Ljósmæðrablaðið - 01.10.1922, Side 18
Í4
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Annar aðalfundur Ljósmædratjelags íslands.
Fundurinn var haldinn í húsi K. F. U. M. í Reykjavík laug-
ardaginn 29. júlí 1922.
Fer hjer á eftir útdráttur úr gjörSabók fjelagsins:
Bólusetningar. Samþykt var með öllum atkvæðum gegn einu
að fela stjórninni að koma því til leiðar, að lagt yrði fyrir næsta
Alþingi frumvarp, er heimilaði ljósmæðrum að hafa á hendi
bólusetningu í kaupstöðum og kauptúnum, þar sem íbúarnir færu
ekki fram úr 5000; að ljósmæður, er hefðu á hendi bólusetn-
ingu í sveitum, hefðu 15 kr. á dag, meðan á bólusetningu stæði,
en í kaupstöðum og kauptúnum væri gjaldið U króna á hvert
bólusett ba'rn.
Ljósmœðraslfólinn. Fundurinn samþykti að fela, stjórn fjelags-
ins að koma fram þeim breytingum á fyrirkomulagi skólans, er
hún teldi nauðsynlegar.
BlaS. Fundurinn skoraði á stjórnina að athuga kostnað á út-
gáfu Ijósmæðrablaðs, og hvort ekki væri tiltækilegt, að fjelagið
gæfi slíkt blað út.
Dýrlíðaruppbót. Fyrirspurnir bárust fundinum um það, hvernig
á því stæði, að ljósmæður fengju alment enga dýrtíðaruppbót.
Taldi formaður það stafa af því, að laun ljósmæðra væru yfir-
leitt svo lág og auk þess ekki nema helmingur þeirra goldinn
úr ríkissjóði, að þau þess vegna næðu ekki því lágmarki, er dýr-
tíðaruppbót væri reiknuð af. En ekki taldi hún loku, fyrir það
skotið, að bæjarstjórnir og sýslunefndir kynnu að vera fáanlegar
.til þess að leggja ljósmæðrum þessa dýrtíðaruppbót, ef farið
yrði fram á það.
Útgefandi: Ljósmæðrafélag íslamls.
Félagsprentsmiðjan.