Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1943, Side 4

Ljósmæðrablaðið - 01.03.1943, Side 4
14 LJÓSMÆÐRABLAÐEÐ Auk þess sem vanskapningar valda umhverfinu og foreldrinu óþægindum, þá valda miklir vanskapningar óþægindum við fæðinguna og vegna þess hefir þeim verið flokkað eftir því, hvort um vöntun á líffærum eða limum hefir verið að ræða, eða hvort hefir verið útvöxtur eða stækkun vissra líkamshluta. Auk þess koma í sérflokk tvíburavanskapningarnir, sem eru nær ótölulega margvís- legir. Ætlunin með þessum línum var að segja frá fágætum vanskapning, sem fæddist á fæðingardeild Landspítalans fyrir nokkrum árum síðan. Móðirin var 38 ára gömul, fæddi í fimmta sinn og höfðu hin börnin verið rétt sköpuð og heilbrigð. Hún hafði aldrei misst fóstur. Meðgöngu- tíminn var eðlilegur, nema hvað konunni fannst kviður- inn óvenjulega mikill ummáls. Konan var holdgrönn, en annars hraustleg. Við venjulega rannsókn fannst ekkert sjúklegt. Kl. 7 að morgni vaknaði hún við þrautir, sem síðan ágerðust og kl. 1Q.35 kom hún inn á fæðingardeild- ina, og var þá legvatn farið á leiðinni þangað. Þegar hún kom í rúmið, sá í koll og 5 mínútum síðar fæddist í chloroformsvæfingu lifandi drengur í I. hvirfilstöðu. Legið dró sig nú saman í harðan hnött, en var svo stórt, að búist var við að tvíburi væri enn eftir. Með ytri rann- sókn tókst ekki að greina hluta fóstursins, né fósturlegu, vegna þess hve legið var jafn hart. Það heyrðust engin fósturhljóð. Með hríðum sá í fornisti, og voru belgir sprengdir. Kom litlaust og eðlilegt legvatn. Samtímis sá í fósturhluta, sem líktist mest sitjanda. Þegar ekki kom í Ijós bakrauf eða kynfæri, þótti líklegt að um sjálfheldu- lausn væri að ræða. Farið var upp með fingur vinstra megin, til þess að losa fót og komst hendin þá upp fyrir hnjósk á fóstrinu, sem þá veítist fram og þannig fæddist í chloroformsvæfingu, 20 mínútum eftir fæðingu barns- ins, vanskapningur og samtímis fylgjan, .sameiginleg fyrir tvíburana. Engin spangarsprunga og legið dró sig vel

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.