Vera - 01.06.1998, Blaðsíða 41
í 1
Feministi
Tbrtímandi
Rimbaud hefur orðið ýmsum íhugunar-
eða yrkisefni enda vel þekkt.
samband (Total eclipse)
Anna Dlafsdóttir Björnsson
Ekki vinsælasta myndin
Kvikmynd Agnieszku Holland rekur sögu þeirra trúverðuglega. Mynd-
in fékk þó ekkert sérlega góðar viðtökur rniðað við fyrri verk
Agnieszku en hún fékk m.a. Golden Globe verðlaunin fyrir kvikmynd
sína Europa Europa árið 1992. Myndin er þó allrar athygli verð á fleiri
en einn veg. Alger eigingirni karlmannanna í nafni réttar þeirra til að
vera listamenn er sláandi andstæða aðstæðna kvennanna í myndinni
sem eru nánast ekki taldar með sem vitsmunaverur og félagar. Þær
koma fram sem góð kvonföng, raunsæjar rnæður eða gleðikonur sem
hafa lítinn skilning á snilligáfu skáldanna. Hvort sem það er markviss
ætlun leikstjóra eða ekki kemst þessi mynd mjög vel til skila.
Togstreita og lífslygi
í forgrunni er þó fyrst og fremst saga sambands skáldanna og togstreit-
an sem hún veldur. Verlaine grípur til ofbeldis gagnvart konu sinni í
angist sinni og lífslygi en tekst
Kvenleikstjórar
eru enn sem
komið er ekki á
hverju strái og þeir
sem fá næg verkefni
eru heldur ekki of
margir. I þessum pistli
verður sagt frá einni af
nýjustu kvikmyndum
eins þeirra, hinnar
pólsku Agnieszku Hol-
land sem hefur verið
ein hin afkastamesta í
þessum fámenna hópi
og fengið meiri viður-
kenningu og fleiri
tækifæri en flestar kyn-
ekki að velta ábyrgðinni á
sjálfri sér yfir á hana. Óregla
Verlaine er ekki hafin á stall
eins og í sumum eldri frásögn-
um af skáldunum þar sem eilíf
absinth-drykkja er vafin dýrð-
arljóma. Ég held að enginn
nema kona gæti gert þessari
sögu skil á sama hátt og þetta
er satt að segja í fyrsta sinn sem
ég næ einhverju sambandi við
þessa velþekktu sögu. Draumur
Mathilde, eiginkonu Verlaine,
er að flytja til Nýju Kaledóníu
og takast þar á við drykkjuna
og einnig að losna undan
draugum fortíðarinnar,
Rimbaud og útskúfun Verlaine
í kjölfar falls Parísarkommún-
unnar.
Leonardo di Caprio
góður
Höfundur skilar vel bæði góðu
systra hennar. Hún hefur bæði fengist við handritsgerð
og leikstjórn og kom við sögu gerðar tveggja mynda
þríleiksins sem kenndur er við liti franska fánans,
Rauðan, Bláan og Hvítan þar sem hún skrifaði (ásamt
tveimur öðrum) handrit af Bláum og var ráðgefandi við
Rauðan en leikstjóri var sem kunnugt er landi hennar,
Krzysztof Kieslowski. Kvikmynd sú sem hér er fjallað
um heitir Total eclipse en ég tek mér það bessaleyfi að
kalla hana Tortímandi samband með visan í efni mynd-
annnar.
Skáld í ólgu Parísarkommúnu
Árið er 1871 og París er enn titrandi eftir átökin í kringum Parísar-
kommúnuna. Ungt og óheflað skáld, 16 ára, kemur utan af landi og
sest að hjá eldri skáldbróður. Sá yngri er Rimbaud sem enn er óþekkt-
ur með öllu, sá eldri Verlaine, sem er þekkt skáld en fylgdi byltingunni
fyrr á árinu og lifir nú á góðsemi tengdaföður síns. Eiginkonan, barn-
ung, á von á barni. Saga hins tortímandi ástarsambands Verlaine og
v&a 41
og slæmu stundunum í lífi skáldanna (sundur og saman) og best tekst
henni að skila sundurslitinni tilveru Verlaine. Það er þó Leonardo di
Caprio sem stelur senunni í hlutverki Rimbaud. Fullkomin eigingirni
drengsins sem hefur komist að þeirri niðurstöðu að hann fái ekkert
nerna að hrifsa það og halda fast er trúverðug í túlkun hans. Það jaðr-
ar við ofleik í túlkun David Thewlis á Verlaine, en þó er vel hægt að
hugsa sér mann með jafn öfgafullt skapferli og hann. Samband
skáldanna var tortímandi fyrst og fremst vegna þess að samskipti
þeirra byggðu á öfgum annars og eigingirni hins. Annar þáttur í sam-
skiptum þeirra var sá að samband þeirra var samfélaginu ekki þókn-
anlegt. Á því seyði fengu þeir að súpa og voru dæmdir til fangelsisvist-
ar á endanum fyrir vikið. Hversu sterk áhrif fordæming samfélagsins
hafði á samband þeirra er ekki auðvelt að taka afstöðu til út frá mynd-
inni. Þyngra virðist óregla Verlaine vega og skortur á heiðarleika í sam-
skiptum mannanna.
Verðskuldar betri dóma
Þetta er kvikmynd sem verðskuldar betri dóma en hún fékk og gefur
nýja sýn á gamla og svolítið klisjukennda sögu. Því er óhætt að rnæla
með henni fyrir þau ykkar sem hafið gaman af dramatískri og vel
sagðri sögu og ágætum leik.