Vera - 01.06.1998, Síða 43
Dagskrá í Norræna húsinu
4. julí - 16. ágúst 1998
[ tengslum viö sýninguna Frumherjar í myndlist-fslenskar listakonur í sýningarsölum Norræna húss-
ins verður flutt fjölbreytt dagskrá tengd konum í fundarsal Norræna hússins; tónlist, kvikmyndir og Ijóð
eftir íslenskar konur í flutningi íslenskra listakvenna.
Laugardagur 4. júlí
15.00 Opnuð sýningin Frumherjar í myndlist -íslenskar listakanur.V\gd'\s Finnbogadóttir flytur
ávarp við opnunina og Áshildur Haraldsdóttir leikur á flautu.
Sunnudagur 5. júlí
16.00 Tónleikar Áshildur Haraldsdóttir, llauta og Unnur Vilhelmsdóttir, píanó flytja tónverk
eftir Mist Þorkelsdóttur og Karólínu Eiríksdóttur. Unnur Vilhelmsdóttir segir frá tónverki Karólínu. Að-
gangur kr. 700.
Þriðjudagur 7. júlí
16.00 Kanur og kvikmyndir
Heiða Jóhannsdóttir fjallar um konur í íslenskri kvikmyndagerð og sýnd verða brot úr kvikmyndum.
Aðg. kr. 700.
Þriðjudagur 14. júli
16.00 Islenskar stuttmyndir: „Tvo little girls and a war", 1995 eftir Maríu Sólrúnu Sigurðardóttur.
„Leap Year”, 1995 eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur. Aðg. kr. 700.
Þriðjudagur 21. júlí
16.00 Kvikmyndasýning Jngalá" Ásdís Thoroddsen leikstjóri ræðir við áhorfendur um kvikmynd-
ina. Aðg. kr. 700.
Laugardagur 1. ágúst
16.00 ARSIS-tónleikar. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, pianó og Bryndís Halla Gylfadóttir, selló.
Þriðjudagur 4. ágúst
16.00 Hreylimyndir eítir íslenskar kanur. Kristín María Ingimarsdóttir kynnir.
Föstudagur 7. ágúst
20.30 Kammertónleikar. Kobenhavns kammerensamble leikur barokkverk og ný verk eftir dönsk
og íslensk tónskáld. Frumflutt verkið Pottaseiöur eftir Mist Þorkelsdóttur. Aðgangur kr. 1.000
Sunnudagur 9. ágúst
16.00 Tónleikar. Sönglög eítir íslenskar konur. Auður Gunnarsdóttir sópran, Unnur Vilhelmsdótt-
ir píanó, Hallfríður Ólafsdóttir flauta og Lovísa Fjeldsted flytja lög eftir m.a. Jórunni Viðar. Aðg. kr. 700.
Þriðjudagur 11. ágúst
16.00 Kvikmyndasýning. „Svo á jörðu sem á himni". Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri ræðir við á-
horfendur um efni myndarinnar. Aðg. kr. 700.
Föstudagur 14. ágúst
20.30 Tónleikar. Kvennakórinn Vox Feminae syngur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Á efnis-
skránni eru lög frá ýmsum löndum. Aðgangur kr. 700.
Laugardagur 15. ágúst
16.00 Ljóðastund. Islenskar skáldkonur lesa úr Ijóðum sínum. Umsjón hefur Ingibjörg Haralds-
dóttir.
Sýningar i anddyri
1.-19. júlí. Kona í íslensku landslagi Ljósmyndir eftir Petter Hegri, Noregi. 22.júlí - 16. ágúst
Ljósmyndir af listakonunum, frumherjar í íslenskri myndlist.
Hvernig tengist sýningin í Norræna hús-
inu þessari bók?
„Ég fékk þá hugmynd í vetur að gaman
væri, til að kynna bókina, að halda sýningu
á verkum þeirra kvenna sem við fjöllum um
í myndlistarkafla bókarinnar. Við vorum
svo heppnar að ekki var búið að bóka sum-
arsýningu Norræna hússins svo við fengum
þar inni. Á sýningunni verða verk eftir þær
Þóru Pétursdóttur Thoroddsen (1848-1917),
Kristínu Vídalín Jacobson (1864-1943),
Kristínu Þorvaldsdóttur (1870-1943),
Júlíönu Sveinsdóttur (1889-1966), Kristínu
Jónsdóttur (1888-1959), Barböru Árnason
(1911-1975), Nínu Tryggvadóttur (1913-
1968), Louisu Matthíasdóttur (1917), Nínu
Sæmundsson (1892-1965), Gerði Helga-
dóttur (1928-1975), Vigdísi Kristjánsdóttur
(1904-1981) og Ásgerði Búadóttur (1920).
Hrafnhildur Schram listfræðingur sér um að
velja verkin á sýninguna. Sýningin opnar 4.
júlí og henni lýkur 16. ágúst. Á meðan á
sýningunni stendur verður dagskrá Norræna
hússins miðuð við konur í listum og á það
bæði við um flytjendur og höfunda verka.”
Þessi góða hugmynd Guðrúnar hefur sann-
arlega dregið dilk á eftir sér. Sýningin verð-
ur eflaust skemmtileg og dagskráin í Nor-
ræna húsinu virðist mjög spennandi.
Kvennasagan á netið
Kvennasögusafnið lætur lítið yfir sér en þar
er margt að finna. Þar stendur meðal annars
skrifborð Bríetar Bjarnhéðinsdóttur innan
um ýmis gögn sem raðað er snyrtilega í hill-
ur. Ljósmyndir af Bríeti og Önnu, ásamt
listaverkum kvenna, prýða líka safnið. Ég
bað Guðrúnu að segja mér nánar frá því
sem safnið hefði að geyma. „Hér inni á
safninu geymum við gagna- og úrklippusafn
sem fræðimenn og nemendur í kvennfræð-
um geta grúskað í. í gagnasafninu leynast
ótal spennandi hugmyndir að rannsóknar-
verkefnum og heimildir sem ekki eru að-
gengilegar annars staðar. í safninu eru varð-
veittar fundargerðarbækur og skjöl frá ýms-
um kvennasamtökum, bréfasöfn kvenna,
handrit, ljósmyndir og margt fleira. Ur-
klippusafnið er orðið nokkuð stórt að vöxt-
um. Um er að ræða úrklippur úr dagblöðum
sem Anna hóf að safna á sínum tíma og nýt-
ur safnið þjónustu Fjölmiðlavaktarinnar og
fser sendar úrklippur um jafnréttismál,
kvennafræði o.fl. á mánaðarfresti. Bækur og
tímarit í eigu safnsins eru geymd innan um
bókakost Landsbókasafns íslands - Há-
skólabókasafns og eru aðgengileg öllum
notendum.”
Er auðvelt að linna hér það sem maður
vill leita að?
„Gögnin eru grófflokkuð og varðveitt í sýru-
fríum öskjum hér inni á safninu. Gögnin eru
skráð og því sæmilega aðgengileg. Það er
hinsvegar í bígerð að láta hanna upplýsinga-
kerfi fyrir safnið. Þegar því er lokið geta
notendur leitað sjálfir að þeim gögnum, úr-
klippum, bókum eða tímaritum sem þeir
vilja nálgast. Stefnt er að því að þetta kerfi
verði aðgengilegt hér í bókhlöðunni og
einnig á alnetinu. Við tökum þátt í samnor-
rænu verkefni á vegum NIKK - Nordisk
Institutt for Kvinne- og kjönnsforskning um
norrænt kvenna - og kynjabókasafn á alnet-
inu. Sett verður upp heimsíða með aðgengi
að öllum helstu gagnagrunnum um kvenna-
og kynjafræði á Norðurlöndum. Þeir sem
taka þátt í verkefninu eru: NIKK, KVINFO í
Kaupmannahöfn, Kvinnovetenskapligt for-
um í Lundi, Institutet för Kvinnoforskning í
Ábo og Dokumentasjonstjenesten for litt-
eratur om kvinner á háskólabókasafninu í
Bergen.”
Ég sé að hér er myndlistarsýning, viltu
segja mér aðeins Irá henni?
„Já, þetta eru verk Ragnheiðar Jónsdóttur
grafíklistakonu sem verða hér til sýnis út júní.
Ný sýning birtist hér á mánaðarfresti og ég
bendi íslenskum myndlistarkonum hér með á
þann möguleika að sýna hjá okkur. Með sýn-
ingunum viljum við kynna íslenskar myndlist-
arkonur og vekja áhuga á starfsemi safnsins.”
Loks var tímabært að slíta samtali okkar
Guðrúnar og undirrituð var orðin rnargs vís-
ari. Það er ánægjulegt að vita af slíkri grósku í
kvennafræðum og góð hugmynd að tengja
bókaútgáfu við listviðburði. Vonandi tekst vel
til í sumar með þessa sýningu í Norræna hús-
inu, til kynningar á þarfri bók um áfanga í
sögu íslenskra kvenna.
VSV
vdra 43