Ljósmæðrablaðið - 01.01.1941, Side 9
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
7
Tvœr sjúkrasögur
(Þýtt úr „Jordemodern").
Á sjúkrahúsið B. B. var lögð inn kona þann 16. jan. 19-..-
Þriðja fæðing. Fyrsta fæðing var fyrir 11 árum síðan, önn-
ur fyrir 5 árum. Báðar fæðingarnar gengu eðlilega, sú
seinni fljótt; þremur tímum eftir að vatnið fór, fæddist
barnið, sem var 3800 gr. að þyngd og hafði höfuðummál 38
cm. Þremur árum eftir þessa fæðingu lá konan f jóra mán-
uði á sjúkrahúsi vegna graftarígerða víðsvegar um líkam-
ann, sem afleiðingar af hálsbólgu. I líffærum kviðarhols-
ins gróf þó ekki, svo að vitað væri.
Þennan síðasta meðgöngutíma var heilsufar liennar
ágætt. Við komu sína á fæðingarstofnunina hafði hún
fullgengið með og léttasóttin nýbyrjuð. Við ytri rann-
sókn fannst höfuðið fast í efra grindaropinu. Vatnið
fór 31/2 tíma eftir að sóttin byrjaði. Við innri rannsókn,
hálfri stundu áður en vatnið fór, var útvíkkun legopsins
fullkomin og höfuðið gengið niðurfyrir spjaldbrúnina. Hríð-
ir góðar með hvíldum á milli. En stundu eftir að vatnið fór
hættu hríðirnar snögglega og konan varð óróleg og kast-
aði upp. Engin ytri blæðing, æðin sló 110 slög á mín. Fóst-
urhljóðin voru góð. Ástandið versnaði stöðugt, konan varð
æ þjáðari. Hríðir hættu alveg, fósturhljóðin sömuleiðis og
æðin sló 140 slög á mín. í kviðarholinu fundust nú tveir
stórir hnúðar, samanhangandi í miðju, sá til vinstri á
stærð við mannshöfuð, sá hægri minni. Enginn vafi lék
á, hvað á ferðum var: legbrestur. Við uppskurð fannst
mikið blóð í kviðarholinu. Fóstrið lá vinstra megin í kvið-
arholinu, og legið til hægri. Höfuð fóstursins var fast
í efra grindaropinu. Fylgjan lá laus meðal garnanna, og
fóstrið var dautt. Legið sjálft var heilt, að öðru leyti en