Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Síða 6
28
LJÓSMÆÐRABLAÐIft
prófastur Joh. Fogt-Petersen flutti þar ræðu og sveigði
mjög að stríðshorfunum, sem þá voru farnar að hrella
marga, þó að ófriðurinn væri ekki skollinn á. Sýndi hann
okkur fornminjar þær, sem geymdar eru i kjallara kirkj-
unnar, og sýna þær, að ófriður og grimdarverk eru engin
nýjung í sögunni.
Kl. 9.30 var fundur settur í hinu stóra fundarhúsi í
Odense „Fyns ForsamIingshus“. Form. Landssamhandsins,
Frk. Anna Ilerlevsen, setti mótið, bauð félagskonur og
gesti velkomna og þakkaði okkur, sem vorum lengst að
komnar, alveg sérstaklega fvrir að vera þar mættar.
Rak nú liver ræðan aðra um störf og kjör Ijósmæðra.
Málti þar margt heyra, því að þær voru ekki myrkar í máli,
dönsku ljósmæðurnar. Og ekki liafa þær siður auga fyrir
að afla sér auranna en við. Mundi það verða talin sýtings-
semi af ljósmæðrum hér, sem þar þykir sjálfsagður hlutur.
En orðalaust gengur það ekki. Og þær hafa bókstaflega
lagastaf fyrir greiðslu, einhversstaðar frá, fyrir hvað litið
sem er.
Fundi var slitið kl. 18 þennan dag, og vorum við þá allar
boðnar af próf. Kiihnel að skoða Amtssjúkrahúsið. Eru
15—16 hundruð sjúkrarúm samtals á hinum ýmsu deild-
um þess. Þar er allstór fæðingadeild og deild fyrir kven-
sjúkdóma. Ekki man eg, livað byggingarnar voru margar,
en breiðir gangstigir, fallegir grasblettir, blóm, tré og
runnar umkringdu þær allar, og undir öllum gangstígun-
um milli hinna ýmsu hygginga lágu göng, sem liægt var
að fara um með sjúkrabörur, smávagna o. j). h. Þar niðri
voru líka böð og rafmagns lækningastofur.
Þegar spítalinn hafði verið skoðaður, var sest að borð-
um, haldnar ræður, fjutt kvæði og livað annað. Þegar
staðið var upp frá borðum, voru sýndar i kvikmyndum
ýmsar „operationir“ viðvikjandi fæðingahjálp o. j). h. Þar
á meðal vanskapað barn, sem fæddist með fullu Hfi, en
var þannig, að brjóstholið var opið og hjartað lá utan á