Ljósmæðrablaðið - 01.01.1941, Síða 3
Ljósmæðrablaðið I. 1941.
Dr. med. P. N. Dam:
Meiðsli á börnum við fœðingar
(Fyrirlestur á ljósmæðranámskeiði, nóv. 1938. Birtist í
danska ljósmæðrablaðinu 1939).
Niðurlag.
EFRI ÚTLIMIRNIR.
Handleggslömun. Hreyfitaugar handleggsins koma úr
þeim hluta mænunnar, sem liggur í hálsliðunum, og verða
allar samferða niður eftir hálsinum og undir viðbeinið, en
dreifast síðan í einstakar taugar, sem teygja sig út til
hinna ýmsu vöðva. Ef barnið verður fyrir áverka þar,
sem taugarnar liggja hlið við hlið, geta margir vöðvar
lamazt í einu, en verði hins vegar stök taug framar á
handieggnum fyrir hnjaski, lamast aðeins einn vöðvi eða
vöðvahópur.
Erb-Duchennes-lömun nær til margra vöðva vegna
áverka á allar taugarnar fyrir ofan viðbeinið. Þessi áverki
er fólginn í ofþenslu taugaþráðanna, og verður þá blæðing
umhverfis þá, sem getur valdið þrýstingi á taugarnar um
lengri eða skemmri tíma. Einstöku sinnum tognar svo
mjög á taugunum, að þær slitna, og helzt þá lömunin æfi-
langt. Þessi ofþensla getur t. d. orðið við það, að of harka-
lega er togað í barn í höfuðstöðu til þess að ná fremri
öxlinni niður; en oftast verður þó áverkinn við það, að of
fast er þrýst á öxlina, þegar verið er að ná út höfði barns
í sitjandafæðingu, og verður þá þrýstingurinn beint á taug-