Vera - 01.06.1998, Side 4
Indíánar með myndavélar
Efnisyfirlit
Kjaramál kvenna 6
Sláandi tölur úr launakönnun Verslunarmannafélags Reykjavíkur sem staðfestir að
launamunur kynjanna er 40%. Rætt við Gunnar Pál Pálsson hjá VR um hugsanlegar
skýringar. Hvað segja Sóknarkonur? Steinunn Eyjólfsdóttir svarar því. Viðtal við Onnu
Sjöfn Jónasdóttur sem var í forystu fyrir Framboð verkafólks í Dagsbrún &c Framsókn.
Viðtal við Lilju Mósesdóttur hagfræðing um stöðu kvenna á vinnumarkaði.
Forsíðumyndin er af konunum
fjórum sem gengu yfir Gr*n-
landsjökul.
tímarit um konur
og kvenfrelsi
3/98 -17. árg.
Austurstræti 16,
101 Reykjavík
s: 552 2188
og 552 6310
fax: 552 7560
vera@centrum.is
http://www.centrum.is/ver8 *
Ætla að lyfta vœngjum 17
Jóhanna B. Magnúsdóttir ferðamálafulltrúi Skaftárhrepps í viðtali við Jónu Fanneyju
Friðriksdóttur. Jóhanna hefur unnið að umhverfisvænni ferðaþjónustu en er á förum til
Bandaríkjanna þar sem hún mun búa í vistvænu þorpi.
Karlar, konur og kisur - fangar eðlisins 20
Sigríður Þorgeirsdóttir lektor gagnrýnir bók Gunnars Dal í dag var ég kona sem seldist
vel um síðustu jól og var sögð tilvalin bók fyrir fermingartelpur. “Með þessari bók býður
Gunnar Dal upp á enn eina goðsögnina um eðli og hlutverk kvenna,” segir Sigríður m.a.
Indíánar með myndavél 22
Einn af viðburðum listahátíðar var ljósmyndasýning Maya indíána frá Mexíkó í Gerðu-
bergi. Kennari þeirra, Carlota Duarte, kom með þeim og á sama stað var sýning hennar
á ljósmyndum af bandarísku konunni Odellu.
Mver dagur var sérstakur 26
Þær tóku sig til í maí sl. og gengu yfir Grænlandsjökul. Eins og sannar kvenhetjur gera
þær ekki mikið úr afrekinu, en er ekki rétt að talsvert hafi þótt til koma þegar karlar
gengu þessa sömu leið fyrir nokkrum árum? Ragnhildur Helgadóttir ræddi við Önnu
Maríu, Þóreyju, Dagnýju og Maríu Dögg Grænlandsfara.
Hvað verður um heimilissorpið? 32
Hvað hugsar þú þegar þú stendur í eldhúsinu og tæmir mjólkurfernu, sultukrukku eða
hendir matarleifum? Gunnhildur Hrólfsdóttir skrifar um sorpflokkun og umhverfisvæna
hugsun.
Margrét í Míru 35
Ræða Margrétar Kjartansdóttur eiganda húsgagnaverslunarinnar Miru sem vakti mikla
athygli á ráðstefnunni Konur og frumkvæði sem haldin var í Borgarleikhúsinu í maí.
Að vera eða vera ekki leigjandi í Reykjavík 38
Birgitta Jónsdóttir skrifar um reynslu sína af því að þvælast á milli leiguíbúða í Reykja-
vík og reyna að fá greiðslumat í félagslega húsnæðiskerfinu. í þessari ferð hefur hún
komist að því að heiðarlegasta fólk grípur til hvítu lyginnar til að komast yfir húsnæði.
Frumherjar í myndlist kvenna 42
1 júlí stendur Kvennasögusafnið fyrir sýningu í Norræna húsinu á myndlist frumherjanna
og í tengslum við hana verða ýmsar spennandi uppákomur. Guðrún Dís Jónatansdóttir í
Kvennasögusafninu greinir frá.
Öruggt skjól í Dyngjunni 45
Nýlega var áfangaheimilið Dyngjan 10 ára en það var stofnað af velferðarfélaginu Kon-
unni og er ætlað konum sem lokið hafa áfengismeðferð og þurfa aðstoð við að komast
út í lífið aftur. Rætt við Jóhannes Má Gunnarsson forstöðumann.
Bíó 41, Umhverfismál 47, Tónlist 48
útgefandi
Samtök um kvennalista
ritnefnd
Agla Sigríöur Björnsdóttir,
Annadís G. Rúdólfsdóttir,
Jóna Fanney Friðriksdóttir,
Ragnhildur Helgadóttir,
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir,
Sólveig Jónasdóttir,
Vala S. Valdimarsdóttir
ritstýra og ábyrgöarkona
Elísabet Þorgeirsdóttir
skrifstofustýra
Vala S. Valdimarsdóttir
útlit og tölvuumbrot ,
Matthildur Björg Sigurgeirsdóttir
Ijósmyndír Bára o.fl.
auglýsingar
Áslaug Nieisen
sími 533 1850
fax 533 1855
filmuvinna
Offsetþjónustan hf.
prentun
Grafík
plastpökkun
Vinnuheimilið Bjarkarás
©VERA ISSN 1021-8793
ath. Greinar í Veru eru
birtar á ábyrgö höfunda og
eru ekki endilega stefna
útgefenda.
4 v£ra