Reykvíkingur - 23.05.1928, Page 26

Reykvíkingur - 23.05.1928, Page 26
56 REYKVÍKINGUR Yísindaleiðangur til Grænlands. Danir gera úf í ár stóran vísindaleiðangur til Grænlands. Eru veittar til hans á fjárlög- unum 90 þús. kr., en Carls- bergssjóðurinn leggur tram 50 þúsundir. Einokunar-verzlunin græn- lenzka leggur til leiðangurs- skipið, en það er skipið „Godt- haab" {seglskip með gufuvél) en flotamálaráðuneyfið hefur kostað nauðsynlegar breyling- ar á því og leggur fil áhöfnina- Fararforinginn er Riis Car- síensen hötuðsmaður. Það er sjórinn við veslur- sfrönd Grænlands, sem á að rannsaka, alt trá suðuroddan- um norður í Etah. Er búist við, að för þessi muni veíta vit- neskju um margt viðvíkjandi fiskigöngum við Grænland. Gert er ráð fyrir að haldið verði aftur heim með haust- inu, nema skipið teppist af ís norður í Meville-flóa. En komi það fyrir sem vel getur orðið, þá hafa skipverjar með sér nógar vistir og annan úfbúnað og geia þolað vefurselu þar nyrðra. Gert var ráð fyrir að leið- angursmenn legðu af stað frá Kaupmannahöfn 5. mai, og að komið yrði viö hér á landi, annaðhvort á Austfjörðum eða í Reykjavík. Hcstapjófur með skammbyssu. I Sjöbo í Svípjóð, nálægt Lundi, bar það við i. þ. m. að tvítugur vinnumaður að nafni Karl Ander- sen, strauk og stal hesti, en lög- reglan náði honum, og fór með hann í fangelsi. En þegar pangað kom, tók hann upp hjá sér skamm- byssu og ógnaði lögreglumönnun- um með henni, og slapp hann þannig frá peim. En hann var eltur, og pegar rétt var komið að pví að honum yrði náð, tók hann að skjóta á hópinn, sem elti hann. Skaut hann þrem skotum, en hitti engan. Faldi hann sig síðan bak skíðgarð; en er hópurinn nálgað- ist aftur, skaut hann sig þrem skotum, er öll hæfðu nálægt hjart- anu. Hann var með lífsmarki pegar komið var að honum, en var ör- endur pegar komið var með hann á sjúkrahúsið í Lundi. Ekki er kunnugt hvað hafði leitt pennan ógæfusama ungling til þess verkn- aðar, annað en pað, að hann var undir áhrifum víns,

x

Reykvíkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/854

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.