Okkar á milli - 01.01.1987, Qupperneq 5
NORÐURLANDSTRÓMET AÐ RATA RÉTTA LEIÐ
Eignist helsta þjóðkvæði Norð-
manna í íslenskum glæsibún-
ingi dr. Kristjáns Eldjárns
Petter Dass (1647—1708) var höfuðskáld Norðmanna á
sinni tíð. Þessi merki skáldprestur hefur sama sess í bók-
menntasögu heimalands síns og síra Hallgrímur Péturs-
son í íslenskri bókmenntasögu. Þennan sess getur hann
þakkað kvæðabálknum Norðurlandstrómet, sem hann
orti á tuttugu árum. Hefur það verið nefnt þjóðkvæði
Norðmanna. Norðurlandstrómet er margbrotið kvæði,
með raunsæum hversdagslýsingum og skreytni, alvarleg-
um hátíðleika og kostulegu skopi. Skáldið flytur lesand-
ann með sér í kynnisferð um Norður-Noreg. Lýsir lands-
háttum og náttúrufari, dýralífi og auðvitað fólkinu sem
þarna býr, lífsháttum þess, siðum og venjum. Þekking,
ást og innlifun skín af frásögninni. En þótt vel sé ort er
menningarsögulegt gildi kvæðisins ef tÚ vill enn meira.
Dr. Kristján Eldjárn þýddi kvæðið af mikilli málsnilld
og list. Fræðimannleg þekking styrkir skáldleg tök hans á
efninu. Mikill fengur er að frábærlega skrifuðum formála
dr. Kristjáns, sem veitir góða innsýn í fjölskrúðugan
skáldheim Petters Dass. I formálanum segir m.a. um
skáldskap Petters Dass:
,,Það sýnir best það skáldlega vald, sem honum
var gefið, að honum tekst að láta hið guðdómlega
og hið hversdagslega í umhverfinu koma sér sam-
an í fullkomnu samræmi og einingu. Áhugi hans á
lífínu kringum hann, landinu og fólkinu, kemur
alls staðar fram, og hann er óhræddur að draga
þaðan líkingar. Jafnvel þegar hann er að yrkja um
hið háleitasta:..."
Þegar þýðing dr. Kristjáns Eldjárns á Norðurlandstrómet
Petters Dass kom fyrst út árið 1977 vakti hún að vonum
hrifningu bókamanna og unnenda bragðmikils skáld-
skapar:
„Þýðingin er gerð af krafti og hagleik bæði, af
staðgóðri þekkingu á íslenskri skáldskaparíþrótt."
„Kjartan Guðjónsson hefur gert ágætar og vel við-
eigandi teikningar við ljóðabálkinn — ...“
(Árni Bergmann, ÞjóðvÚjanum 19. nóvember
1977).
Norðurlandstrómet eftir Petter Dass
í þýðingu dr. Kristjáns Eldjárns og með
myndum Kjartans Guðjónssonar
Þetta er saga af merkismanni og ölingi, Páli Jónssyni
vegfræðingi (1853—1939). Ellefta boðorð hans var
,,Orð skulu standa öðlingi." Hann var einstakur maður
á alla lund, óvenjulega góðhjartaður, ósérhlífinn og
spakvitur. Jón Helgason vann hér mikið þarfaverk, að
forða gleymsku sögu Páls Jónssonar. Hefur söguritar-
inn víða leitað fanga og tekst með miklum ágætum að
rekja lifandi sögu af heimildum. Aðdáun og virðing
gagnvart þessum dæmalausa_stærðfræðingi, vegalagn-
ingarmanni, náttúrubarni og jafnaðarmanni af eðlisvís-
un leiftrar hvarvetna í texta þessarar bókar.
ORÐ SKULU STANDA er ekki aðeins saga um stór-
merkan einstakling sem vegaði sveitir og heiðar í
þremur landsfjórðungum. I aðfararorðum segir Jón
Helgason m.a.: Tvisvar gaf hann aleigu sína á fyrri
hluta œvi sinnar. Fimmtugur gerðist hann fyrirvinna
barnmargrar ekkju í Biskupstungum, af því að mað-
ur hennar drukknaði við ferjustað, sem hann hafði
valið. Henni vann hann kauplaust í níu ár og stofn-
aði síðan sjóð, henni til styrktar. Meira en tvo ára-
tugi var hann vinnumaður í Húnaþingi og áskildi
sér þrjátíu krónur í árskaup. Af því gaf hann helm-
inginn. Attrceður sendi hann ríkisstjórninni árskauþ
sitt óskert, svo að hún gœti grynnt á skuldum í
kreppunni."
Það er dýrmæt reynsla að kynnast slíkum manni sem
Páli Jónssyni í jafn ágætri bók og Orð skulu standa
eftir Jón Helgason. Páll rataði alltaf rétta leið og hið
sama gerir þessi bók.
Nr.: 1461
Venjulegt verð: 1.338.- kr.
Klúbbverð: 1.079.- kr.
Nr.: 1460
Venjulegt verð: 1.396.- kr.
Klúbbverð: 998.- kr.