Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 9

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 43 best búinn til þess að leysa þau hlutverk sem honum, um- fram alt annað, eru ætluð, og að alt fari sem best um meðgöngutímann, fæðinguna og ungbarnahirðinguna, þegar þar að kemur. pað segir sig sjálft, að til þess að þetta gangi alt sem ákjósanlegast, þarf konan að liafa heilbrigð líffæri, og að því ber því að stefna í öllum upp- cldisatriðum, er um stúlkubörn er að ræða. Einhver kynni nú að fetta fingur út í þessar kenningar, og koma því að sem mótbáru, að nú sje svo háttað bög- um vorum, að margt kvenfólk liliðri sjer Iijá þessari aðal köllun sinni, að verða móðir og húsmóðir, og því er nú ver að þetta er satt; er þar margt sem veldur, oft efna- leg afkoma og annað ýmislegt í öllu þvi róti mannf jelags- ins, öfgum og öfugstreymi sem nú á sjer stað. — En þó að þetta sje satt, þá má alls ekki skoða líf þessara kvenna sem einkisnýtt — það er nú öðru nær! J?ær geta beitt sjer á margvíslegan hátt í þágu mannúðar, uppeldis og ment- unar, ýmist sem ljósmæður, hjúkrunarkonur, kennarar, læknar, umsjónarkonur á ýmsum uppeldisstofnunum, kvennaheimilum og þvil., og þetta eru alt þýðingarmikil störf — og það svo, að vandsjeð er hvernig úr rætist, ef engar konur væru til að sinna slíkum störfum. — pað er vitaskuld, að þegar rita skal um heilsufræði kvenna, eða þær beilbrigðisreglur, sem æskilegast væri að eftir væri farið um alt uppeldi þeirra, þá verður varla hjá því komist, að krefjast margs þess, sem varla er við að búast að a 11 i r fari eftir, og er margt sem veldur, oft- ast efnalegar ástæður og aðrir heimilisbagir. Má þar til nefna 1 a u g a r, matarhæfi, k 1 æ ð n a ð, í b ú ð og annað fleira. En þó ekki verði farið eftir fullkomnustu kröfunum, þykir þó rjett að benda á þær; þær sýna hvert á að stefna, og að hverju ber að keppa. J>að þykir ekki ldýða, að fara að rifja lijer upp alla meðferð og hirðingu ungbarna alment, en benda má þó á, að sjerstaka aðgæslu þarf að bafa við stúlkubörn ný-

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.