Okkar á milli - 01.09.1988, Blaðsíða 10
Matreiðslubækur fyrir börn
Um allan heim eru gefnar út
sérstakar matreiðsubækur fyrir
börn, svo að þau fái tækifæri til
að spreyta sig á eldamennsku
og læri um leið undirstöðuatriði
matargerðar. Setberg hefur
gefið út tvær slíkar bækur á ís-
lensku í ritröðinni Matreiöslu-
bók barnanna; önnur heitir
Veislumatur og hin Heitir réttir.
Veröld býður nú félagsmönnum
sínum báðar bækurnar á góð-
um kjörum.
Þessar bækur eru enskar og
gefnar út í samvinnu við breska
forlagið Usborne Publishing.
Höfundurinn er Angela Wilkes,
en Sigrún Davíðsdóttir hefur
þýtt textann og lagað réttina að
íslenskum aðstæðum. Skýr
texti og fjörlegar teikningar eru
börnunum til leiðbeiningar, svo
að þau geta auðveldlega fylgt
uppskriftunum. í stuttu máli
sagt eru þetta gagnlegar bæk-
ur, sem hafa uppeldislegt gildi,
fyrir utan þá óborganlegu
ánægju sem foreldrarnir hafa af
því að sjá litlu krílin standa uppi
á stól í eldhúsinu með alltof
stóra svuntu og matreiða - í al-
vöru!
Með geimskipinu H-20
Hugkvæmni í gerð barnabóka
hefur aukist mikið síðustu árin,
svo að það verður sífellt auð-
veldara að gleðja böm og stytta
þeim stundir með því að gefa
þeim bók. Furöuferö geim-
skipsins H-20 er ein af þessum
smellnu bókum, sem allir krakk-
ar hafa gaman af.
Bókin er þannig gerð, að fram-
an á kápunni er geimskipið H-
20 í plasthulstri. Krakkarnir
byrja á því að taka það úr
hulstrinu og síðan geta þau
flogið um geiminn - til tunglsins
og allra stjarnanna. Ótal ævin-
týri gerast á leiðinni og það
kemur í Ijós, að sumar plánet-
urnar eru aldeilis furðulegar:
Eins og risastórir hamborgarar í
laginu, og svo eru kleinuhringir
á sveimi uppi í himingeimnum.
Dularfyllst af öllu er þó leynilegt
geimskeyti, sem er að finna í
bókinni - en það er algjört trún-
aðarmál.
Nr.: 2257
Fullt verð: 798 kr.
Okkar verð: 595 kr.
10
OKKAR Á MILLI