Vera - 01.06.1998, Side 9
Launamál ekki rædd
við framkvæmdastjórann
Karlarnir
hafa tækifæri til
r~i
'Cd
s
cd
u cd q
cö
o
að æfa sig betur
i vinnunm
Gunnar Páll PálssDn er ÍDrstöðumaður fjármála-
□g hagdeildar VR. Hann ritaði grein um launa-
mun kynjanna í VR blaðið fyrir nokkru þar
sem hann skoðaði ýmsa þætti sem gætu útskýrt
launamun kynjanna. Komst hann að þeirri niður-
stöðu að fleiri þættir en kynferðið réðu launamunin-
um. Viðhorf til vinnu, kröfur til vinnu og vinnutími
skiptu þar líka máli. Við settumst niður og ræddum
hvaða leiðir væru færar til að eyða launamuni á milli
kynja.
Ung kona, 24 ára, réð sig til starfa viö simsvörun hjá heildverslun á höfuðborg-
arsvæöinu fyrir u.þ.b. einu og hálfu ári. Hún hafði lokið stúdentsprófi af versl-
unarbraut. Hún var ráðin í gegnum ráðningarstofu þar sem ráöningarfulltrúi upp-
lýsti hana um launakjör. Byrjunarlaunin væru á bilinu 85.000-90.000 kr, hækkun
eftir þrjá mánuði og þau myndu síðan hækka eitthvað meira nokkrum mánuðum
síðar.
Þegar hún hóf störf var henni tilkynnt að hún fengi 85.000 kr í mánaðarlaun. Þremur
mánuðum síðar hækkuðu launin í tæpar 90.000 kr. Litlu síðar var VR hækkun og þá fóru
launin upp í 92.500 kr. Hún starfaði í tæpt ár við móttöku og símsvörun og á þeim tíma
hækkuðu launin ekkert. Tæpu ári eftir að hún hóf störf við fyrirtækið bauðst henni til-
færsla í starfi, að taka við starfi sölumanns. Hún þáði það með þökkum. Sölumanns-
starfið færði henni ekki launahækkun. í dag, einu og hálfu ári eftir að hún hóf störf hjá
fyrirtækinu, er hún með sömu og laun og fyrir ári, eða 92.500 kr.
“Þetta er eini hlutinn af starfinu sem ég er óánægð með. Mér finnst þetta virkilega lé-
leg laun. Að öðru leyti er þetta mjög gott og skemmtilegt starf.”
Heíur þú farið fram á kauphækkun við framkvæmdastjórann?
”Nei, ég hef ekki gert það og það er í raun og veru minn veikleiki.Ég hef bara ekki haft
kjark í mér til að biðja um launahækkun. Það eru ákveðin atriði sem maður minnist ekki
á í þessu fyrirtæki. Launin eru einn þáttur þess. Mér finnst að allir hugsi á þann veg."
Nú starfa trúnaðarmenn í flestum fyrirtækjum, hefur þú rætt við hann?
"Trúnaðarmaðurinn er mjög óvirkur. Ég var búin að starfa í marga mánuði þegar ég
spurðist fyrir um hver væri trúnaðarmaður. Þá sagði einn þeirra: “Ætli það sé ekki bara
ég-”
Þess má geta að unga konan er eini kvenmaðurinn sem sinnir starfi sölumanns, allir
hinir eru karlmenn. Þeir hafa mismunandi langan starfsaldur hjá fyrirtækinu en þeir hafa
ekki allir lokið stúdentsþrófi. Hún telur fullvíst að þeir hafi töluvert hærri laun en hún fær
greidd. Séu meðallaun félaga VR borin saman við launin sem hún fær er nokkuð Ijóst að
einhverjir á vinnustaðnum fá greidd há laun.
Hvad
viltu vita
stöðu kynjanna?
Hagtölur um
konur og karla
Bæklingurinn Konur
og karlar 1997 hefur
að geyma nýjustu
upplýsingar um
stöðu kynja á fjöl-
mörgum sviðum
þjóðlífsins.
Efnið spannar m.a.:
• mannfjöldann
• lifsvenjur
• menntun
• atvinnu
• laun og tekjur
• áhrifastöður
Tekið er á móti pöntimum
i símum: 560 9860 og 560 9866,
og bréfasíma: 562 3312.
Hagstofa íslands
Skuggasundi 3, 150Reykjavík
S. 560 9800 Bréfas. 562 3312
Netfang: hagstofa@hagstofa.is
vera 9