Vera - 01.06.1998, Síða 29
r ^
3. maí
í gær og í dag höfum við farið frekar hægt yfir. Fórum við aðeins um 7 km í dag og höfum farið
20,7 km á síðustu tveimur dögum. Snjórinn er djúpur og gljúpur og þungt að vaða hann í ökkla og
hné. Þegar við lögðum af stað í morgun voru 3 vindstig en það fór stígandi í dag og klukkan þrjú
voru 7-8 vindstig og hlóðum við varnarvegg um tjöldin og tók það 3 tíma. Höfum aðeins einu sinni
áður þurft að hlaða vegg. Færið skánar náttúrulega þegar blæs því þá verða skaflarnir fínir. Við
vöknum klukkan sjö og leggjum af stað rétt fyrir tíu. Búnaðurinn hefur reynst vel, t.d. var flestum
of heitt síðustu nótt. Við erum að elda kvöldmatinn núna. Fengum fjallalambskæfu í forrétt, í aðal-
rétt verða amerískar núðlur með kjúklingi og sett smjör útí til að við verðum örugglega ekki of hor-
uð. Við heyrum mikið í flugvélum, það er mikil traffík hér yfir. Að sögn Einars Torfa er þetta mun
þyngra færi en þegar hann fór fyrir tveimur árum og miklu heitara líka.
Staðsetning 8. næturstaðar: 66fl 5’ 54” N og 40fl 53’ 15” V
Lagt að baki: 108,2 km.
1900 m hæð
7. maí
Ferðin gengur vel, við fórum 20,1 km í dag og í gær 20,6 km. í morgun fór að blása en skánaði
þegar leið á daginn og síðdegis voru komin 3 vindstig og nú er logn og fínt veður. Færið var hart
og gott. í gær var hvassara og lágrenningur allan daginn. Sólskin hefur verið báða dagana og við
erum orðin sólbrennd á nefinu og þurfum því að endurskoða hversu oft við berum á okkur sólar-
vörn. Við sáum för í dag, en sáum reyndar ekki í hvora áttina þau lágu. Við vitum ekki hvað göm-
ul þau eru, en sennilega eru þau eftir Frakkana sem við bjuggumst við að hitta. Við höfum senni-
lega farið á mis við þá í vonda veðrinu um daginn.
Síðustu nótt var frostið -24 flC en á daginn hefur verið -11 flC. Síðdegis í dag fór hlýnandi og var
komið í -6 flC en er kólnandi nú aftur með kvöldinu. í morgun bræddum við gat á annað tjaldið en
það var sett upp saumaverkstæði f skyndi og við gerðum við það og er það í góðu lagi núna.
Dagurinn er I föstum skorðum. Við göngum í um það bil eins og hálfstíma lotum og tökum um
hálftíma hlé á milli, fer reyndar eftir veðri. Hléin eru 3-4 á dag. Ef það er skafrenningur förum við
í dúnúlpurnar og snúum baki í vindinn sitjandi á snjóþotunum og svo étum við okkur til hita, borð-
um harðfiskinn með miklu smjöri. Hann er til hádegisverðar á hverjum degi og þykir einstaklega
góður. í þessu færi þarf ekkert að troða en um daginn í snjónum skiptumst við á að troða, hver
tróð í 20 mínútur og þá kom næsti. Við höfum einungis þrisvar þurft að hlaða varnarvegg annars
tjöldum við beint á jöklinum. Varnarveggurinn er skeifulaga og hlaðið að honum að utanverðu
þannig að fjúki yfir hann.
Á kvöldin eldum við þegar við komumst inn í tjöldin og förum svo beint að sofa. Eini dagurinn
sem við höfum gripið til lesefnis er daginn sem við vorum veðurteppt.
Staðsetning 11. næturstaðar: 66fl 14’ 37” N 42fl 14’ 48” V u.þ.b. 2200 m hæð.
Ferðadagar: 12
Lagt að baki: 171,3 km
Hafíd þið hugleitt hvaða áhrif lerð ykkar
hefur á aðrar konur?
„Við vonum að hún sé hvetjandi fyrir þær
stelpur sem eru að byrja í fjallaferðum. Það
er mjög mikilvægt að stelpur hafi úrval fyr-
irmynda því það getur hjálpað þeim að
skapa sér sína eigin sjálfsmynd.”
Þórey tekur dæmi af því þegar Spice girl á-
hugi stelpnanna í bekknum sem hún kennir
gjörbreyttist á þeim tíma sem Vala Flosa-
dóttir varð heimsmeistari. Stelpurnar gerðu
hana að sinni fyrirmynd og áhugi þeirra á
Spice girl snar minnkaði. „Konur eru lítt á-
berandi í fjallamennsku og lítið fjallað um
afrek þeirra, rétt eins og í öðrum íþrótta-
greinum. Fyrir fáum árum fór til dæmis
fyrsta konan þvert yfir landið á gönguskíð-
um. Um það var nánast ekkert fjallað í fjöl-
miðlum.”
Eruð þið sáttar við umfjöllunina um ykk-
ur í fjölmiðlum?
„Samanborið við aðra álíka leiðangra hefur
umfjöllunin verið lítil. Fjöhniðlar hafa ekki
sýnt okkur mikinn áhuga og ferðin þykir
greinilega ekki mjög fréttnæm. Það má segja
að áhuginn á ferðinni hafa ekki kviknað að
ráði fyrr en við vorum meira en hálfnaðar og
þá út frá þeirri forsendu að okkur vantaði
kaffi! Við höfum hins vegar fengið mikil við-
brögð frá almenningi og finnst það mjög
ánægjulegt.”
dömubindi og tíðatappa um 100 ár að eyðast
úti í náttúrunni og því hefðum við þurft að
bera þetta niður aftur eins og allt annað rusl.
Við notuðum svokallaðan álfabikar sem er
nýlega kominn á markað og er margnota
tíðatappi. Við mælum með álfabikurum í
fjallaferðir.”
Hvernig gekk ykkur að útvega styrktar-
aðila?
„Það var mjög erfitt fyrir okkur að útvega
styrki og við bárum því tvo þriðju af kostn-
aðinum sjálfar. Við komumst mjög fijótlega
að því að það væri erfiðara að afla styrkja til
kvennaferða en karlaferða. Við höfðum sam-
band við fjölda fyrirtækja og verslana og á
sumum stöðum var okkur neitað á þeirri for-
sendu að eingöngu líknar- og íþróttafélög
væru styrkt. Við vissum hins vegar að mörg
þessara fyrirtækja styrktu Everestfarana og
Suðurskauts- og Grænlandsfarana sem
gengu yfir jökulinn árið 1993. Við fengum
það á tilfinninguna að sumir tryðu því ekki
að við myndum klára ferðina. I þeirra augum
var þetta kannski áhættuauglýsing. Einn að-
ili sagði til dæmis að hann styrkti þetta fram-
tak hvort sem við kláruðum ferðina eða ekki.
Að sjálfsögðu kom aldrei neitt annað til
greina en að við kláruðum ferðina.”
Leitarðu suara?
Vantar þig upplýsingar um þjónustu,
rekstur eða stjórnkerfi Reykjavíkurborgar?
Ef svo er, vinsamlega hringdu
í upplýsingaþjónustu Ráðhússins
í síma 563 2005 eða flettu uppá
heimasíðu Reykjavíkurborgar
*á Internetinu: http://www.reykjavik.is
vra 29