. Vanþakklátur væri ég, ef ég þakkaði ekki alla þá góðvild, sem ég hef orðið aðnjótandi í sambandi við þetta starf, og undrandi mundi margur verða, ef ég birti kafla úr yfir 100 bréfum, sem ég hef fengið frá mönnum víðs vegar um land, sæmdarmönnum, þjóðkunnum og menntuðum mörgum, sem oft hafa sagt fullmikið gott um blaðið. Sam- kvæmt þeim vitnisburði ætti það ekki að vera ólæsilegra en ýmislegt annað, sem nær til fjöldans, en skyldi það ekki vera megnið af Reykjavíkurbúum, sem vita ekki hið minnsta um að blað þetta

x

Eining

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eining
https://timarit.is/publication/833

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.