Vera - 01.06.1998, Síða 30
Sálin i Austurlöndum fjær er Dngnýju löngu kunn. Hún hefur gaman að
andstædum.
Hvaö tekur sva við?
Þær líta hver á aðra en segja síðan að ekkert sé
fast ákveðið. Hver og ein þeirra hefur sín mark-
mið en það er aldrei að vita nema þær taki sig
saman að nýju og leggi annan jökul eða fjall und-
ir fót. Þegar ég kveð þær heyri ég að mörg ný á-
form eru í gangi svo það er langt í frá að þær ætli
að leggja skíðin, gönguskóna, ísaxirnar, sólgler-
augun.... og pissutrektirnar á hilluna.
A
13. maí
Allt gengur vel. Við gengum 32,4 km í dag og 27 km í gær. Vindur hefur ver-
ið í bakið sem hefur mikið að segja og einnig er farið að halla undan fæti þó
hallinn sé ekki mikill ennþá. Við eigum nú einn dag ófarinn að Dye2-stöðinni.
í morgun vöknuðum við söng snjótittlings og er þetta í þriðja sinn sem hann
kemur til okkar (sennilega er þetta alltaf sá sami). Honum var gefið að éta og
var mjög spakur. Við lögðum svo snemma af stað, um hálftíu og vorum kom-
in í náttstað um sjöleytið. Frostið síðastliðna nótt var 20 gráður og í dag voru
5 vindstig en það hefur lygnt með kvöldinu. Skyggni var frekar slæmt þannig
að við slepptum að nota fjallhífarnar, til að verða örugglega ekki viðskila. Það
var éljagangur allt í kringum okkur og við lentum einu sinni í éli en annars var
lágrenningur.
En skyggnið er orðið gott núna. Færið er hart og gott og þess vegna
komumst við hratt yfir. Nú eru allar búnar að taka skinnin undan skíðunum
en Anna María og María Dögg nota áburð undir skíðin til að ná einhverrri
spyrnu. “Við erum því öll orðin skinnlaus, og reyndar á nefinu líka,” sagði
Anna Marfa í spjallinu. "Miðað við núverandi yfirferð komumst við niður af
jöklinum 20. - 21. maí og gætum verið að koma heim laugardaginn 23. en
það fer nú allt eftir veðrinu.”
Hinn daglegi matseðill hljóðar svo: í morgunmat er bræddur snjór í neyslu-
vatn og hellt útá musli. Stundum er hrökkbrauð eða eitthvað annað með. í
morgunkaffi (um 10-leytið) er súkkulaði og djús eða te, í hádegismat er harð-
fiskur, kex, rúllupylsur, pepperoni, spægipylsur og mikið af smjöri, í miðdeg-
iskaffi (um 3-leytið) er súkkulaði, te eða orkudrykkur og í seinna miðdegis-
kaffi (um 6-leytið) er það sama. í kvöldmatinn er þurrmatur, stundum með
pepperoni eða osti og bragðbættur með hvítlauksdufti og miklu af smjöri.
Með er drukkið ávaxtate og svart te. Ekkert kaffi er drukkið í ferðinni þar sem
það gleymdist að pakka því með, Dagnýju til mikillar hrellingar.
17. næturstaður: 66fl 30’ 31” N og 45fl 34’ 19” V í u.þ.b. 2060 m hæð.
Ferðadagar 18.
Lagt að baki: 324 km.
\
Okkur var gefin náttúra...
...lörum vel með hana
SGRPA
SORPEYÐING
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs
Gufunesi, sími 520 2200
30 v£ra