Okkar á milli - 01.09.1988, Blaðsíða 5
„Það fór ekki hjá því, að ég yrði
vör við efasemdir og hrakspár,
því að tortryggnin í minn garð
var mjög almenn. Og jafnvel
þeir sem voru mér hliðhollir,
voru margir hverjir sannfærðir
um, að þegar til kastanna kæmi
mundi ég láta einhvern karl-
mannanna taka við stjórn leið-
angursins. En slíkt hvarflaði
ekki að mér, enda hefði enginn
getað tekið við hlutverki mínu.
Ég ein hafði undirbúið og skipu-
lagt bæði ferðina og þær vís-
indalegu rannsóknir sem við
gerðum."
Á elleftu stundu
En hvernig skyldi ferðin hafa
gengið? „Leiðin til Suðurpóls-
ins var vörðuð fimm matarköss-
um, sem varpað hafði verið úr
flugvél," svarar Monica.
„Fyrstu tvo áfangana gekk
ferðin afar hægt. Leiðin milli
annars og þriðja hluta tók aftur
á móti aðeins fimm daga, en við
höfðum reiknað með átta. Þeg-
ar hér var komið sögu var ég
orðin vongóð um, að við kæm-
umst alla leið. En þá brast á
iðulaus stórhríð, svo að við urð-
um að láta fyrir berast í tjöldun-
um. Eftir þriggja daga bið vildu
félagar mínir hætta við ferðina,
en ég neitaði. Að fimm dögum
liðnum missti ég hins vegar líka
móðinn og ákvað að við skyld-
um snúa aftur í býtið morguninn
eftir. Þá bregður svo einkenni-
lega við, að hríðinni slotar og
það er komið blankalogn og
blíða. Svo að við urðum bjart-
sýn á ný og héldum ferðinni
áfram.“
Erfið ákvörðun
„Þetta var erfiðasta ákvörðunin
sem ég þurfti að taka," heldur
Monica áfram. „Félagar mínir
þrír voru allir á öndverðum
meiði við mig, svo að ákvörðun
mín gat ekki talist mjög lýðræö-
isleg.“
Eina minnismerkið
„Við einsettum okkur að finna
ef þess væri nokkur kostur eina
minnismerkið um för Roalds
Amundssens árið 1911,“ segir
Monica Kristensen að lokum.
„Og það tókst. Hér var um að
ræða vörðu, sem Amundsen
hlóð uppi á fjalli. Við fundum
fjallið, klifum það - og þarna
stóð varðan enn eftir 75 ár.“
Hámenntaður
vísindamaður
Monica Kristensen er 38 ára gömul; fædd hinn 30. júní árið
1950 í Torsby í Svíþjóð, en ólst upp í Kongsvinger í Noregi.
Móðir hennar var sænsk, en faðirinn norskur.
Snemma kom í Ijós, að hún var gædd góðum námshæfi-
leikum, enda er ferill hennar á menntabrautinni óvenju
glæsilegur. Hún tók fyrst cand. mag.-próf í stærðfræði og
efnafræði frá Oslóarháskóla og síðan cand. real.-próf í hug-
myndafræðilegri efnafræði frá háskólanum í Tromsö. Árið
1979 fékk hún námsstyrk frá British Council og einnig kenn-
arastöðu við Cambridge-háskóla í Englandi. Þaðan tók hún
fyrst meistarapróf í heimspeki 1980 og síðan doktorspróf á
sviði jöklafræði 1983.
Á árunum 1976-78 starfaöi Monica á rannsóknarstöð
Norsku heimskautastofnunarinnar á Svalbarða og dvaldist
þar í tvö ár - eina konan í hópi sjö karlmanna.
Það var á þessum árum sem áhugi hennar vaknaði á
heimskautasvæðunum og hún eignaðist nokkra græn-
lenska sleðahunda.
Monica Kristensen hefur tekið þátt í mörgum vísindaleið-
öngrum bæði á norðlægum og suðlægum slóðum og skrifað
greinar um rannsóknir sínar í alþjóðleg vísindatímarit, en
Um hjarnabreiður á hjara heims er fyrsta bók hennar.
Hún er nú búsett á æskuslóðum sínum í Kongsvinger.
OKKAR Á MILLI
5