Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 14
36
LJÓSMÆÐR ABLAÐIÐ
öðrum stöSum líkamans ef blóðrásin er bæg. Upphækkun-
in situr utan á beinhimnunni, svo að takmörk liennar fylgja
ekki „saumum“ beinanna eins og vant er með blóðsvepp
(sjá siðar). Þar sem fæðingarsveppurinn, eins og áður er
sagt, svarar til þess svæðis af fyrirliggjandi fósturblula,
sem dý])st lielir staðið, er þýðingarmikið að rannsaka selu
lians til ákvörðunar á stöðu höfuðsins og fóstursins i heild.
Þetta fyrirbrigði er eins einkennandi eins og það kemur oft
fyrir, mjúk, deigkend upphækkun, oft mjög blálituð, og
þar sem þunt er á beini, eins og t. d. i andlitinu, geta mynd-
ast blöðrur, því að vatnið sprengir yfirhúðina frá leðrinu.
Fæðingarsveppurinn hverfur oftast eftir nokkra daga, og
krefst sjaldan neinna aðgerða. Aðeins þegar húðin losnar
á stórum svæðum, kemur til greina að búa um
sveppinn með dauðhreinsuðum umbúðum til þess aö
lcoma í veg fyrir sýkingarhættu. Við andlitsstöðu
getur fæðingarsveppurinn orðið mjög stór, og útlit barns-
ins allægilegt, svo að móðurinni og öðrum viðkomandi
stendur ógn af, og er ])ví réllara að búa liana undir þessa
breytingu fyrirfram. Frb.
Aðalfundur
Ljósmæðrafélags Islands verður haldinn i Oddfellowliús-
inu föstud. 28. júní n. k. Fundurinn hcfst kl. 2 e. h., stund-
víslega.
Æskilegt væri, að þær ljósmæður, sem ekld geta mætt á
fundinum, létu stjórn félagsins í té skoðun sína um það,
fyrir aðalfund, livort þeim fyndist ekki heppilegra, að
bæjarstjórnirnar á hverjum stað ákvæðu laun þeirra, sem
annara starfsmanna bæjanna, þar sem þær taka laun sin
eingöngu úr bæjarsjóði, heldur en láta Alþingi um það.
Stjórnin.
Útgefandi: Ljósmæðrafélag Islands.
Félagsprentsiniðjan h.f.