Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 10

Ljósmæðrablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 10
IJ ÓSMÆÐRABLAÐ1Ð 32 um á spítala eða í heimaliúsum, og koma þanuig móður og harni yfir alla aðal erfiðleikana með ráðum og dáð. Að kvöldi síðasta fundardagsins var fjölment samsæti með góðum mat og gleði mikilli. Stóð það hóf til miðnætt- is. Þar var meðal annara gesta próf. E. Hauch, og yfir- ljósm. frk. Rödtness. Var þetta'meðfram kveðjusamsæti fyrir þau frá dönsku Ijósmæðrafélögunum, þvi að iá næsta hausti láta þau af störfum við Ríkisspítalann í Kaupm.höfn eftir 30 ára starf. Síðasti dagur þessa Ijósmæðraþings var sunnudagur 27. ágúst. Var þá farin hringferð um Fjón og komið á flesta fegurstu staði þar. Heimsóttum við eiimig hinn stóra og margbreytta „01Ierup“-skóla. Veðrið var hið liliðasta og besta — ferðin var fjölmenn og yndisleg, en vfir öllu hvildi þó einhver þung og dulin alvara, því að stríðsfregnirnar — eða réttara sagt stríðshættufregnirnar — voru í hverju blaði. Margar sögðu við mig: „Nú er gott að eiga heima norður á Islandi.“ Daginn eftir, þ. 28. ágúst, skildi eg við norsku og sænsku ljósmæðurnar í Kaupmannahöfn. Þær hafa skrifað mér siðan, þó að það sund sé nú líka lokað í bili. Jóh. Friðrikstl. Frá Tryggingarstofnun ríkisins Á síðasta Alþingi var lögunum um Lífeyríssjóð Ijós- mæðra nokltuð breytt og þykir rétt að gera hér í blaðinu grein fyrir helstu brevtingunum. 1. Samkvæml lögunum, eins og þau voru, greiddu ljós- mæður að eins iðgjald af föstum launum sínum, en ekki af dýrtíðaruppbótinni, en lifeyririnn lil þeirra átti binsvegar að miðast við laun og dýrtíðaruppbót, og ltemur því hér fram misræmi, sem er ósamrýmanlegt fjárhagslegu

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.