Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 12

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 12
46 LJOSMÆÐRABLAÐIÐ ast, og liver lítil tannskemd getur valdið ómetanlegu tjóni, bæði móðurinni sjálfri og fóstrinu, sem hún gengur með. Hver vanfær kona ætti því að láta tannlækni athuga tenn- ur sínar einmitt um meðgöngutimann, að svo miklu leyti sem því verður við komið, og láta gera við skemdir jafn- óðum og á þeim ber. H æ 11 a n á t a n n s k e m d u m er eins og áður er sagt misjöfn, eftir því sem byggingarlag hvers barns er, en það er aftur að mestu komið undir heilsufari móður- innar um meðgöngutímann, og svo náttúrlega undir því, Iivernig háttað er næringu ungbarnsins (peli eða brjóst), og þegar barnið er nú farið að fá aukamat og enn síðar, þegar það er farið að fá mestmegnis mat, skiftir miklu hvernig sá matur er tilhafður, t. d. hvort maturinn er svo mulinn eða bleyttur, að barnið þurfi ekkert fyrir að hafa, ekkert að tyggja en bara renna honum niður. pess vegna vilja nú læknar fá sem mest að leggja orð í belg um fæðu ungbarna, og leggja þá það helst til þeirra mála, að fæðan sje sem fjörviríkust, og svo löguð, að barnið megi t i 1 a ð t y g g j a. pannig hefir skólalæknir einn í Osló ráðið til að láta þau skólabörn, sem fá matgjafir i skól- ann, hafa að árhita harðar tvíbökur og rúgbrauð með smjöri eða smjörlíki ofan á og mysuosti, hráa gulrófu, og y<i líter af nýmjólk og máske eina teskeið af þorska- Iýsi í ábæti. Vaka kennarar og skólalæknar yfir þvi, að börnin fái ekki leyfi til að bleyta brauðið í mjólkinni og koma sjer þannig Iijá að tyggja. Hrá gulrófa er líka ágæt; hana verður að tyggja, og hún verður ein- mitt til þess að hreinsa matarleifarnar úr tönnunum, og slagar þannig upp í tannbursta, sem oft vill farast fyrir að nota. — petta verður þannig til að varna matarleifum frá að setjast að þarna á tönnunum, og þar með að verja þær skemdum. Englendingar hafa alþekt máltæki, mjög spaklega orðað: Eitt lóð af smitvörnum er betra en heilt pund af lækningum, og skilur hver maður hvað í því felst.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.