Okkar á milli - 01.09.1988, Síða 3

Okkar á milli - 01.09.1988, Síða 3
Að þessu sinni býður VER- ÖLD félagsmönnum sínum sem BÓK MÁNAÐARINS spánnýja og forvitnilega bók. Um Hjarnbreiður á hjara j heims heitir hún og er eftir Monj icu Kristensen. Monica erfyrsta konan sem gerist heimskauta- fari, og bókin lýsir í máli og myndum leiðangri hennar til Suðurpólsins - í slóð Roalds Amundsens. Lagt var af stað í þessa ævintýralegu ferð um miðjan desember 1986, en þá voru 75 ár liðin frá því að Roald Amundsen komst á Suðurpól- inn árið 1911. Fimm ára vinna Monica undirbjó þennan ein- staka leiðangur í fimm ár, og að vandlega athuguðu máli valdi hún sér þrjá aðstoðarmenn: enska jöklafræðinginn Neil Mclntyre og tvo danska her- menn, sem höfðu hlotið mikla þjálfun í notkun sleðahunda á Grænlandi. Þessir fjórir þátttak- endur lögðu af stað hinn 17. desember 1986 í tveggja mán- aða langa og tvísýna för í átt að Suðurpólnum, og um allan heim fylgdust menn með henni í fjölmiðlum af brennandi áhuga. Erfitt sumar Þegar hávetur ríkir hér hjá okk- ur og skammdegið er svartast, þá er sumar á Suðurheim- skautinu. Á ferð sinni um þessa stærstu hjarnbreiðu heims komst Monica að raun um, að það var galli en ekki kostur að hafa valið þann tíma ársins til fararinnar. Hundarnir sukku vegna snjóbráðar og komust ekki áfram nema með of miklum erfiðismunum. Þá greip hún til þess ráðs að ferðast á nóttunni, og með því móti gekk ferðin greiðlega. Beöiö í ofvæni Leiðinni var skipt í fimm áfanga, og þegar á ferðina leið, sá Monica sér til mikillar skelfing- ar, að óvíst væri hvort hún næði takmarki sínu, áður en siglinga- leiðin lokaðist vegna íss. Skip- stjórinn á Aurora, sem átti að flytja leiðangursmenn heim, beið í ofvæni eftir ákvörðun Monicu. Ætlaði hún að taka þá áhættu, að skipið frysi inni? Heimsathygli Meira verður ekki sagt frá þess- um óvenjulega atburði, en leið- angur Monicu Kristensens hef- ur vakið heimsathygli, og bók hennar er nú verið að þýða og gefa út í mörgum löndum. Hún hefur hvarvetna hlotið góðar undirtektir; þykir spennandi af- lestrar og skrifuð af listfengi og einlægni. Ég varð strax hrif inn af þessari bók ,,Mér finnst sérstaklega ánægjulegt að geta gefið út þessa bók á íslensku,“ sagði Björn Eiríksson, for- stjóri bókaútgáfunnar Skjaldborgar, þegar við báðum hann að segja örfá orð varðandi bók mánað- arins. „Hún er gullfalleg, og ég varð strax hrifinn af henni. Frásögnin er í senn áhrifarík og forvitnileg, og henni til stuðnings eru stórar og óvenju glæsileg- ar litmyndir. Bókin er skrifðð á norsku, og það er Grondahl & Son Forlag, sem gaf hana út á frummálinu fyrir skemmstu. Síðan hefur Gyldendal gefið hana út á dönsku og mörg fleiri kunn bókaforlög víða um heim hafa tryggt sér útgáfurétt- inn á henni. íslensku þýð- inguna gerði Gissur Ó. Erlingsson, en hann er einn af reyndustu og af- kastamestu þýðendum okkar. Mér finnst afrek Monicu Kristensen einstakt, enda hefur það vakið heimsat- hygli, þótt lítið sem ekkert hafi verið fjallað um það í fjölmiðlum hér á landi. Ég mæli því hiklaust með þessari bók og vona, að hinir fjölmörgu félags- menn Veraldar hafi ánægju af henni, en hún er eingöngu boðin þeim núna og verður ekki sett á almennan markað fyrr en síðar.“ OKKAR Á MILLI 3

x

Okkar á milli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Okkar á milli
https://timarit.is/publication/846

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.