Leo - 01.12.2005, Blaðsíða 38

Leo - 01.12.2005, Blaðsíða 38
Fumlaús við stýrið. Drangeyjarjarliiw á fullu stími... Lionsklúbbwinn HÆNG UR Drangeyjarferð Hængs... mr Enn á ný héldu Hængsfélagar og áhangendur þeirra áfram að heimsækja eyjarnar hér í ná- grenni við okkur og nú var það Drangey í Skagafirði sem var næst á dagskrá. Gist var á tjaldstæðinu að Reykjum á Reykjaströnd og þaðan sigldi „Drangeyjarjarlinn" með hópinn út í Drangey. Það var samdóma álit allra þeirra sem fóru út í eyju að þetta hafi verið ákaflega skemmtilegt, enda var vanur leiðsögumaður með okkur sem skýrði frá sögu eyjunnar og sagði okkur frá atburðunum sem þar gerðust er Grettir Ásmundarson og bróðir hans Illugi voru þar sem útlagar. Þegar í land var komið var farið í Grettislaug, grillað, etið og sungið fram á kvöld. Gert klárt fyrir brottför. Drangeyjarfarar koma sér fyrir um borð.

x

Leo

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Leo
https://timarit.is/publication/847

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.