Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 5
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
27
um við Juliane Marievej 14, voru myndir af mæðrum og
börnum, viðvíkjandi meðferð barna á fyrsta ári, og heilsu-
vernd mæðra og barna.
Nú voru þar í ljósmæðraskólanum ekki nema 18—20
nemar en 1921—22 vorum við 38. Þá var námstíminn eilt
ár, en er nú tvö, og þeir nemar, sem teknir voru þar inn
1. okt. í haust, voru ráðnir til þriggja ára náms, og er þar
með talið nám í meðferð barna á fyrsta aldursári og heilsu-
vernd barnshafandi kvenna. Flutti próf. E. Hauch erindi
því viðvíkjandi á Ijósmæðraþinginu, og mun eg komá að
þvi síðar.
Ein ástæðan fyrir lengdum námstíma er sú, að nú hafa
nemarnir fleiri frídaga og styttri vinnutíma yfirleitt. Ár-
ið 1921—22 höfðum við alls 12 frídagaumárið, ogþóttigott.
Nú hafa þær yfir 50 um árið fyrir utan öll aukafri. En þar
sem aðal vinnukrafturfæðingardeildarinnar eru ljósmæðra-
nemarnir, og vinnulíminn styttur að nökkrum mun, þá
varð að innleiða þriðja árganginn, svo að störfin yrðu þó
unnin, og þær lærðu ekki niinna en áður! — Öllum bar
saman um, að í Danmörku væri yfirfult af ljósmæðrum.
Þar er aldurstakmarkið lika 00 ár. Og eftirlaunasjóðurinn
vill halda í sitt við eldri ljósmæðurnar.
Miðvikudaginn 23. ágúst kom eg til Odense. Við útlendu
Ijósmæðurnar fengum bestu viðtökur á Amtssjúkrahúsinu
og bjuggum þar á herbergjum ljósmæðra og lijúkrunar-
kvenna, sem þá voru í sumarleyfum sínum. — Við vorum
alls 38 (frá Svíþjóð 30, frá Noregi 5, frá Færeyjum 2, frá
íslandi 1), og á barnalieimili þar i borginni var íslensk
ljósmóðir, María Magnusdóttir frá Sauðárkróki, og sótli
hún mótið en bjó á barnaheimilinu.
Fimtudaginn 24. ágúst var aðallega unnið úr skýrslum
líinna ýmsu félaga og rædd mál, sem snertu hin einstöku
amtsfélög, kosnar nefndir, o. þ. h.
Föstudag 25. ágúst var hið eiginlega Landsþing sett kl.
8.30. Var gengið lil guðsþjónustu í Sct. Knúts kirkju. Stifts-