Eining - 01.06.1971, Qupperneq 16

Eining - 01.06.1971, Qupperneq 16
16 EINING Þróttmikið bréf áhugamanns Ánæg-julegt er að verða þess var, að allvíða lifir áhugaeldurinn. Bóndi norð- ur í landi, Stefán Kr. Vigfússon, norð- ur í Núpasveit, Norður-Þing., skrifar einum okkar ágæta samherja í bindind- isstarfinu mjög hvetjaandi og þrótt- mikið bréf. Þar segir m. a.: „Ég get ekki stillt mig um að minn- ast nokkrum orðum á áfengisvanda- málið. Þar sígur stöðugt á ógæfuhlið. Áfengisneyzla vex frá ári til árs, með öllum þeim óheillafylgjum, sem henni eru samfara. Mér finnst skorta mjög á öfluga sókn gegn áfengisneyzlunni. Hér gildir það sama og um önnur mál, það vinnst ekkert nema starfað sé. Áróður og starf eru þau tæki, sem nota verður til hins ýtrasta, eigi eitthvað að vinnast. Allir, sem sjá hvílíkur þjóðarvoði hér er á ferð, með sívaxandi áfengisneyzlu, og þeir hljóta að vera margir, verða að taka höndum saman — samtök eru máttur — og breyta vörn og undan- haldi í sókn. Landssamtök gegn áfengis- bölinu, áfengisvarnanefndir, Góðtempl- arareglan og allir aðrir áhugamenn um þetta mál, verða að sameinast. Með samtaka sókn allra þessara aðila, er enginn vafi á að viðhorf muni ger- breytast, og vöni og undanhald snúast í sókn. Sækja mætti fram á mörgum vígstöðvum og eftir ýmsum leiðum og kreppa þannig að óvininum.“ Bréfritarinn flytur svo alllangt mál í ýmsum liðum um það, hvað gera þurfi og hvernig, en það verður ekki birt hér, því að áratugum saman erum við bind- indismenn búnir að glíma við öll þessi atriði. Ef bréfritari vildi fletta nokkr- um árgöngum af blaði okkar Eining- unni, mundi hann sjá, að við höfum ekki sofið á verðinum, en það eru mörg ljón á veginum og er þá komið hér að ofureflinu, sem vikið skal að dálítið nánar. Bréfritari nefnir t. d., hve á- hrifaríkt það væri, ef landssamtök bind- indismanna skoruðu á ríkisstj ómina að hætta öllum vínveitingum í opinberum veizlum sínum, og fylgja svo áskorun þessari fast eftir. Áratugum saman erum við bindindis- menn búnir að samþykkja og senda frá þingum okkar slíka áskorun, en allt situr við hið sama. — Gott er að kynn- ast áliti bréfritarans á áfengisbanni. Hann segir: „En lokamarkið hlýtur að vera alger útrýming áfengis úr landinu. Svo fráleitt sem þetta sýnist vera, hef ég þá trú, að það sé framkvæmanlegt. Með sameiginlegu átaki margra, fórn- fúsu starfi, og bjargfastri trú á mál- staðinn.“ — Þetta er vel mælt. Komum nú snöggvast að „ljónunum á veginum,“ sem áður voru nefnd, þeg- ar um það er að ræða, að hóa saman allsherjar samtökum til áróðurs gegn áfengispestinni. Hið fyrsta er þá þetta, að búið er að brytja allt þjóðfélagið niður í næst- um óteljandi félög, klúbba, hagsmuna- hópa, stéttasamtök og flokka. I öllum þessum samtökum þarf auðvitað hver að hugsa um sitt félag fyrst og fremst, og því miklu erfiðara en áður var að fá einhver allsherjar samtök um eitt og annað. Við bindindismenn stofnuð- um þó fyrir nokkrum árum Landssam- bandið gegn áfengisbölinu. I því eru nú um 30 félög og félagskerfi. Flest þau félög eru þó að mestu óvirk, en samt gott að eiga samhug þeirra og atkvæði. Þau senda fulltrúa á aðalfundi samtak- anna og fulltrúafundi. Þar eru áhuga- málin rædd og samþykkt eitt og annað. Landssamband þetta vinnur svo á ýms- an hátt, með útvarpserindum, blaða- greinum, árlegum bindindisdegi, fund- arhöldum og erindrekstri eftir því sem við verður komið. Erfiðleikar okkar bindindismanna er alltaf skorturinn á starfskröftum. Ef vel ætti að vera, þyrfti Landssambandið gegn áfengisbölinu að hafa launaðan starfsmann, áhugasaman og sterkan, sem gæti fórnað því öllum sínum kröft- um. Slíkan launaðan og fastan starfs- mann þyrfti Bindindisfélag ökumanna einnig að eiga. Áfengisgróðanum ætti að verja, eða að minnsta kosti dálitlum slatta af honum, til að launa hóp slíkra starfsmanna. Raunsæismaðurinn Bern- ard Shaw skrifaði það eitt sinn, að ef áfengissalinn ætti að borga allar skað- legar afleiðingar áfengissölunnar, þá dytti engum manni í hug að selja áfengi. Þannig ætti þetta að vera. Gróðinn af áfengissölunni á að fara sem mestur til að vinna gegn skemmdaráhrifum henn- ar. Annað ljónið á veginum er þetta, að þegar menn sjá enga leið til að ná baráttumai’kmiðinu, þá láta þeir „mátt- vana hendur“ síga. Áfengissalan á ís- landi er í sterku virki löggjafarþings og ríkisstjórnar, og landslýðurinn sér enga leið til að hrekja hana þaðan, tel- ur áfengisbann ófáanlegt og missir því áhugann, þrátt fyrir allt fræðslustarf. Því miður er það aldagömul reynsla allrar umbótastarfsemi, að áhrif fræðsl- unnar og almenningsálitið er eins hvik- ult og hverfult sem morgunroði. Hvað eftir annað hefur bindindismönnum tekizt að gera þjóðir bindindissamar, en svo hefur ófögnuðurinn dunið yfir á ný. Til dæmis ólst upp hér í landi heil kynslóð laus að mestu við áfengis- böl á árunum 1910 til fram yfir 1920, og um nokkur ár mátti landið heita þurrt, en strax er Spánarvínin komu og í kjölfar þeirra frjálsa áfengissalan, þó í höndum ríkisstjórnar, skall áfeng- isflóðið aftur yfir þjóðina, og hvorki fræðsla né almenningsálit gat afstýrt þeim ófagnaði. Sjái menn ekki tækifær- ið til að ná markinu, kólnar áhuginn. Reynslan hingað til hefur verið ömur- leg. Ljónin á veginum eru grimm, en fleiri verða ekki talin hér að þessu sinni. Örugglega er það rétt, sem bréfrit- arinn segir, að markmið herferðarinnar gegn áfengismeinsemdinni verði „alger útrýming áfengis úr landinu.“ Markviss stefna að áfengisbanni muni áreiðan- lega vekja nýjan áhuga og til starfa nýja starfskrafta og samstillt baráttu- lið, sem keppti að verðugu marki. Eng- in þjóð getur talizt sannmenntuð menn- ingarþjóð, ef hún heldur áfram að selja börnum sínum þann eiturdrykk, sem sviftir menn ráði og rænu, og gerir þá að auðnuleysingjum, plágu sinna nán- ustu, vandræðamenn á ýmsum sviðum og stundum að glæpamönnum og hörmu- legum slysavöldum. Útrýming áfengis- ins þarf að verða alþjóða-siðbót, sem á sínum tíma lögleiðir alþjóðabann á á- fengissölu. Ekkert annað sæmir þjóð- um sem vernda vilja heill og velferð barna sinna. I niðurlagi bréfsins segir Stefán Kr. Vigfússon: „Ekki er vafi á því, að þær slá oft ofbirtu í augu margi’a og glepja þeim sýn, milljónirnar, sem áfengissal- an gefur í ríkiskassann. En væri allt virt, sem til frádráttar kemur, sem að vísu er ekki hægt, en þjóáin verður á margvíslegan hátt að greiða, ekki ein- ungis í verðmætatjóni, heldur einnig, og það er það alvarlegasta, í siðferði- legu og menningarlegu tjóni, heimilis- böli, sorg og tárum. Ætli milljónirnar, sem innheimtar

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.