Reykvíkingur - 23.05.1928, Side 5

Reykvíkingur - 23.05.1928, Side 5
37 REYKVIKINGUR hverju, en |)ó aldrei líkt }rrí eins og í fyrra. I’að sem gerir aðal- muninn um grassprettuna, er pað, að eftir að hlaðið var fyrir Djúp- ós, liggur vatn ekki staðaldri yfir mýrinni á vetrum, svo sem áður var. Eru baindur, sem parna eiga land að., en peir munu vera um 50, farnir að tala um að gera ráð- stafanir til pess að sjá mýrinni fyrir nægu vatni, og er óskandi að pað verði áður en pað skemm- ist meira, petta langstærsta og fræg- asta slægjuland á Islandi. Flugslys í Englandi. Sunnudaginn 6. maí varð flug- slys nálægt Bristol. Flugvél með flugmanninum Hopper, sem var 24 ára, og manni að nafni Tann- cr, sem var 21 árs og var að læra að fljúga, stakst beint á höfuðið og féll eins og steinn til jarðar. Kviknaði samstundis í henni, og brann hún upp til agna, alt pað sem brunnið gat, á einum prem mínútum. Pað kom pegar fólk á vettvatig, en gat ekkcrt gert. Flug- mennirnir fundust í vélarruslinu, en svo skaddaðir af eldinum, að ekki var hægt að pekkja pá að. Tanner var einkasonur foreldra sinna. *• * * Sama dag og petta slys varð, féll önnur flugvél til jarðar á St. Marys Fields við Mill Hill. Flug- maðurinn, sem hét Young, kast- aðist út úr vélinni, um leið og hún nam við jörðu, og um 12 stikur frá henni. Slapp hann pann- ig með naumindum við að brenna lifandi, pví vélin mölbrotnaði og brann á svipstundu. Young var fluttur á spítala; hann hatði meiðst töluvert á höfði og íótbrotnað. — Komið var að 72 ára göml- um manni, er farið hafði inn i hús eitt í Lundúnum til pess að stela. En sá gamli gerði sér litið fyrir og stökk út um glugga, til pess að komast undan. En í fall- inu fótbrotnaði hann og meiddist að auk mikið í andliti. Pað var farið með hann á sjúkrahús. — Við St. Denis, nálægt París varð níu ára gamall drengur fyrir líkvagni (pó ekki færi hart) og beið bana af. — I Pálskirkjunni miklu i Lund- únum stóð maður upp og hjelt ræðu, pegar Lundúnabiskup ætlaði að fara að stíga í stólinn. Lög- reglan tók hann. En pegar biskup ætlaði að byrja í annað sinn, stóð upp annar maður og hélt ræðu. Hann var líka tekinn, og pá fyrst fékk fólkið að heyra guðsorðið.

x

Reykvíkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.