Okkar á milli - 01.09.1988, Blaðsíða 6
Lengri gjaldfrestur ef þú
greiðir með krítarkorti
Eins og flestir félagsmenn
okkar vita býöur Veröld fé-
lagsmönnum sínum aö
greiöa meö krítarkorti.
Þaö sem margir vita þó
ekki er, aö kaup t.d. nú í
september koma ekki til
greiðslu fyrr en í byrjun
nóvember, þ.e.a.s. félags-
menn fá 25-40 daga gjald-
frest í staö 15 daga.
Og þaö sem ennþá
færri vita, er aö Veröld er
eitt af örfáum fyrirtækjum
á íslandi sem þurfa ekki aö
handfæra allar greiöslur
er fara á krítarkort.
Þar sem greiðslur með
krítarkorti jukust allveru-
lega á síöasta ári, lét Ver-
öld útbúa fyrirsig hugbún-
aö sem sér um aö koma
greiðslum til krítarkortafyr-
irtækjanna í tölvutæku
formi.
Þegar þú, félagsmaður
góöur, ákveður að láta
færa kaup þín í eitt skipti
eða ávallt á kortið þitt, er
það skráö með pöntun
þinni í tölvuna. Síðan sér
tölvan um aö skrifa reikn-
ing á þig og kaup þín, sem
og annarra, á diskling sem
berst til viðkomandi krítar-
kortafyrirtækis og fer þar
beint inn á tölvuna. Meö
þessu móti höfum við gert
krítarkortagreiöslur eins
öruggar, fljótvirkar og
ódýrar og mögulegt er.
SEPTEMBER-GETRAUN VERALDAR
10 þúsund kr. úttekt h já Koggu
Þátttakendum í getrauninni fer
alltaf fjölgandi enda íslendingar
frægir fyrir að freista gæfunnar í
happdrættum og getraunum
ýmiss konar. Þess vegna viljum
við hvetja alla þá sem taka þátt í
getrauninni, og hina líka aö
sjálfsögðu, til þess aö greiöa
reikningana sína á réttum tíma.
Verðlaunin að þessu sinni eru
10.000 kr. úttekt hjá listakon-
unni Kolbrúnu Björgúlfsdóttur,
en eins og margir vita rekur hún
verslunina Koggu aö Vestur-
götu 5. Kolbrún, eða Kogga
eins og hún er oftast kölluö, er
löngu orðin þekkt fyrir sína ein-
stöku leirmunasmíö og eru
þetta því verðlaun sem margir
munu vilja vinna.
Spurningin aö þessu sinni
hljóðar svona: Hvenær á að
vera búið að greiða heimsenda
gíróseðla? Við vonum aö allir
hafi svarið á reiðum höndum.
Skrifiö rétt svar á svarseðilinn á
bls. 11 eða hringið inn rétta
lausn á símsvarann. Síminn er
29055.
Meiri afsláttur
Eigandinn að Heilsuvali,
Laugavegi 92 í Reykjavík,
hringdi til okkar á dögunum.
Hann varð of seinn til að komast
í afsláttarbókina, en býöur samt
Veraldarfélögum eftirfarandi
afslátt:
□ Hárrækt m/lazer 10%
□ Meðferð gegn
hrukkum m/lazer 10%
□ Meðferð gegn
vöðvabólgu m/lazer 10%
□ Snyrtivörurm/aloe 10%
□ Aðrar snyrtivörur 10%
Síminn hjá Heilsuvali er 11275.
Fimm heppnir
Fimm heppnir félagar unnu í
maí-getrauninni og fengu
senda grafíkmynd eftir listakon-
una Rut Rebekku Sigurjóns-
dóttur.
Þessir félagar voru:
□ Bjarndís Þorgrímsdóttir,
Stykkishólmi
□ Kjartan Páll Einarsson,
Reykjavik
□ Helga V. (saksdóttir, Sel-
tjarnarnesi
□ Ragnhildur Magnúsdóttir,
Gígarhólmhvoli
□ Jónas Bjarnason, Reykja-
vík
Starfsmenn Veraldar óska of-
antöldum vinningshöfum til
hamingju með vinningana.
Ráð við gigtarsjúkdómum
Bókin Gigtarsjúkdómar og
heilsufræði alþýðunnar er eftir
D.C. Jarvis, höfund bókarinnar
Læknisdómar alþýðunnar, sem
hefur komið út í tveimur útgáf-
um á íslensku og er fyrir löngu
uppseld og ófáanleg. Nýja bók-
in er engu síðri og veitir ótal
skynsamlegar ráðleggingar
varðandi einn þrálátasta sjúk-
dóm, sem læknavísindin þekkja
-gigtina.
D.C. Jarvis er kunnur læknir frá
Vermont í Bandaríkjunum og
hann hefur opnað þúsundum
lesenda sinna dyrnar aö hinni
alþýðlegu læknislist. Ótal bréf,
sem honum hafa borist, bentu
til þess, að liðagigt væri einn
algengasti og kvalafyllsti sjúk-
dómur heims. Hundruð gigtar-
sjúklinga óskuðu að fá að vita
hvaða ráð alþýðulæknislistin í
Vermont ætti við þessum sjúk-
dómi - og nú liggja þau fyrir í
aðgengilegri bók.
Nr.: 2249
Fullt verð: 688 kr.
Okkar verð: 495 kr.
6
OKKAR Á MILLI