Ljósmæðrablaðið - 01.11.1943, Blaðsíða 3
Ljósmæðrablaðið VI. 1943.
Lögskipaðar Ijósmœður
í Reykjavík.
Þann 1. okt. s. 1. lét frk. Þuríður Bárðardóttir af
embætti sem lögskipuð ljósmóðir í Reykjavík eftir 38 ára
óslitið starf. I tilefni þess birtist í heimilisblaðinu „Vikan“
grein um lögskipaðar ljósmæður í Reykjavík. Leyfir Ljós-
mæðrablaðið sér að birta þá grein, þar sem hér er um að
ræða fróðlegar heimildir fyrir stéttina.
Maðurinn kemst ekki hljálparlaust í heiminn og er al-
gerlega háður umhyggju annara fyrstu hérvistarár sín og
móðirin leggur líf sitt í hættu við hverja fæðingu, svo
að það ætti að vera öllum mönnum ljóst, hve ábyrgðar-
mikið starf ljósmæðranna er. Enda hafa margir foreldrar
metið það vel og að verðleikum, en kjör og aðbúnaður
þessara þörfu hjálparkvenna sjaldan verið eins og þurft
hefði við hina þjóðnýtu vinnu þeirra.
I „Skipun heilbrigðismála á íslandi“, sem Vilmundur
Jónsson landlæknir hefir samið, segir frá því, að árið 1749
hafi verið útgefin á prenti fyrsta kennslubók í ljósmóð-
urfræði á íslenzku. Voru það biskuparnir á Hólum og í
Skálholti, sem stóðu að útgáfunni. I kaflanum „Tímamót
í heilbrigðismálasögu íslands“ segir m. a.: „Hér er fyrst
og fremst að greina ráðstafanir til að sjá íslenzkum lækna-
efnum fyrir fræðslu (1760) og ljósmæðrum fyrir nokkurri