Ljósmæðrablaðið - 01.03.1937, Side 4
14
LJ ÓSMÆÐRABLAÐIÐ
ýmsu stig fósturlátanna? Eg skal stultlega drepa á það
lielsta.
Ætla má, að fósturlátin séu enn að eins yfirvofandi ef
ekki er mjög mikil blæðing og tiltölulcga vægir verkir, og
ef innri rannsókn sýnir, að legopið er ekki farið áð opn-
ast. Þó er aldrei liægt að scgja með fullkominni vissu,
livað verða kann. Byrjandi eru fósturlátin ef blæðingin
er á liáu stigi og verkir miklir, ef innra legopið er farið
að opnast og leghálsinn að vikka út. Þá er ekki hægt að
gcra ráð fyrir að fósturlátin verði stöðvuð og fyr eða síð-
ar fæðisl svo eggið eða einhverjir hlutar þess. Oft getur
læknirinn vcrið í vafa um, hvort legið hafi tæmst til fulls
eða eitlhvað sé eftir, ekki síst, ef hann á að fara eftir sögu-
sögn konunnar og fóstrinu eða egginu liefir verið fleygt.
Við innri rannsókn finnst þó oft livað liður, ef fylgju-
leifar finnast í legliálsinum eru fósturlátin ófullkomin,
og ef blæðing héídur áfram er líklegt að eitthvað sé eftir.
Hafi J)Iæðing aftur á móti liætt og liafi innra legopið lok-
ast er vissa fengin fyrir þvi að ekkert sé eftir. Legopið lok-
ast eklci meðan eilthvað er eftir i leginu. Stundum eru
upplýsingar þær, sem læknirinn fær, svo ófullkomnar,
að lílið er iá þeim að græða. Getur þá verið vafamál á
hvaða sligi þau eru. Innri rannsókn getur þá oft gefið
þær upplýsingar sem með þarf. Sé innra legopið opið, leg-
hálsinn stuttur og ytra legop lokað er um byrjandi fóstur-
lát (fósturlát „i gangi“, al)orlus ineipiens) að gera, en sé
innra legop lokað en ytra legopið opið cr um ,.fullkomin“
fósturlát (ahortus completus) að ræða. Hjá konum, sem
fælt hafa áður, getur þó ytra lego])ið verið opið án þess
að um fósturlát sé að ræða.
Áður var getið um að fóstrið gæli dáið en þó haldist
áfram i leginu (missed abortion). Vanalega er ekki erfitl
að ganga ur skugga um þclta. Konan keinur til læknis
með svofellda sögu: Fyi’ir nokkrum mánuðum hiifðu tíðir
hætl, konan hélt sig vera ófríska en nokkrum vikum