Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 14

Ljósmæðrablaðið - 01.07.1928, Page 14
48 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Útistandandi skuldir ...................... kr. 620,00 Kr. 5749,33 Útgjöld á árinu ........................... kr. 1031,53 Afg. til næsta árs ........................ kr. 4717,80 Kr. 5749,33 Næsta mál á dagskrá var sjúkrasjóðsmálið. Er þar nú i sjóði alls 123 krónur, en betur má ef duga skal, og verð- ur seinna vikið að þvi máli hjer í blaðinu. pess skal þó getið, að nokkrar krónur bættust við á þessum fundi. Fimm nýútskrifaðar ljósmæður gengu i fjelagið. Samþykt var á fundinum að biðja stjórnina enn einu sinni að senda launakröfur ljósmæðra til Alþingis, á þann hátt, sem stjórnin telur heppilégast. Hreyft var því á fundinum, bvort bægt muni vera að gefa út fleiri tölublöð af Ljósmæðrablaðinu um árið. Svaraði gjaldkeri því, að það væri með öllu ómögulegt, svo lengi sem ljósmæður stæðu ekki betur í skilum með borgun sína, eða útveguðu blaðinu fleiri kaupendur. Mörg fleiri mál voru tekin fyrir, en engar ákvarðanir gerðar. I fundarlok sagði frk. þuriður Bárðardóttir ljósm. ferða- sögu sína. Hafði bún farið á landsfund ljósmæðra í Sví- þjóð, sem haldinn var í Málmey dagana 14.—17. júni s. 1. Skýrði hún frá málum þeim, sem rædd voru á fundinum. Var erindið alt hið fróðlegasta, og einkar skemtilegt. Lof- aði hún mjög gestrisni Svía og allar þeirra góðu viðtökur sjer til handa. Kemur ef til vill seinna hjer í blaðinu ein- liver frásögn af ferðalaginu. Var þá fundi slitið. Bauð formaður fundarkonum að kaffidrykkju þar á staðnum. Kom þeim þar saman um, að iáta sjúkrasjóðinn njóta góðs af, og gáfu þær í bann sína krónuna hver. Stjórnin. Útgefamli: Ljósmæðrafjelag íslands. Fj elagsprentsmiðjan

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.