Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Page 13

Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Page 13
LJ ÓSMÆÐR ABLAÐIÐ 9 meðgöngutímans, og því oftar, sem nær dregur fæðingunni. Ann- ars eru helstu einkenni nýrnabólgunnar þau, að þvagið verður minna og vatn fer að safnast fyrir í líkamanum, oftast sem bjúgur, cg þegar meira kveður að, kemur höfuðverkur og þyngsli, sjóndepra eða þcka fyrir augun, klýgja og uppköst. Einkenni þessi geta komið öll á skömmum tíma eða eitt cg eitt í einu, og er ekki vert að bíða eftir þeim öllum, áður en þvagið er skoðað. En þó að nú eitt eða fleiri af þessum einkennum komi fyrir seinni hluta meðgöngutímans, þá er ekki þar með sagt, að um nýrna- veiki sje að ræða, því að margt annað getur komið til greina, en þá er það alt af þvagskoðunin, sem sker úr. 1. d. er klígja cg uppköst ekki óalgeng einkenni seinni hluta meðgöngutímans, þctt þau komi frekar fyrir á fyrstu mánuðunum. Svo er og um bjúginn, sem teljast má mjög algengur hjá vanfærum konum, sjerstaklega á fótum. Hann getur átt margar aðrar orsakir. Blóð rásin getur verið veikluð af því, að hjartað á ekki nógan kraft til þess að standast hið aukna erfiði, sem meðgöngutímanum fylgir, og þá myndast bjúgur á þeim stöðum, sem erfiðast er að dæla tlóðinu um, eða blóðrásin getur hindrast um fæturna af æða- hnútum, sem oft kcma fyrst í ljós um meðgöngutímann, eða af leginu, sem þjappar of fast að blóðæðum þeim, sem frá fótun- um liggja. Hætta sú, sem af nýrnaveiki vanfærra kvenna stafar, er, eins cg áður er sagt, ekki ýkja mikil, því að sjaldnast verða breyting- arnar í nýrunum svo miklar, að þær lagist ekki aftur, en aðal- hættan er í því fólgin, að varla má skoða nýrnaveiki þessa sem veiki út af fyrir sig, heldur sem einn lið eða sýnishorn af þeirri eitrun, sem á sjer stað í líkamanum, og venjulega eitt með fyrstu einkennum þeirrar eitrunar. pegar eggjahvíta er í þvaginu, sjást cft ýmsar breytingar í fylgjunni, blettir cg blæðingar, sem geta orðið til þess, að fóstrið deyr eða fæðist fyrir tímann, og þegar fylgjan lcsnar of snemma og blæðir milli fylgju og legs, þá er cítast eggjahvíta í þvaginu, enda er þá konan oft mikið veik cg miklu veikari en við blæðingar af öðrum ástæðum, þótt meiri sjeu, eins cg t. d. þá er fylgjuna ber að. Annar alvarlegur fylgjukvilli nýrnaveikinnar er fæðingas-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.