Reykvíkingur - 23.05.1928, Blaðsíða 9

Reykvíkingur - 23.05.1928, Blaðsíða 9
REYK VIKINGUR 41 Felix greifi. Mikið er nú að lægja hatrið, sem blossaði upp í heimsstyrjöid- inni milli ófriðarþjóðapna. Má 6já ^að svo er á frásögninni í síÖasta blaði um það, hvernig tveir forn- ir óvinir, þeir Koehl og Fitzmau- rice, hvor um sig frægir flug- menn úr striðinu, annar úr iiði Þjóðverja, en hin,n Englendinga, halda í sameiningu og bezta bróðerni í flugferð yfir Atlants- haf — ferð, sem eins mátti bú- ast við að kostaði þá báða Iífið. Annað dæmi er bók sú, sem nýkomin er út í Englandi um afreksverk Þjóðverjans Felix greifa von Luchner — afreks\’erk, sem kostuðu Englendinga millj- ónir og aftur milljónir sterlings- punda. f víking á seglskipi Þegar Englendingar voru búnir að loka öllum sjóleiðum til Þýzkalands með flota sínum, datt I>ýzka sjóliðsforingjanum Felix greifa von Luckner það ráð í hug, að nota seglskip til þess að komast í gegn um herkviar Eng- lendinga, og gera verzlunarflota þeirra skráveifuir með. Valdi hann til fararinnar þrí- mastrað amerískt seglskip (clip- per), er Þjóðverjar höfðu náð. Var nú farið að útbúa það, og var því breytt frá stefni til skuts, Voru gerð í þrí leynirúm fyrir hríðskotabyssur, riffla, sprengi- kúlur, handsprengjur og annan vopnaútbúnað. Þá voru og stór og mikil rúm — heilar íbúðir — fyrir skipshafnir af skipum þeim, sem gert var ráð fyrir aö sökkva. Tveir 500 hestafla hreiflar voru látnir i skipið, því víða í suður- höfum eru lognbelti suma tíma ársins, sem lítt möguiegt er að komast um á seglskipum. í skipinu var geymir með 480 smá- lestum af olíu, og annar jafnstór með drykkjarvatni. / Var það tveggja ára forði af vatni; höfðu þeir einnig vistir til tveggja ára. Skipið var skirt „Sæörninn", en ekki var það á það málað, held- ur nafnið „Meleta“, sem var nafn á norsku skipi, sem var mjög svipað að stærð og útliti. Var ekkert að sjá ofan þilfars, er gæfi grun um að þar væri annað en norskt skip mieð timburfarm á ferðinnL Dagurinn nálgaðist, að „Sæöm- inn“ yrði tilbúinn að leggja út. En eitt vantaði, og það voru skipsskjöl Meletu. Fór i7elix greifi nú til KaupmannahaBnar, en þar lá Meleta. Klæddist hann verkamannabúningi og komst í vinnu við uppskipun úr Meletu til þess að kynnast siðum manna

x

Reykvíkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.