Okkar á milli - 01.09.1988, Blaðsíða 8
HOlundur
m.tsölubók.nM:
INNn-YTJENDURWB.
NÆSTA KYNSLOÐ.
VALDAKLIKAN. 1
ARFURINN.I
dóttir inn-
flytjandans
Stórbrotin skáldsaga
Bókin Max er eftir Howard Fast,
höfund metsölubókanna Inn-
flytjendurnir, Næsta kynslóö,
Valdaklíkan, Arfurinn og Dóttir
innflytjandans, sem allar eru ís-
lenskum lesendum að góðu
kunnar. Þetta er viðamikil og
stórbrotin saga, viðburðarík og
spennandi; kjörin bók fyrir unn-
endur góðra skáldsagna. Hún
er ekki reyfari; hún er miklu
meira, eins og allar bækur
Howard Fast.
Max er heillandi persóna. Tólf
ára gamall þarf hann að vinna
fyrir móður sinni og fimm syst-
kinum á skuggalegum strætum
New York-borgar. Átján ára
hittir hann Sally Levine, gullfall-
ega stúlku, og giftist henni. Og
tvítugur að aldri fer hann til
Hollywood til aðfreistagæfunn-
ar í kvikmyndaheiminum.
Áræði hans og dirfska eru með
ólíkindum, og honum tekst að
brjótast úr örbirgð til auðs og
glæsileika.
Nr.: 2252
Fullt verð: 1.998 kr.
Okkar verð: 1.598 kr.
Stríðsbók af bestu gerð
/ fremstu víglínu er ein af bestu
stríðsbókum Svens Hassels.
Hún gerist í Kákasus í heim-
styrjöldinni síðari. Herdeildinni
svokölluðu, sem kunn er úrfyrri
bókum höfundar, er faliö að
njósna um óvinina langt að baki
víglínunnar. Þeir tefla jafnan á
tvær hættur, lenda í ótrúlegustu
mannraunum, en tekst að lok-
um að vinna ætlunarverk sitt og
komast heilir aftur heim.
Sven Hassel er mest lesni
stríðsbókahöfundur síðari tíma.
Hann tók þátt í seinni heims-
styrjöldinni og var hermaður í
þýska hernum. Hann þekkir af
eigin raun hörmungar stríösins
og getur því lýst þeim betur en
flestir aðrir. í bókum hans er
ekkert dregið undan; hann leiðir
lesandann á vígstöðvarnar og
sýnir honum Ijóslifandi þá ógn
og skelfingu, sem þar fer fram.
Sagan er tileinkuð nokkrum
kunningjum höfundar, sem
teknir voru af lífi í herfangelsinu
Torgau.
Nr.: 2253
Fullt verð: 1.498 kr.
Okkarverð: 1.198 kr.
Úr sögu alþýðufólks
Bókin Ég man þá tíð er eftir Her-
mann Ragnar Stefánsson og
kom út á forlagi Setbergs fyrir
síðustu jól. Nafn hennar hljóm-
ar kunnuglega, því að Hermann
hefur um árabil annast sam-
nefndan útvarpsþátt, sem notið
hefur mikilla vinsælda. Bókin
hefur að geyma viðtöl og þætti
við fólk, sem Hermann hefur
kynnst í starfi sínu; hún er einn
hlekkur í merkilegri sögu ís-
lensks alþýðufólks.
Hermann Ragnar hefur valið
sér átta viðmælendur til að
koma fram í þessari fyrstu bók
sinni, og þeir eru: Valbjörg
Kristmundsdóttir, Akranesi, Jón
Kr. Kristjánsson, Fnjóskadal,
Elísabet Helgadóttir frá Grund-
arfirði, Sigríður Gunnarsdóttir,
Einarshöfn, Eyrarbakka, Ólafur
Magnússon frá Mosfelli, Ingi-
björg Þórðardóttir Waage,
Hrafnistu, Ásta Erlingsdóttir,
grasakona og Hannes Bjarna-
son frá Vestmannaeyjum.
Nr.:
Fullt verð:
Okkar verð:
2254
1.988 kr.
1.590 kr.
8
OKKAR Á MILLI